Morgunblaðið - 28.10.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1979
37
Ljósm. Kristján.
Magnús Kristmannsson. Kristmann Magnússon og Magnús Þorgeirs-
son standa hér hjá (yrstu saumavélinni sem Magnús seldi. Lengra til
hægri er afsteypa af fyrstu véiinni sem Píaff-fyrirtækið í Þýskalandi
bjó til.
Pfaff-
umboðið
á íslandi
50ára
50 ÁR eru liðin síðan Pfaff-
umboðið á íslandi seldi sina
fyrstu saumavél. Fyrstu 10 árin
var það til húsa að Bergstaða-
stræti 7 en s.l. 40 ár í Pfaff-hús-
unum við Skólavörðustíg 1—3 en
þau hús voru byggð árin 1939—
1949. Nú á fimmtugsafmælinu
flytur Pfaff með starfsemi sína í
nýbyggt verslunarhús að Borg-
artúni 20. Verður starfsemin þar
öll á einum stað, þ.e.a.s. verslun,
skrifstofa og vörugeymsla.
Auk Pfaff-heimilissaumavél-
anna hefur umboðið selt íslensk-
um prjóna- og saumaiðnaði
saumavélar, auk ýmissa hjálpar-
véla og tækja. Þá hefur Pfaff
umboð fyrir Stoll og Passap-
prjónavélar.
Fyrir tólf árum fékk versiunin
umboð fyrir Candy-heimilistæki,
þvottavélar, uppþvottavélar, kæli-
og frystitæki. Á þeim tíma hefur
fyrirtækið selt 20.000 Candy-tæki,
þar af 18.000 þvottavélar.
Fyrir þremur árum tók Pfaff
við umboði fyrir Braun-fyrirtæk-
ið, þ.e. þann hluta sem snýr að
rakvélum, hársnyrtitækjum og
öðrum heimilistækjum.
Tilviljun
réð upphafinu
í 35 ár veitti Magnús Þorgeirs-
son fyrirtækinu forstöðu, en þá
tók við stjórn sonur hans Krist-
mann sem rekið hefur það síðan.
Þriðji ættliðurinn hefur nú hafið
störf við fyrirtækið, Magnús sonur
Kristmanns. Hjá Pfaff-umboðinu
vinna nú 20 manns.
Upphafið að starfsemi Pfaff hér
á landi var þannig að systir
Magnúsar bað hann að útvega sér
Pfaff-saumavél þar sem hún hafði
heyrt þeirra getið. En Magnús
hafði samband við fyrirtækið
sögðust þeir aðeins selja honum 6
saumavélar í einu og buðu honum
umboðið um leið. Fyrsta sauma-
vélin sem Magnús seldi var fót-
stigin og kostaði 240 krónur. í dag
kostar fullkomnasta saumavél
fyrirtækisins 315 þúsund krónur.
Auk þess að selja áðurnefndar
vélar hefur Pfaff staðið fyrir
sníðanámskeiðum og kennslu á
saumavélarnar og hefur sníðabók
fyrirtækisins, „Það er auðvelt að
sníða", verið prentuð í 13 þúsund
eintökum.
Myntsýningunni lýkur í dag
Myntsýningu Myntsafnarafé-
lagsins í Bogasal Þjóðminja-
safnsins lýkur kl. 22.00 í kvöld.
Svo sem komið hefur fram í
greinum mínum þessa viku, eru
þar til sýnis íslenskir seðlar og
mynt, sem notuð hefur verið hér
á landi frá þjóðveldistímum til
vorra daga. En það er fleira sem
er sýnt á þessari sýningu en
mynt og seðlar, nefnilega
MATVÆLA-SKAMMTUR
OKTORER 1039
Mynt
eftir RAGNAR
BORG
skömmtunarseðlar og barm-
merki. Hafa þessir sýningar-
gripir vakið verðskuldaða at-
hygli. Þeir tveir safnarar, sem
sýna þessa gripi, safna einnig
mynt, en hafa einnig tekið þetta
hliðarspor í söfnun sinni. Allir
sem komið hafa á Myntsýning-
una hafa lokið upp einum rómi
Sykur mi « Hrííjgrión, haunir eða annað 250 8 Haframjöl 250 g Hveiti 20« X hvcitibrauí5 25« g Ruffmjöl 500 g «?8a rúghrauð 75(1 g H vdU 200 - «8a hveitibrauð 250 g
Sykur 5(H) 8 Katfi br. og m. «25 X rSa kaifihaumr 150 g Haframjöl 250 g Hveiti 200 8 hvuitíbrauð 25« s Rúfimjöi 500 8 öfS-t rúgbrauð 750 8 Hveiti 2(M) g hveHíbrau? 250 8
Sykur 500 g Hrísgrjón, liaunir eða ímnað 250 8 Haframjöl 250 % Hveití 200 f «8» hveitihrauð 250 g Rúirmjöl 500 * rúghrauð 750 g Hvetti 200 s i'8a hveitibrauf 250 g
Kafli br, 08 ra. Hveiti liúpijöl i Hveili ! 'MVrt ~
um hve vel hún sé uppsett, en
það gerði Gunnar Bjarnason
leiktjaldamálari. Einnig hefur
tekist mjög vel til með ljósin og
sjást sýningargripirnir sérlega
vel. Eg vil því hvetja þá, sem enn
hafa ekki séð þessa gagnmerku
sýningu, að koma nú í dag. Munu
safnarar verða á staðnum til að
leiðbeina gestum, og þeir sem
vilja láta innrita sig í Myntsafn-
arafélagið geta nú notað tæki-
færið um leið og þeir sjá Mynt-
sýninguna.
Arekstur
í hafnar-
mynninu
Antwerpen. 26. okt. Reuter.
TVÖ flutningaskip rákust á i
hafnarmynninu í Antwerpen i
dag og urðu á þeim verulegar
skemmdir, en slys urðu þó ekki á
mönnum. Þarna voru á ferðinni
Marianne frá Panama, 3.700
tonn, og Empros, grískt skip,
tæplega 9 þús. tonn.
VERÐTRYGGÐUR
LÍFEYRIR FYRIR
ALLA LANDSMENN
1. Óðaverðbólga teflir stöðu og afkomu aldraðra
ellilífeyrisþega og öryrkja f mikla hættu.
2. Enn eru margir sem njóta ekki verðtryggðs líf-
eyris. Tryggja verður stöðu þessa fólks og verja
þaö áföllum.
3. Tillaga Guðmundar H. Garðarssonar um Líf-
eyrissjóð íslands - verðtryggður lífeyrir fyrir
alla landsmenn, tryggir stöðu og afkomu örykja
og ellilífeyrisþega, nái þaö fram að ganga.
4. öruggt kjör Guðmundar H. Garðarssonar í eitt
af efstu sætunum á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins f Reykjavfk stuðlar að framgangi þessa
mikla réttlætis- og hagsmunamáls.
Stuðningsmenn
Guðmundar H. Garöarssonar
(Auglýsing þessi er greidd með frjálsum
framlög'm).