Morgunblaðið - 28.10.1979, Page 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1979
Umsjón: Sérn Jón Dalbú Hróbjartsson
Séra Karl Siyvrbjörnsson
Siyurfrur Pdlsson
AUDROTTINSDEGI
Trúir vottar sannleikans
Síðasti sunnud. í október:
Hallgrímsmessa
Heilög ritning, sem boðar hann, sem
er vegurinn, sannleikurinn og lífið,
alfa og ómega, upphafið og endirinn.
Pistillinn
Róm. 3,21—28: Allir hafa syndgað og skortir
Guðs dýrð, og þeir réttlætast án verðskuldunar
af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi
Jesú.
Guðspjallið
Jóh. 8,31—36: Jesús sagði: Ef þér standið stöðugir
í orði mínu, þá eruð þér sannarlega lærisveinar
mínir, og munuð þekkja sannleikann, og sann-
leikurinn mun gjöra yður frjálsa.
HaUgrímskirkja
í gær, 27. október, var 305.
ártíð síra Hallgríms Pétursson-
ar, en hann andaðist í Ferstiklu
á Hvalfjarðarströnd, 27. okt.
1674. Óhætt er að fullyrða að
enginn maður hafi haft dýpri,
varanlegri og heillavænlegri
áhrif á íslenska þjóðarsál en
hann. Kveðskapur hans hefur
um aldir verið alþjóðareign,
samofin örlögum manna frá
vöggu til grafar. Eða eins og
Sigurbjörn Einarsson, biskup,
komst að orði við vígslu turnsal-
ar Hallgrímskikrju, 27. okt. 1974:
„Iðjan hans bjó yfir þeirri gift
heilags anda, sem eigi þvarr í
þrjú hundruð ár. Enginn íslensk-
ur hugur hefur vaknað svo til
vitundar í nær þrjár aldir, að
Hallgrímur hafi ekki með orðum
sínum snortið hann, upplýst,
sefað, styrkt og grætt. Enginn
komst svo til vits og máls, að
hann þægi ekki bænarorð, heil-
ræði og hugsvölun af honum. Og
vart var hinsta andvarp tekið né
gröf orpin, nema leitað væri til
Hallgríms um hjálp, hugbót,
huggun." (S.E.: Helgar og há-
tíðir, Rvík 1976) Og Dr. Jakob
Jónsson segir: „Ævi hans hér á
jörð var aðeins 60 ár, en í raun!
og veru mun henni ekki ljúka,
fyrr en þjóðin verður ólæs áj
búndið mál, eins og það hefurl
verið á liðnum öldum. Þess|
vegna er séra Hallgríms ekki I
minnst á sama hátt og margra
annarra ágætismanna, sem
höfðu mikla þýðingu sína eigin
tíma, en nútíminn skilur ekki,
nema með því að grafa í gömlum
rústum eða hrista rykið af hálf-
gleymdum doðröntum. Séra
Hallgrímur er maður vorrar
eigin tíðar, og verður maður
framtíðarinnar, nema eitthvert
stórslys hendi íslenska menn-
ingu.“ (J.J.: Um Hallgrímssálma
og höfund þeirra, Rvík. 1972.)
Hugmyndin um minningar-
kirkju Passíusálmaskáldsins er
nánast jafngömul þessari öld, en
þegar íbúafjöldi var orðinn sá í
Reykjavík, að fyrirsjáanlegt var,
að nauðsynlegt yrði að skipta
bænum í fleiri prestaköll, fékk
draumurinn um Hallgríms-
kirkju á Skólavörðuhæð byr
undir báða vængi. Um 1930 var
haldin hugmyndasamkeppni um
gerð kirkjunnar og bárust marg-
ar tillögur, en ákvörðun var þó
frestað. Það var ekki fyrr en tíu
árum síðar sem Alþingi sam-
þykkti lög um fjölgun presta-
kalla í Reykjavík, og var þar
tekið fram að hið stærsta þeirra
skyldi nefnt Hallgrímspresta-
kall, og þar skyldi reist stór
kirkja í minningu Hallgríms
Péturssonar. Hét Alþingi stuðn-
ingi ríkisvaldsins við þessa
framkvæmd, og var Guðjóni
Samúelssyni, húsameistara
ríkisins falið að teikna kirkjuna.
En nú var stríð í heiminum. A
krikjulóðinni voru herbúðir
setuliðsins og fyrstu árin átti
hinn fjölmenni Hallgrímssöfn-
uður athvarf í kvikmyndasal
Austurbæjarskólans til guðs-
þjónustu-halds. En að styrjöld
lokinni var hafist handa um
framkvæmdir, og reistur neðri
hluti kórsins og innréttuð þar
kapella, sem vígð var 5. desem-
ber 1948. Þjónaði hún sem safn-
aðarkirkja um aldarfjórðungs
skeið.
Frekari framkvæmdir við
kirkjusmíðina lágu síðan niðri
löngum vegna efnahagsástands-
ins í landinu, en nauðsynleg leyfi
fengust ekki til efniskaupa, en
nokkru fyrir 1960 var hafist
handa á nýjan leik að reisa veggi
kirkjuskips og svo turninn. Mikl-
ar deilur voru um kirkjuna, stíl
hennar og stærð, en ekkert fékk
bugað forráðamenn og unnendur
kirkjunnar og sífellt fleiri komu
til liðs með fjárframlögum. Á
300. ártíð Hallgríms Pétursson-
ar, hinn 27. okt. 1974 var smíði
turns og turnálma lokið, og salur
í suðurálmu vígður sem safnað-
arkirkja. Þann sama dag lagði
forseti íslands, Dr. Kristján Eld-
járn, hornstein að kirkjunni.
Þetta var eftirminnileg hátíð,
þar sem mikilvægum áfanga var
nað í langri baráttu.
Unnið er ósieitilega að bygg-
ingu þessa mikla húss. Á undan-
förnum fimm árum hefur verið
steyptur upp kórinn og hvolfþak
hans, og súlur og veggir kirkju-
skipsins, en stefnt er að því að
koma kirkjuskipinu undir þak.
Fullbyggðrar Hallgrímskirkju
bíða mörg verkefni í þágu þjóðar
og kirkju, að vera miðstöð öflugs
og lifandi starfs á sviði tilbeiðslu
og boðunar, svo og kirkjulegs
tónlistarflutnings. Kirkjan mun
veita langþráða og verðuga um-
gjörð um dýrustu perlur hljóm-
bókmenntanna, enda er kapp-
kostað að búa svo um hnúta, að
hljómburður verði með ágætum.
Hallgrímskirkja er stærsta
kirkjubygging á íslandi. Að stíl
er hún skilgetið afkvæmi þeirrar
þjóðernishyggju í byggingarlist,
sem ríkjandi var á árunum fyrir
síðari heimstyrjöld í nágranna-
löndum okkar. Eflaust er
Grundtvigskirkjan í
Kaupmannahöfn fyrirmynd
Hallgrímskirkju. Höfundar
Grundtvigskirkjunnar sóttu
fyrirmynd sína í form dönsku
sveitakirknanna, sem eru eins og
samgróinn hluti hinnar dönsku
landslagsmyndar. En form Hall-
grímskirkju eru sótt í sjálfa
náttúru Islands, í ævintýra-
myndir „Hraundranga," „Dverg-
hamra" og „Álfaborga", hamra-
belti og jökulbungur. Svipur
kirkjunnar er stórbrotinn, eins
og íslensk náttúra sjálf, tignar-
legur eins og gnæfandi fjalla-
tindar, hvítur og hreinn eins og
fannbreiður jöklanna. Álmur
turnsins mynda eins og út-
breiddan faðm, er býður hvern
þann er framhjá fer, velkominn,
turnspíran, sem teigist eina 75
metra upp, ber uppi krossinn
hvíta, sigurmark Guðs og lausn-
armark manna, sem signir
byggð og land.
Kirkjan á margt fagurra
muna, sem ber vitni um ást
manna á minningu Hallgríms
Péturssonar og því musteri, sem
reist er í minningu hans. Þar má
nefna Kristsmynd Einars Jóns-
sonar, en mynd þessa gaf mynd-
höggvarinn kirkjunni, Altaris-
taflan er hins vegar dönsk, gerð
af Stefan Viggo Pedersen, og
sýnir krossfestingu Krists og er
myndin gjöf dansks íslandsvin-
ar. Á altari stendur silfurkross,
mótaður sömu stuðlabergsform-
um og kirkjan sjálf, kross þenn-
an gerði Leifur Kaldal, sem
einnig gerði kvöldmáltíðar-áhöld
kirkjunnar, allt eru þetta minn-
ingargjafir. Kirkjan á fagran og
vandaðan skrúða, sem unninn er
af listakonunum Sigrúnu Jóns^
dóttur og Unni Ólafsdóttur. í
turninum eru svo klukkurnar,
sem allar eru gjafir. Þær þrjár
stærstu eru gefnar af Sambandi
Islenskra Samvinnufélaga, sú
hin stærsta ber nafnið „Hall-
grímur" og áletrunína: „Dýrð,
vald, virðing,“ sem er upphaf á
lokaversi Passíusálmanna. Er
þetta stærsta klukka á landinu
og vegur um tvö tonn. Þar fyrir
utan eru svo 28 smærri klukkur,
sem mynda klukknaspil, og eru
þær gjafir ýmissa einstaklinga
og fyrirtækja um land allt, og
bera nöfn gefenda.
í anddyri Hallgrímskirkju,
gegnt inngöngudyrum, gefur að
líta, — á þeim stað, þar sem
aðaldyr verða inn í kirkjuskipið
— lítið altari og altaristöflu,
sem sýnir engilinn boða upprisu
Jesú Krists. Taflan og munirnir
á altarinu tilheyrðu kapellu
Laugarnesspítala, sem danskir
Oddfellowar reistu um aldamót-
in síðustu. Þar var alla tíð haldið
uppi reglubundnum guðsþjón-
ustum sérstakra spítalapresta,
þ.á.m. voru sr. Friðrik Friðriks-
son og sr. Haraldur Níelsson.
Þegar holdsveikispítalinn var
lagður niður ákvað síðasti sjúkl-
ingurinn, Jósefína Guðmunds-
dóttir, að Hallgrímskirkja skyldi
varðveita þá gripi, sem prýtt
höfðu helgidóm holdsveikra, —
þjáningasystkina Hallgríms.
Var munum þessum komið fyrir
þarna í anddyrinu sem tákn
allra þeirra mörgu gjafa, sem
kirkjunni hafa borist frá upp-
hafi og berast jafnt og þétt frá
fjölmörgum vinum og velunnur-
um um land allt og jafnvel í
öðrum löndum. Þarna stendur
þetta tákn og minnir á hlýhug,
vináttu og fórnfýsi og markar
dyrnar til framtíðarinnar. Á
gjöfum og velvild VINA HALL-
GRÍMSKIRKJU byggist það
hvort og hvenær þessari miklu
smíð verði lokið og unnt verður
að ljíka upp dyrunum inn í
fullbyggða Hallgrímskirkju.
Biblíu-
lestur
Sunnuda/fur 28. okt.
Jóh. 8:31 —36
Mánudagur 29. okt.
Lúk. 10:1-3 og 17-20
Þridjudagur 30. okt.
Lúk. 10:25-37
MiÖvikudagur 31. okt.
Lúk. 10:38-42
Fimmtudagur 1. nóv.
Lúk: 11:1-8
Föstudagur 2. nóv.
Lúk. 11:9-13
Laugardagur 3. nóv.
Lúk. 12:1-9