Morgunblaðið - 28.10.1979, Blaðsíða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1979
2. grein
TVÆR steingeitur falla ljómandi vel
saman. Þær kunna að hafa dálítið hemj-
andi áhrif hvor á aðra á yngri árum, en
þær færast allar í aukana með árunum.
Steingeit er ákaflega þrautseig, hefur
skilning á öðru fólki og samvinna þess við
annað fólk oft svo jákvæð að lofsvert er.
Steingeitin er í eðli sínu sjálfri sér trú og
steingeitur bregðast yfirleitt ekki ólík-
indalega við. Þær eru eðli sínu trúar. Þess
vegna finnst steingeitum gott að vera
saman, vegna þess að þær vita að þær geta
treyst hvor annarri og líður með fáum
betur en annarri steingeit. Steingeitin
leggur sig sjaldnast niður við að gagnrýna
hina vegna þess, að með því væri hún að
gagnrýna sjálfa sig. Steingeitur eru góðar
sínum, og oft mikið fjölskyldufólk. Stein-
geitur eru einbeittar um margt en þær
hafa til dæmis næmari skynjun á því en
mörg önnur merki hvenær skynsamlegast
er að hörfa. Þær vilja forðast að tefla í
tvísýnu og reyna að leggja málin niður
fyrir sér af yfirvegun.
Samskipti tveggja steingeita er ekki
bara rjómalogn og alvara. Þær fá út úr
samskiptunum djúpa og gagnkvæma
ánægju. Þær finna gleði í mörgu því sem
öðrum yfirlætisfyllri merkjum finnst lítið
til um.
Bogmaður/ fiskar
22. nóvember — 21. desember
20. febrúar — 20. marz
HÆTT er við að þessi merki lendi í alls
konar vafstri og milli þeirra komi upp
margs konar árekstrar. Ráðandi stjörnur
þeirra, Júpiter og Neptúnus, eiga að vísu
ýmislegt sameiginlegt, en svo margar
mótsagnir eru í skapgerð þessa fólks,
þegar það velst saman að hætt er við að oft
gangi brösulega. Fiskur og bogmaður gætu
stundum átt leið ef þau legðu sig meira
fram um að koma auga á kosti hvors
annars og meta þá.
Fiskur gæti sannarlega fundið til virð-
ingar og aðdáunar á einlægni bogmanns-
ins. En kímni þeirra er dyntótt og
tilætlunarsemi beggja verður þeim oft
fjötur um fót. Þau hneigjast bæði að því
sem er trúarlegs eðlis eða dulúðugt, en
einnig þar er afstaða þeirra ólík og þau
þverskallast við að virða hin ólíku sjón-
armið hins.
Sú dæmalausa þörf bogmanns að þurfa
stöðugt að segja ástvini sínum sannleik-
ann umbúðalaust særir fiskinn djúpt —
andstætt vatnsbera sem skeytir slíkum
yfirlýsingum engu. Bogmönnum finnst
skorta á einlægni hjá fiskum og vilja
krefja hana af þeim stundum með harka-
legri aðferðum en fiskurinn getur sætt sig
Bogmaður/ vatnsberi
22. nóvember — 21. desember
20. janúar — 20. febrúar
BOGMENN hafa í sér meiri tvöfeldni en
vatnsberi. Bogmaður er hálfur maður,
hálfur hestur. Því er bogmaður að hálfu
glaður, hálfu hryggur, að hálfu léttlyndur,
að hálfu alvarlega þenkjandi, að hálfu
einfeldningar, en hálfu vitringar. Þeir eru
ekki eins tvískiptir og tvíburar, en samt
eru þeir langtum skiptara merki en
vatnsberinn. Vatnsberinn sækir ekki held-
ur áhrif sín til slíkra merkja og því eru
bogmaður og vatnsberi um flest ákaflega
ólíkir. Tvær hliðar er nefnilega ekki nærri
nóg fyrir vatnsberann — hann hefur
marga persónuleika samtímis og sitt á
hvað. Vatnsberar þola óheilindi og hræsni
verst allra. Þeir geta umborið breyskleika,
en óheilindi og makk er þeim eitur í
beinum og þá brestur fullkomlega þeirra
fræga umburðarlyndi.
Þegar sameinast hispurleiki Júpiters og
óútreiknanleiki Satúrunusar getur ýmis-
legt gerzt. Heppilegra er að þessi merki
velji sér vini en ástvini. Venjulega er
vatnsberinn notalegur og skapgóður, þol-
inmóður og fús að leyfa öllum að vera í
friði, svo fremi hans eigin þörf sé virt að
því leyti. Hann umber hvatvísi bogmanns-
ins og málgleði betur en margir. En þar
getur komið að þolinmæði hans bresti. Þá
fer hann fyrir fullt og allt. Það er
bogmönnum bezt að skilja. Lífið er dálítið
erfitt vatnsbera, því að afstaða hans er oft
ópersónulegri en annarra og þetta á
bogmaður erfitt með að skilja og álasar
honum sýknt og heilagt fyrir kaldlyndi.
Bogmaður þarf í raun meira á vatnsbera
að halda en öfugt. Það á ekki aðeins við um
þetta merki — vatnsberafólk er það merki
sem bezt kemst yfirleitt af án annarra.
Þetta getur vakið ergi bogmannsins, þar
sem honum er mikil þörf á því að finna að
menn þarfnist hans. Vatnsberinn er ekki
líklegur til að uppfylla þessa þörf og því er
hætt við að ástarsambönd þessara aðila
geti verið hvassviðrasöm.
Bogmaður/ steingeit
22. nóvember — 21. desember
21. desember — 21. janúar
BOGMENN eru skemmtilegir menn,
stundum angurværir og daprir, stundum
ofsakátir. Þessu veldur skiptingin sem
fjallað er um hér að framan. Steingeitin er
skynsöm og traust. Hún kemst það sem
hún ætlar sér. Bæði merkin búa yfir
skyldi
eiga sam-
leið með
hverjum?
Sú vera fyrirfinnst varla sem ekki hefur nokkuð gaman af því
að lesa um stjörnuspádóma, úttekt á hverju merki og þar
fram eftir götunum. Hvort sem menn taka þetta nú sem
skemmtilegt grín eða í meiri alvöru. Linda Goodman,
bandarískur sérfræðingur í stjörnumerkjum, sendi nýlega frá
sér mikla bók, þar sem fjallað er einvörðungu um samskipti
fólks eftir merkjum, og þó aðallega í ástarsamböndum. An
efa vekur efnið forvitni lesenda — líka þeirra sem viðurkenna
ekki að þeir hafi áhuga á efninu.