Morgunblaðið - 28.10.1979, Side 16
Það er tilkomumikill bakgrunnur (þorpi Paradísarheimtar, en vinstra megin á myndinni
sér á biskupshúsið (sjá forsíöu), þá verzlun og þriöja húsiö er söölasmiöja.
Halla Linker, sem leikur Járn-önnu úr Vestmannaeyjum konu Þjóöreks
biskups, Rúrik Haraldsson sem leikur sára Runólf og María Guðmundsdóttir
sem leikur Maddömu Colorney, eina af eiginkonum Þjóöreks. Ljósmyndir:
Helga Bachmann.
PARADÍSARHEIMT
Islendingarn-
ir í Utah:
Alls tóku 12 íslendingar
þátt í kvikmyndun Para-
dísarheimtar í Utah. Fyrstur
fór á vettvang Björn
Björnsson leikmynda-
teiknari sem teíknaði allar
leikmyndir í kvikmyndinni og
þar á meðal öll húsin í
Utahþorpinu. Einn af aö-
stoöarleikstjórum var Guð-
ný Halldórsdóttir. íslenzku
leikararnir í Utah voru Jón
Laxdal, sem leikur Steinar
Bónda, Helga Bachmann
sem leikur Borgí, Róbert Arn-
finnsson sem leikur Þjóörek
biskup, Rúrik Haraldsson
leikur séra Runólf, Fríöa
Gylfadóttir leikur Steinu dótt-
ur Steinars, Anna Björns-
dóttir leikur dóttur Borgí-
ar, Halla Linker leikur Járn-
Önnu úr Vestmannaeyjum,
María Guðmundsdóttir leik-
ur Maddömu Colorney,
Áróra Halldórsdóttir leikur
Maríu Jónsdóttur þriöju konu
Þjóóreks og Gísli Haildórs-
son leikur Lútherstrúar-
manninn.
íslenskir leikarar tóku
fyrir skömmu þátt í kvik-
myndun Paradísarheimtar
Halldórs Laxness á eyöi-
mörk í fylkinu Utah í
Bandaríkjunum, en á þeim
slóöum er hluti af sögu-
sviöi bókarinnar. Gert er
ráö fyrir aö kvikmyndin um
Paradísarheimt veröi þrír
þættir, 70—90 mín. hver,
en um einn þriöji hluti
myndarinnar er tekinn í
Utah. Við hittum einn
íslenzku leikaranna, Helgu
Bachmann, aö máli til þess
aö rabba um hiö sérstæöa
verkefni sem íslenzkir leik-
arar tóku sér þarna fyrir
hendur viö allt aörar aö-
stæöur en þeir eiga aö
venjast.
„Framleiðendur myndar-
innar fengu spildu af eyöi-
mörkinni þarna“, sagöi
Helga, „og á þessari spildu
var reist þorp meö um þaö
bil 20 húsum. Þorpið gekk
undir nafninu Úti í götu.
Mörg húsanna voru mjög
vönduö, því að gerð mynd-
arinnar kallaöi á slíkt. Þaö
var haft á oröi undir lok
kvikmyndunarinnar hvaða
cowboymyndafélagi væri
hægt aö selja þorpið, því
aö þaö gefur alla mögu-
leika. Ég var þarna í tæp-
lega mánuö og þótt þetta
væri erfitt þá var þaö stór-
kostlegt. Lengst unnum við
í 15 tíma törnum og vökn-
uðum gjarnan kl. 4 á
morgnana, en þaö er búið
aö vinna á hverjum degi viö
þessa kvikmynd síöan um
miöjan júní. Þaö hefur fariö
feikileg vinna í þessa kvik-
myndun og má segja að
menn hafi unniö baki
brotnu og hvergi dregiö af
sór.
Þetta er yndislegt land,
og fólkið mormónarnir, svo
hreinlífir og Ijúfir. Dvölin
þarna var yndislegt ævin-
týri.
Viö vorum oft komín Út á
götu í kvikmyndaþorpiö kl.
5 aö morgni og þá var tekið
til viö æfingar þar til sólin
kom upp. Fyrir sólarupprás
var hrollkalt, en um leiö og
sólin var komin upp og hún
flaug upp á himininn, þá
var byrjað aö kvikmynda í
brennandi nakinni sól, 40
stiga hita á Celsíus í
skraufþurri eyöimörkinni,
en samt var þaö ævintýri.
Næsti bær frá kvikmynda-
verinu var háskólabærinn
Provo, en um hálfrar
klukkustundar akstur var
þangað. Daglegt var þetta
vinna og þolinmæði, vinna
og þolinmæöi, en eftir dag-
inn þegar maöur var búinn
aö fara í baö og þvo af sér
eyöimörkina var Ijúft aö
slappa af í þægilegu gisti-
húsi.
Þaö var ævintýri líkast
aö taka þátt í þessu og í
rauninni finnst mér nánast
aö ég hafi alls ekki verið
þarna, aö ekkert af þessu
sé sannleikanum sam-
kvæmt. Þetta viðfangsefni
var svo spennandi aö eftir
langan og strangan vinnu-
dag var maður óþreyttur.
En þótt þetta hafi veriö
spennandi veröld, þá er
ekki hægt að líkja saman
leikhúsinu og kvikmyndun-
inni. Leikhúsiö er helmingi
ríkari veröld miðað viö þaö
aö vera hérna heima.
Mannlífiö? Jú, þaö var
margt sérkennilegt og til
dæmis kom bindindissemi
mormónanna sterkt fram,
en sumir sáu í gegn um
fingur. Þarna voru mjög
góöir veitingastaöir meö
úrvalsmat, en rauðvín var
ekki hægt að fá með matn-
um. Hins vegar var manni
bent á aö ffyrir aftan veit-
ingahúsið væri búö, sem
seldi slík drykkjarföng í
bréfpoka. Bréfpokinn
skipti miklu máli, því þaö
mátti ekki bretta honum
meira niður en svo að
flöskustúturinn hálfur væri
upp úr. Og ekki þarf maður
aö lenda í þeirri klípu aö
þurfa aö biöja um tappa-
togara, því að þeir í Rpovo
gæta þess aö hafa skrúf-
aöa tappa á allar tegundir
víns með mat. Þegar
maöur er búinn aö setja
pokann á boröiö kemur
þjónninn orðalaust með
glösin, en flöskuna snertir
hann ekki og sér hana
reyndar ekki og þaö er
bannað að taka flöskuna
upp úr pokanum." — á.j.
f AVEXTIRI ÞESSARIVIKU'
Appelsínur, sítrónur, grapa aldin, epli rauö, epli græn, perur, vínber græn,
vínber blá, ananas, bananar, klementínur.
AVEXTIR ALLA DAGA
Eggert Kristjansson hf.
Sundagöröum 4, sími 85300
Jön Laxdal í hlut-
verki Steinars
bónda, ræöir kvik-
myndaatriöi vió
Rolf Hedrich leik-
etjöra, hægra meg-
in víö hjólbörurnar.
Helga Bachmann leikur Borgí.
Anna Björnsdóttir leikur dóttur Borgíar.
Franska sendiráöið
mun sýna þriöjudaginn 30. október kl. 20.45 í
Franska bókasafninu Laufásvegi 12, kvikmyndina:
„DERNIER DOMICILE CONNU“. J. Giovanni. Okeypis
aögangur. Enskir skýringartextar.
Á undan myndinni veröur sýnd fréttamynd.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins //
Y ngsti
þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
Friðrik Sophusson
Friðrik Sophusson varð sigurvegari í síðasta prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og tók sæti á Alþingi eftir
síðustu kosningar.
Á 7 mánaða þingferli hefur Friðrik meðal annars verið
flutningsmaður að eftirtöldum málum:
• Eflingu iðnaöar. Meðal annars
að fella endanlega niður að-
flutningsgjöld.
• Sveigjanlegum vinnutíma.
• Frjálsum útvarpsrekstri.
• Um gjaldeyris og viðskiptamál.
• Breyttum opnunartíma veit-
ingahúsa.
• Nýjum vinnubrögðum við gerð
fjárlaga.
• Frjálsari verðmyndun og sam-
keppni á peningamarkaðinum.
• Nýju verðmyndunarkerfi land-
búnaöarvara.
• Frjálsari gjaldeyrisverzlun.
Síðast
í 6. sæti.
Sækjum
fram.
Auglýsing.
Verslið hjá
Opið laugard.
kl. 10-12
20% VERÐ
LÆKKUN
á linsum
með M-42 skrúfgangi
t.d. fyrir Pratkica, Petri
Miranda og eldri gerðir af
Pentax, Mamiya og Yashica.
fagmanninum!
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811