Morgunblaðið - 28.10.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1979
61
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
um að þau þurfi á hinu og þessu að
halda, barnaheimilum, vel búnum
herbergjum, góðum leikföngum og
svo mætti lengi upp telja. Sjón-
varps- og útvarpsþættir eru gerðir
og því dembt yfir þjóðina hvers
börnin fara á mis og hinir og
þessir spekingar gera ótal tillögur
um breytingar.
En hve oft hefur heyrst um það,
á þessu margrómaða barnaári, að
börnin þurfi örlítið meira af
foreldrum sínum. Þurfi meira af
þeirra tíma og meiri kærleika? Ég
hef að minnsta kosti ekki heyrt
marga spekingana tala um þann
þátt barnauppeldis.
Að ala upp barn er mikill
ábyrgðarhlutur. Barnið er persóna
og við getum ekki krafist eignar-
réttar yfir því og skikkað það til
að vera eins og við viljum. Okkar
hlútverk sem foreldra er því að
vernda það í uppvextinum, upp-
fræða, og umlykja með kærleika.
En hvað er að gerast í nútíma-
þjóðfélagi. Kapphlaupið um pen-
ingana er orðið svo gífurlegt að
börnin verða númer tvö. Að vera
heima og hugsa um börn er talið
svo niðurdrepandi að báðir for-
eldrarnir verða að fara út á
vinnumarkaðinn. Sem sagt við
sjálf og okkar hagsmunir koma
fyrst, síðan barnið og umhyggjan
fyrir því.
En hvað gerist svo? Barnið
finnur að það er einhvers konar
hindrun, það er fyrir foreldrum
sínum og því líður illa. Úti á
götunni meðal vinanna finnur það
e.t.v. kærleika og finnur að þar er
það ekki fyrir neinum. Á gatan að
vera börnunum meira „heimili" en
þeirra eigið? Verða ekki bæði
stjórnvöld og einstaklingar að
snúa blaðinu við? Stjórnvöld
verða að gera foreldrum það kleift
að vernda börn sín og veita þeim
umhyggju. Báðir foreldrarnir eiga
ekki að þurfa að vinna úti til að
geta framfleytt sér og sinni fjöl-
skyldu. Og þeir sem peningaþörfin
knýr ekki út á vinnumarkaðinn,
ættu að hugsa sig tvisvar um áður
en þeir leggja þangað út, einungis
til að lyfta sjálfum sér upp.
Ábyrgðin á uppeldi barna okkar
hvílir á okkur sjálfum og engum
öðrum. Áhugamaður.
• Fyrirspurn til
fréttastofu
útvarps
í hádegisfréttum ríkisút-
varpsins 24. október var skýrt frá
dómum yfir andófsmönnum í
Tékkóslóvakíu og þeir nefndir
stjórnarandstæðingar. Andófs-
menn hafa einungis krafist þess af
stjórnvöldum að stjórnarskrá
landsins verði virt. Hvaðan hefur
fréttastofan þá vitneskju að
mennirnir séu stjórnarandstæð-
íngar:
Vogabúi.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem
heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og
skeytum á 70 ára afmæli mínu. Guð blessi
ykkur öll.
Markús B. Ö. Thoroddsen.
• Góður sjón-
varpsþáttur
Sjónvarp.sáhorfandi hringdi,
og vildi koma á framfæri ánægju
sinni með sjónvarpsþátt Gunnars
Eyþórssonar á þriðjudagskvöldið,
og þann fróðleik sem þar kom
fram, og kvaðst vonast til að
Gunnar yrði með fleiri slíka þætti
í sjónvarpinu á næstunni.
• „Sumri hallar...“
Kona hringdi til Velvakanda
vegna visunnar „Sumri hallar,
hausta fer“. Undanfarið hafa birst
tvær greinar í Velvakanda um
umrædda vísu og í annarri þeirra
var gerð grein fyrir höfundi henn-
ar. Þar er höfundur „Sumri hall-
ar“ sagður vera Illugi Einarsson.
Konan vildi benda á það, að í
„Eyfirskar sagnir" eftir Jónas
Rafnar er vísa þessi sögð vera
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
í Úkraínsku deildarkeppninni í
ár kom þessi staða upp í viðureign
óþekkts meistara, Chervonovs,
sem hafði hvítt og átti leik, og
stórmeistarans Dorfmans. Hinn
síðarnefndi drap síðast riddara á
c3, en hann hefði betur látið það
ógert, því að hvítur á banvænan
millileik.
24. g6! (Hótar máti í öðrum á h7)
De7 og Dorfman gafst upp án þess
að bíða eftir svari hvíts, því að
eftir 25. gxf7 - Dxf7, 26. Bxc3 er
hvítur hrók yfir.
eftir Benedikt ívarsson. í bók
Jónasar er umrædd vísa nokkuð
öðruvísi en sú sem birtist í
Velvakanda, eða þannig:
Sumri hallar, hausta fer,
heyri snjallir ýtar.
Hafa fjallahnjúkar hér,
húfur mjallahvítar.
SIGCA V/öGA í \iLVtm
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
minnum Á
ELINU
AUGLYSING
— Vegna beinna kynna hennar af borgarbúum og
málefnum þeirra sem borgarfulltrúi í Reykjavík og sem
blaöamaður.
— Vegna þess aö hún hefur hugkvæmni, kjark og
dugnaö til aö nýta sína reynslu og þekkingu og koma
málum fram.
— Vegna þess aö í henni er fólginn möguleiki á að rétta
aftur hlut kvenna í þingliöi Sjálfstæöisflokksins og fá
tvær konur kjörnar á þing í Reykjavík.
Stuöningsmenn