Morgunblaðið - 28.10.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTOBER 1979
55
fclk í
fréttum
Finnur
missti
þingsœtið
+ DÁNSK-íslenzki læknirinn
Finnur Erlendsson sat á síðasta
kjörtímabili á þingi íyrir Fram-
(araflokk Mogens Glistrup í
Danmörku. En í kosningunum i
Danmörku síðastliðinn sunnu-
dag beið Framfaraflokkurinn
mikið afhroð — missti sex af 26
þingmönnum sínum. Meðal
þingmanna Framfaraflokksins
sem misstu þingsæti var Finnur
Erlendsson. Hann sat á þingi
fyrir N-Jótland.
f ®
Jón Ásgeirsson.
Jón á
heimleið
+ HINN góðkunni íþrótta-
fréttamaður útvarps, Jón Ás-
geirsson. hefur síðastliðin tvö
og hálft ár ritstýrt Lögberg-
Heimskringlu í Vesturheimi.
Hann snýr nú heim í vikunni.
„Ég mun fara aftur á útvarp-
ið.“ sagði Jón í stuttu spjalli við
Mbl. ,.En mun þó ekki fara
aftur á íþróttirnar, hef ekki
hug á því. Hermann Gunnars-
son hefur sinnt því starfi nú í
hálft þriðja ár með prýði án
þess þó að hafa vissu fyrir því
að starfið væri hans til fram-
búðar“ sagði Jón ennfremur.
Jón skrifaði síðasta leiðara sinn
í Lögberg-Heimskringlu hinn
28. september. Við ritstjórn
blaðsins tekur nú prófessor
Haraldur Bessason.
HUÓÐFÆRAHÚS REYKJAvIKUR.
Finnur Erlendsson.
Kristín Erla
varð fimmta
í Helsinki
Paganini:
III.
Fiðlukonsert D-dur.
o n/.i/. v'i
immmmáÉm
I, HLJÓMLEIKAR
11 ÁRA FIÐLUSNILLINGURINN
WOLPI SCHNEIDERHAN
OO PIANOLF.1KARINN, PRÓF.
WILLY KLASEN
VIÐFAN GSEFNI:
I.
Beethoven: Vorsónata, Op. 24, fyrir piano og fiðlu
Allegro — Adagio — Scherzo — Rondo.
II.
Beethoven: Andante favori fyrir piano.
a. Georg G. Miiller: Capriccio, Op. *0 fyrir piano.
b. Willy Klasen: Konsertparaphase yfir Josef Sauer:
»Die Schönbriinner«, Vals.
Schneiderhan
og prógrammið
+ KRISTÍN Erla Karlsdóttir,
sem í vor hreppti titilinn
Ungfrú Reykjavík tók um
síðustu helgi þátt í fegurðar-
samkeppninni „Miss Scandina-
via“ í Helsinki í Finnlandi. Tíu
stúlkur frá Norðurlöndum tóku
þátt í keppninni og Kristín
Erla hafnaði í fimmta sæti.
Kristín Erla cr 20 ára gömul og
starfar í tízkuverzlunni Bazar í
Reykjavík. Finnsk stúlka varð
hlutskörpust i keppninni og
sænsk stúlka hafnaði í öðru
sæti. Ásamt Kristínu Erlu
keppti fyrir íslands hönd Guð-
björg Sigurðardóttir.
+ FIÐLULEIKARINN
Wolfgang Schneiderhan
kom hingað til lands og lék
með Sinfóníuhljómsveit
íslands á fimmtudag og
minningartónleikum Hauks
Gröndals í gær, laugardag.
Schneiderhan „debúteraði44
á íslandi fyrir rúmum
fimmtíu árum, þá ellefu ára
gamall, árið 1927. Morgun-
blaðið skýrði frá þessu og
eftir þá frétt kom Sveinn
Þórðarson, fyrrv. banka-
gjaldkeri, til Elínar Pálma-
dóttur blaðamanns og færði
henni prógrammið frá þeim
tíma. Af því má sjá, að
ellefu ára gamall hefur
Schneiderhan ekki ráðist á
garðinn þar sem hann var
lægstur í vali tónverka. Elín
færði Schneiderhan pró-
Guðmundur Pálsson
og Sigríður Hagalín
gera víðreist
+ HJÓNIN Guðmundur Pálsson leikari og Sigríður Hagalín
leikkona hafa undanfarið ferðast um Norðurlönd og Evrópu, og
heimsótt leikhús. Þau dvöldust í mánuð í Englandi, heimsóttu
síðan borgir eins og Paris, Berlin, Kaupmannahöfn, Helsinki og
Stokkhólm þar sem þau kynntu sér það nýjasta í leikhúsheiminum.
Þau létu sér þó ekki nægja að heimsækja heimsborgirnar heldur
voru þau fyrr í mánuðinum á Álandseyjum. Þar sáu þau tvær
leiksýningar. „Þó við skildum ekki orð í finnsku þá finnst okkur
finnska leikhúsið mjög spennandi, sérstaklega uppfærsla Benno
Besson á Hamlet í Lilla teatern i IIelsinki,“ sögðu þau í viðtali við
blaðið Áland. Á myndinni eru hjónin fyrir framan innganginn á
Álandsleikhúsinu.
grammið honum til mikillar
ánægju. Hann eignaðist
þannig minjagrip frá upp-
hafi ferils síns sem eins
þekktasta iistamanns
heims.
Kristín situr
fgrir í Englandi
+ KRISTÍN Ámundadóttir hefur nú alfarið snúið sér að ljósmynda-
fyrirsætustarfi í Bretlandi. Hún fetar þar í fótspor „stóru systur“
sinnar, Sigrúnar, sem hefur unnið í Bretlandi síðastliðin tvö ár, í
brezka blaðinu 19, októberheftinu, eru myndir af Kristínu þar
hún auglýsir samkvæmisklæðnaðinn í vetur. Kristín er
stúlkan á myndinni. Hún er 22 ára gömul og stundaði síðas
vetur nám í sálarfræði við Háskóla lslands.