Morgunblaðið - 28.11.1979, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.11.1979, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 Athugasemd frá Ólafi Jóhannessyni: Sérstakur skattur á hitaveitu Reykjavíkur kemur ekki til greina VEGNA skrifa Morgunblaðsins i gær, bæði i leiðara og i frétt á baksiðu, um að ég vilji láta leggja verðjöfnunargjald á Hitaveitu Reykjavikur, vil ég taka fram eftirfarandi: 1. Það er nrin skoðun að sérstakur skattur á Hitaveitu Reykjavíkur til jöfnunar á hitunarkostnaði komi ekki til greina. 2. Álit nefndar þeirrar um jöfnun kostnaðar vegna húshitunar sem fyrrverandi ríkisstjórn skipaði og skilaði áliti um á síðasta starfsdegi hennar, var aldrei tekið til umræðu í fráfarandi ríkisstjórn. Framsóknar- flokkurinn hefur því ekki tekið afstöðu til tillagna nefndarinnar. 3. Þegar á sér stað nokkur jöfnun á hitunarkostnaði, bæði með svoköll- uðum olíustyrk og eins með verð- jöfnunargjaldi á raforku. 4. Hitaveita Reykjavíkur er sjálfsagt vel rekið fyrirtæki. Af opinberum fýrirtækjum hefur Hitaveita Reykjavíkur hins vegar gengið hvað harðast fram í beiðnum um gjald- skrárhækkanir. Móti hóflausum hækkunarbeiðnum hef ég á undan- förnum árum staðið af fremsta megni, og væri fróðlegt ef Morgun- blaðið upplýsti lesendur sína um hver hitaveitugjöld í Reykjavík væru í dag ef fyrirtækið hefði strax fengið allar umbeðnar hækkanir. 5. Vegna gífurlegrar hækkunar olíu- verðs er brýnt jafnréttismál að hitunarkostnaður þeirra sem búa við olíukyndingu verði jafnaður til móts við hitunarkostnað annarra lands- manna. Sú jöfnun þarf að nást fram með tvennum hætti. a. Að hraða hitaveitu- og rafhitun- arframkvæmdum um allt land þannig að stefnt verði að útrým- ingu húshitunar með olíu á næstu 4—6 árum. b. Þar til því marki verði náð, verði hitunarkostnaður þeirra heimila sem búa við olíukyndingu jafnað- ur til móts við hitunarkostnað annarra landsmanna, annað hvort með hækkun olíustyrks eða með öðrum sambærilegum hætti. Frétt Morgunblaðsins og leiðari blaðsins þar sem reynt er að snúa út úr ummælum mínum um mál þetta varpa hins vegar skýru ljósi á stefnu Sjálfstæðisflokksins í núverandi kosningabaráttu. Hún er sú að etja stétt gegn stétt, þéttbýli gegn dreif- býli, Reykjavík gegn landsbyggðinni, einum hagsmunum gegn öðrum. Á þennan hátt er höfðað til þrengstu eiginhagsmuna, í stað þess að fylkja þjóðinni saman um að leysa sameig- inleg vandamál sín í anda samvinnu og jafnaðar. Sá er munurinn á stefnu Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fyrir þessar kosningar. Þökk sé Morgunblaðinu fyrir að leiða það svo greinilega í ljós með fyrrgreindum skrifum. (Það skal tekið fram, að fyrirsögn- in á grein Ólafs Jóhannessonar er skv. sérstakri ósk hans sjálfs). Athugasemd Morgunblaðsins: Ummæli Ólafs sjálfs sýna að hann vill verðjöfn- unargjald á hitaveitu —■ Talaði af sér fyrir kosningar Aths. ritstj.: Morgunblaðið vísar tilraun Ólafs Jóhannessonar til að snúa út úr eigin ummælum til föðurhúsanna. Á baksíðu Tímans sl. sunnudag er skýrt frá svari hans við fyrirspurn um þetta efni á „beinni línu“ Tímans. Frásögn Tímans er svo- hljóðandi: „HEI-Karólína Sigurjónsdóttir á Siglufirði, spurði, hvort Framsókn- arflokkurinn mundi beita sér fyrir verðjöfnun á hitaveitugjöldum en þau hefðu nú hækkað um 150% á Siglufirði á rúmu ári. „Ég verð að svara þessu persónulega fyrir mig,“ sagði Ölafur. „Ég er með verðjöfn- un, þótt kannski sé hættulegt fyrir mig sem frambjóðanda í Reykjavík að svara svo. En sannfæring mín er ekki föl fyrir atkvæði og það er mín sannfæring að verðjöfnun á upphit- unarkostnaði þurfi að koma til.“ Hér er talað svo skýrt, að ekki er hægt að misskilja. Ólafur Jóhann- esson er spurður um „verðjöfnun á hitaveitugjöldum“ og hann svarar á þann veg, að ljóst er hvað hann á við. „Ég er með verðjöfnun," segir hann. Ólafur Jóhannesson endurtekur þessi ummæli í Tímanum í gær í svari á „beinni línu“ við svipaðri spurningu. Hann segir: „Það er óhjákvæmilegt að koma á meiri jöfnun í þessum hitunarmálum. Það verður jafnvel að eiga sér stað með verðjöfnun. Ég segi það sem mína sannfæringu að það verði að eiga sér stað, þótt þessi orð kunni kannski að reyta af mér einhver atkvæði hér i Reykjavík.“ Eins og þessar orðréttu tilvitnanir sýna er ekki um að villast hvað Ólafur Jóhannesson á við. Hann vill verðjöfnun á hitaveitugjöld til þess að þeir, sem lægri gjöld borga nú standi undir hitunarkostnaði þeirra, sem við verri skilyrði búa að hluta til. Þetta felst í orðinu verðjöfnun. Tilraun Ólafs Jóhannessonar til að halda því fram i athugasemd hér að framan að hann eigi við hækkun olíustyrks með einhverjum öðrum hætti rennur út í sandinn, þegar ummæli hans sjálfs eru lesin. Ef hann átti við almenna skattlagningu á allan landslýð í þessu skyni hefði hann sagt það beint og þá hefði hann heldur ekki haft ástæðu til að óttast um atkvæði sín í Reykjavík. Það sagði hann hins vegar ekki og þess vegna er Ólafur Jóhannesson hrædd- ur eins og athugasemd hans sýnir. Það er athyglisvert, að Ólafur Jóhannesson segir í athugasemd sinni, að „sérstakur" skattur á Hita- veitu Reykjavíkur komi ekki til greina. Hvað felst í því? Væntanlega það að almennur skattur á hitaveit- ur almennt komi til greina. Ólafur Jóhannesson hefði átt að senda þessa athugasemd til málgagns síns, Tímans. Þar standa þau orð, sem hann gerir athugasemd við og skv. frásögn Tímans eru það orð hans sjálfs. Hann getur því ekki, eins og hann reynir, sannfært nokkurn mann um, að Morgunblaðið hafi reynt að snúa út úr orðum hans. Þvert á móti er það hann sjálfur, Ólafur Jóhannesson, sem er að reyna að snúa sig út úr því að hann talaði af sér fyrir kosningar. Verðjöfnun óhjákvæmi- leg HEI— Karólína Sigurjónsdóttir á Siglufirói. spurfti hvort Fram- sóknarflokkurinn mundi beita sér fyrir verftjöfnun á hitaveitu- gjöldum, en þau hefftu nú hækkaft um 150% á Siglufirfti á rúmu ári. ,.£g verft aft svara þessu persónulega fyrlr mig”, sagfti ólafur. „Ég er meft verftjöfnun, þótt kannski sé hættulegt fyrir mig sem frambjóftanda I Reykja- vik aft svara svo. En sannfæring mfn er ekki föl fyrir atkvæfti og þaft er min sannfæring aft verft-4 jöfnuná upphitunarkostnafti þurfi aft koma til '. r „FRÁ BARÁTTUNNI í Austurlandskjördæmi er helzt að segja, að hún hefur verið með hefðbundnum hætti. Við höldum fjórtán framboðsfundi, norðan frá Bakka- firði suður í Hof í Öræfum og höfum af þeim þegar lokið níu,“ sagði Sverrir Hermannsson fyrrverandi alþingis- maður og efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi í samtali við Mbl. „Ég verð þó að segja, að ég hef ekki áður orðið var við eins mikinn áhuga hjá fólki hér í þessi tæpu sautján ár sem ég hef verið hér í framboði og annað eins starf hefur aldrei verið lagt af mörkum af fólki eins og nú. Ennfremur er frá því að segja, að prófkjör okkar tókst með ágætum. Niðurstaðan hef- ur leitt til þess að listinn er sá sterkasti sem við höfum borið fram. Af sjálfum mér að segja var árangur minn í prófkjörinu ótrúlegur að því leyti hversu mikil samstaða virðist vera í kjördæminu og er ég ákaflega þakklátur fyrir þessa traustsyf- irlýsingu eftir þessa löngu veru mína og starf að þessum málum hér. Menn hér eru orðnir nokkuð bjartsýnir á að okkur takist að ná uppbótarmanni. í því sam- bandi má geta þess að árið 1974 þegar við fengum mesta at- kvæðamagn í kjördæminu frá upphafi vantaði ekki nema 77 atkvæði til þess að ná uppbót- arþingsæti. — Egill Jónsson sem skipar annað sæti listans er að mínum dómi mjög sterkt framboð. Hann er eini bóndinn sem er í kallfæri við þing- mennsku á öllu Austurlandi og hefði það einhvern tíma þótt frétt. Til liðs við okkur á framboðsfundi nú er kominn Tryggvi skipstjóri Gunnarsson frá Vopnafirði og eykur það afl okkar verulega, enda þraut- reyndur maður á sínu sviði. Ég hef lagt áherzlu á þá stórárás á verðbólguna, sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera, í tali mínu hér. Þetta er sams konar leiftursókn og gerð var árið 1960 og sannaði að hægt var að sýna fram á stórkostlegan árangur innan fárra mánaða. — Mín skoðun er sú, að ef þeirri ríkisstjórn sem nú tekur við tekst ekki að sýna fram á árangur innan hálfs árs, þá mun fólk snúa við henni baki. Ég er hins vegar sann- færður um það að fólk er nú tilbúið að leggja mikið að sér, ef við tekur stjórn, sem tekur til höndum með þeim hætti sem við sjálfstæðismenn boðum. Við Frá hinum geysifjölmenna fundl i Sigtúni i gærkvöldi, þar sem ungir sjálfstæðismenn kappræddu við unga alþýðubandalagsmenn. Stefna Sjálfstæðisflokksins var til umræðu mestan hluta fundarins, og stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins voru í áberandi meirihluta meðal fundarmanna. Ljósmynd Mbl. Kristján. Um 900 manns á kappræðufundi í gærkvöldi: Áberandi meirihluti fundar- manna studdi Sjálfstæðisflokkinn UM 900 manns komu á kapprariuf- und milli ungra sjálfstæðismanna og ungra alþýðubandalagsmanna i gærkvöldi, en fundurinn var ha- ldinn í veitingahúsinu Sigtúni við Suðurlandsbraut. Fundarefni var „Um hvað er kosið?“ Ríkti mikil stemmning á fundinum eins og ávallt þegar fyrrnefndir aðilar ha- Pétur Sæmundsen, bankastjóri: Vaxtastefna, sem ekki styðst við styrka stjóm er óframkvæmanleg ní'triTD c,-1_ u—_1.1 , • „ PÉTUR Sæmundsen, banka- stjóri, annar fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins i bankaráði Seðla- bankans sat hjá við atkvæða- greiðslu bankaráðsins í gær um vaxtahækkun hinn 1. desember næstkomandi. Pétur lét bóka, hvers vegna hann sæti hjá við afgreiðslu málsins, og er bókun- in svohljóðandi: „Með lögum um stjórn efna- hagsmála frá 10. apríl s.l. eru Seðlabankanum gefin fyrirmæli um að breyta vöxtum til sam- ræmis við verðbólgustig í áföng- um á þessu og næsta ári. Með vaxtabreytingum 1. júní og 1. september s.l. var þessum fyrir- mælum fylgt, og er tillaga um vaxtabreytingu 1. desember n.k., sem bankastjórnin hefur lagt fram, í beinu framhaldi af þessu, en þó lægri en efni stæðu til samkvæmt áliti hagfræðideildar Seðlabankans. Tilgangur áðurnefndra laga um stjórn efnahagsmála var að marka heildarstefnu til aðgerða gegn verðbólgu og til að stuðla að jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Nú, sjö mánuðum eftir setningu laganna, er ljóst að lítið hefur orðið úr framkvæmdum. Skýr- asta dæmið þar um er vaxandi og fyrirsjáanleg skuldasöfnun ríkissjóðs við Seðlabankann. Af- leiðingin er ört vaxandi verð- bólga undanfarna mánuði og þrátt fyrir þá hækkun vaxta sem nú er fyrirhuguð 1. desember n.k. verða raunvextir þá enn neikvæðari en þeir voru í maí s.l. Sú aðlögun vaxta að verðbólgu- stigi, sem lögin stefndu að, hefur því ekki átt sér stað og þá ekki heldur sú aukning sparnaðar og minnkun eftirspurnar eftir láns- fé, sem búist hafði verið við. Það er skoðun mín, að vaxta- stefna sem ekki styðst við styrka og samræmda stjórn allra meg- inþátta efnahagsmála, sé í raun óframkvæmanleg. Mun ég því sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.“ fa leitt saman hcsta sína á kappr- a'ðufundum. og stóð fundurinn fram undir miðnætti. Ræðumenn beggja flokka vörðu tíma sínum að langmestu leyti í að ræða stefnu Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum, og tillögur sjálf- stæðismanna um aðgerðir gegn verðbólgu. Þá var einnig rætt um viðskilnað vinstri stjórnarinnar sem hrökklaðist frá völdum í haust, og rætt var um svikin kosningaloforð Alþýðubandalagsins í kjaramálum, herstöðvarmálinu, gjaldeyrismálum og fleiri málaflokkum. Góður rómur var gerður að málfl- utningi ungra sjálfstæðismanna á fundinum, og voru stuðningsmann Sjálfstæðisflokksins í áberandi mei- rihluta meöal fundarmanna. Ný vegarteng- ing í Garðabæ léttir á umferðarþunga á Hafnarfjarðarvegi í GÆR voru formlega teknir í notkun tveir nýir vegir í Garðabæ, þ.e. Arnarnesvegur og Bæjar- braut. Arnarnesvegur tengist Hafnarfjarðarvegi á Arnarnes- hæð og Bæjarbraut Vífilsstaða- vegi. Með opnun þessara vega er vonast til að minnki til muna umferðarþungi á Hafnarfjarðar- vegi og Vífilsstaðavegi að sögn bæjarstjóra Garðabæjar, Jóns Gauta Jónssonar. Nánar verður sagt frá þessum nýju vegum í blaðinu á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.