Morgunblaðið - 28.10.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1979
39
Glefsur úr bók Lindu Goodman „Love Signsu
eiginleikum sem höfða til hins. En stein-
geitin finnur á stundum til óþols gagnvart
því eirðarleysi sem bogmaðurinn er hald-
inn, verður þreytt á endalausri þörf hans á
tilbreytingu og athöfnum. Steingeitin er
alvörugefin og ábyrg, hún nennir ekki að
eyða dýrmætum tíma sínum í það sem
henni finnst innantómt og ekki þess vert.
Bogmaðurinn gæti orðið leiður á því
hversu steingeitin er kyrrlát. Hann vill að
hún opni sig og segi sér allt af létta —
steingeitin kvartar undan því að bog-
maðurinn hlusti aldrei þegar hún opnar
sig — sem hún gerir að vísu afar sjaldan.
Það getur ýmislegt farið úrskeiðis milli
þessara merkja þegar leitun og hugsjónir
rekast á við vísdóm og gætni. Samt væri
hugsjón lítils virði ef henni fylgdi ekki
nokkur gætni og dálítið vit. Jákvætt er í
samskiptum þessara aðila hversu stein-
geitin er hæfari að sætta sig við hrein-
skilni bogmannsins en mörg önnur merki.
Við fyrstu sín gæti svo virzt sem
bogmenn ráðskuðust dálítið með steingeit-
ina. Það horfir a.m.k. þannig við út í frá.
En með allan þennan bægslagang í
kringum sig er steingeitin á hljóðlátan og
einarðlegan hátt að gera það sem henni
þóknast — og bogmaðurinn verður að láta
sig hafa það. Bogmaðurinn verður þó fyrst
og fremst að sætta sig við þann eiginleika
steingeitar að ástúðin birtist ekki í
skrúðugu snakki, heldur í gerðum.
Bogmaður/ bogmaður
22. nóvember — 21. desember
BOGMÖNNUM liggur alltaf svo mikið á
hjarta. Þeir hafa takmarkalausa þörf fyrir
að tjá sig. Þeim finnst með réttu að þeir
seú ákaflega skemmtilegir. En þeir geta
orðið þreytandi. Hins vegar hentar þetta
tveimur bogmönnum mætavel, nema að
því leyti að þeim gæti hlaupið einum of
mikið kapp í kinn að komast að. Ahugamál
þessa fólks spanna vítt svið, þeir vilja
leggja allt fyrir sig, kynnast öllu, vita allt.
Því er alltaf líf í tuskunum í kringum þá.
í innbyrðis samskiptum þurfa bogmenn
sannarlega að gæta sín á að óöguð
hreinskilni beggja stofni ekki sambandi
þeirra í hættu. En með hæfilegum heiðar-
leika og umburðarlyndi sýndu af báðum
gætu samskipti þeirra orðið um margt góð.
Tilfinningatogstreita ætti ekki að koma
alvarlega upp í samskiptum tveggja bog-
manna. En hins vegar gæti verið að þeir
yrðu hreinlega leiðir á sjálfum sér og
fyndu ákveðna þörf fyrir að leita til fólks
sem þeim finnst ekki vera algerar tvíbur-
asálir sínar.
Sporðdreki/ fiskur
23. október — 22. nóvember
20. febrúar — 20. marz
ÞESSI merki þykja fara afbragðs vel
saman. Fáir vina þeirra skilja þau gjörla,
en það skiptir engu, því að milli þeirra
tveggja ríkir djúpur skilningur og þeim
líður hugnanlega saman. Samvera þeirra
er áreynslulaus og það liggur ekki alltaf í
augum uppi hversu náið tilfinningasam-
band þeirra er.
Sporðdreki er sagt vera sterkt merki og
fiskurinn veiklundaður. í samskiptum
þessa verður annað uppi á teningnum.
Sporðdreki gengst við veikleikum sínum
gagnvart fiskum sem hann tregðast við að
gera gagnvart öðrum. Fiskurinn er næm-
ari og hefur víðari yfirsýn en sporðdrek-
inn. Sporðdrekinn er ákaflega meðvitaður
um sjálfan sig og honum er áfram um að
aðrir finni ekki veikleika hans, eins og fyrr
hefur komið fram. Fiskunum þykir sporð-
drekinn gera alltof mikið veður út af öllu
og þetta getur valdið ágreiningi milli
þeirra. Sporðdrekinn er málglaður —
fiskurinn sér ekki ástæðu til að tala bara
til að tala. Hann talar þegar honum finnst
hann hafa eitthvað að segja. Ókyrr sál
sporðdrekans gerir það að verkum að hann
þarf stöðugt að hafa uppi tal til að leyna
því sem hann vill ekki að aðrir sjái og
skynji. Þetta finnst fiski kjánalegt, en
hann tekur því með blessunarlegu um-
burðarlyndi.
Verði þessar persónur hrifnar hvor af
annarri verður lífið ekki hið sama eftir,
það hefur meiri lit og ljóma. En samt
þurfa allir að rækta garðinn sinn, ekki
hvað síst þessir einstaklingar sem virðast
þurfa svo lítið fyrir öllu að hafa.
Steingeit— vatnsberi
21. desember — 20. janúar
20. janúar — 20. febrúar
ÞAÐ er erfitt að spá hvernig samskiptum
einstaklinga í þessum merkjum myndi
reiða af. Það er töluvert mikið undir því
komið hversu þolinmóð steingeitin getur
verið gagnvart hinum óvenjulega persónu-
leika vatnsberans — sem honum finnst
reyndar fjarska þekkur og auðveldur. Eða
hvort vatnsberinn þreytist á þeirri afstöðu
steingeitar að bezt sé að láta svo vera og
hreyfa ekki við of miklu.
Steingeitur eru í grundvallaratriðum
alvörugefið fólk, þótt þær geti vissulega
glaðzt með glöðum. Kímnigáfa þeirra er
þurrleg og ópersónuleg og tilfinning þeirra
gagnvart því sem er skynsamlegt er ríkari
þáttur í skapgerðinni. Vatnsberinn getur
verið bæði einbeittur og ákveðinn en
vatnsberar eru ekki alvörugefið fólk.
Vatnsberinn mun því óneitanlega hrista
geitina til þegar hún á sízt von á.
Vatnsbera hættir til að gera einmitt
eitthvað sem fólk á sízt von á. Það er ekki
öllum sem hugnast slíkt. Og vatnsberinn
gerir sjaldnast það sem að mati steingeit-
ar er skynsamlegt. í augum vatnsbera er
það skynsamleg gjörð ef þar með bætist
við þekkingu hans. Hann hirðir ekki um
hvað fólk hugsar um hann eða segir. Hann
setur sér sínar eigin siðareglur og þær eru
einlægar og fágaðar en geta stundum
komið mjög óþægilega við steingeitina
sem hefur um margt svo bundna afstöðu
til margs slíks.
Vatnsberi er merki snilligáfu og geggj-
unar — í nokkuð ámóta skömmtum.
Steingeitin er merki skynsemi og raun-
sæis. Hún er næm og skilningsgóð, en hún
fær samt sem áður ekki botnað í sumum
eiginleikum vatnsberans og mjög getur
brugðið til beggja vona í samskiptum
þessara aðila.
Vatnsberi/ vatnsberi
20. janúar — 20. febrúar
ALLTAF er eitthvað að gerast. Skrítnir
atburðir. Oftast tökum við eftir þeim.
Nema vatnsberinn. Honum finnst sjaldn-
ast sem nokkuð óvenjulegt hafi gerzt.
Vegna þess að það sem er óvenjulegt
flestum er honum undur eðlilegt — allt að
því sjálfsagt. Vatnsberi er óútreiknan-
legur, gæddur góðum gáfum, hann er ekki
hrokafullur, sjálfsánægja hans er dálítið
abstrakt. Hann er beztur vinur allra
merkja, en þykir ekki að sama skapi
ástríðufullur. Tveir vatnsberar saman
gæti orðið dálítið spennandi. Þetta fólk
getur verið svo fjarrænt og lítur flest út
frá öðru sjónarmiði — án þess að finnast
það umtalsvert. Um sumt falla tveir
vatnsberar saman.
En hins skyldi gætt að vatnsbera er
mikil þörf á að rannsaka allt, kynnast öllu,
komast á snoðir um allt. Með öðrum
vatnsbera fer hann á mis við það. Þar með
er ekki sagt að vatnsberasamband gæti
ekki verið ögn dægilegt. En hætt við að
báðir verði angraðir nokkuð þegar fram í
sækir, vegna þess að það er svo fátt sem
kemur þeim á óvart — og þeim tekst ekki
að vekja furðu hins. Á hitt ber svo að líta
að þó að vatnsberi sé sagður umburðar-
lyndur í mörgu og gagnvart mörgu er hann
engum eins umburðarlyndur og öðrum
vatnsbera, segja má að þar sé langlund-
argeðið í það mesta.
Vatnsberi/ fiskur
20. janúar — 20. febrúar
20. febrúar — 20. marz
AÐ mörgu leyti eiga vatnsberi og fiskur
vel saman. Það eru nánast engin takmörk
fyrir þeim árangri sem þessir aðilar gætu
náð. Flest gengi þeim í haginn þegar þau
ynnu skipulega að afmörkuðu verki. Sam-
band þeirra er nokkuð óvenjulegt og
vatnsbera tekst að vekja með fiskinum
meiri sjálfstrú og dirfsku en öðrum
merkjum og í samskiptum við vatnsbera
verður fiskurinn um margt ólíkur því sem
hann er með öðrum. Vatnsberum finnst
þetta öldungis ljómandi og líta svo á að
þeir viti næstum allt og séu ákaflega
örvandi verur. Þær mættu gjarnan draga
dám af þolinmæði fisksins. Og fiskurinn
umber kúnstir og tiltektir vatnsberans
með stakri ró, jafnvel ekki laust við hann
sé hrifinn af þeim sumum.
Annað er það sem gæti orðið eilítið
snúið og það er sú náttúra fisksins að vera
dálítið sparsamur á sig og halda alltaf
einhverju smáhólfi innan í sér fyrir sig.
Þetta getur komið vatnsbera úr jafnvægi.
Ekki vegna þess að hann sé hnýsinn —
heldur er hann svo ólýsanlega forvitinn.
Fæstir fiska spyrja afdráttarlausra spurn-
inga. Þeir skilja fólk og finnst þeir ekki
þurfa að spyrja. Aftur á móti spyrja
vatnsberar öðruvísi spurninga en annað
fólk, það getur orðið fiskum þreytandi á
stundum. Vatnsberar eru ekki kallaðir
rómantískir og ástríðufullir, en fiskurinn
vekur með þeim ákveðið draumlyndj.
Fiskar og vatnsberar hafa einnig mjög
mikið yndi af listum og bókmenntum, en
smekkur vatnsberans er þar upprunalegri
— grófari og ekki eins vandaður og hinn
hárfíni smekkur fisksins.
Fiskur og vatnsberi reiðast á einkar
mismunandi máta, fiskur er lengur að
jafna sig eftir rifrildi, vatnsberi springur
með látum — þegar minnst vonum varir.
Síðan er það liðið hjá og flest gleymt —
ekki allt þó. Að þessu leyti er fiskur mjög
ólíkur vatnsbera.
Fiskur/ fiskur
20. febrúar — 20. marz
ÞEGAR fiskar hafa samneyti sín í millum,
skal það haft bak við eyrað að fiskamerkið
er tvískipt, ekki ólíkt bogmanninum. Því
eru ýmsir valkostir þegar fjórir fiskar
koma nú saman. Fiskarnir verða að gæta
sín á að láta ekki ákveðna og neikvæða
þætti verða ráðandi, þar sem er tilhneig-
ing til blekkinga, fánýtra dagdrauma og
ákveðin tilhneiging til að leiða aðra á
villigötur. Fiskar verða að gæta sín vegna
þess að ella munu þeir gera að engu
frumkvæði og metnað hins. Trúlegt er að
töluvert ergi verði millum þeirra en
yfirleitt tekst þeim að skilja hvorn annan.
Þeir virða þörf hvors annars til innri
íhugunar og þeir laðast á mjög ljúfan hátt
hvor að öðrum. Þeir eru langt frá
fullkomnir og eiga sínar erfiðu stundir.
Fiskar bera byrðar sínar léttilega og af
nokkru kæruleysi. Og verði byrðin þeim of
þung hafa þeir nærtækasta þá lausn að
varpa henni frá sér og skokka áfram,
áhyggjulausir. Dæmigerður fiskur sækist
ekki eftir frama og völdum. Hann öðlast
slíkt iðulega og tekur því af auðmýkt og
lítillæti.
í samskiptum tveggja fiska margfaldast
betri hliðar þeirra, þeim báðum til fram-
dráttar og einnig öðrum þeim sem hafa
skipti við þá.
I næstu grein verður vikið að samskipt-
um:
Vogar — vogar
Vogar — sporðdreka
Vogar — bogmanns
Vogar — steingeitar
Vogar — vatnsbera
Vogar — fiska
Ljóns — ljóns
Ljóns — jómfrúr
Ljóns — sporðdreka
Ljóns — vogar
ljóns — bogmanns
(h.k. tók saman)