Morgunblaðið - 28.11.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979
7
r
I Til hvers?
■ Tíminn heldur áfram
' eins og ekkert hafi í
| skorist í baráttu sinni
fyrir því aö hefja Ólaf
I Jóhannesson í „æöra
| veldi“. í blaöinu í g»r
mátti lesa eftirfarandi í
| „frétt“ á baksíðu Tfmans:
„Þaö er mikilvægt aö
I allir sem meta mannkosti
I og forystuhæfilega Ólafs
Jóhannessonar og
I treysta honum sem þjóö-
■ arleiðtoga geri sér grein
1 fyrir því aö eina leiöin til
| þess aö Ólafur geti veriö
. verulegt áhrifaafl sem
I ráöherra í næstu ríkis-
| stjórn er aö menn efli
Framsóknarflokkinn meö
| atkvæði sínu, þjóðarleiö-
■ togi þarf sterkan flokk."
Viö lestur þessarar
| klausu vakna margar
. spurningar. Sú fyrsta er,
> hvaöa ráöherraembætti
I er Tíminn aö tala um?
Ólafur hefur sjálfur sagt,
I aö Steingrímur Her-
I mannsson muni auðvitaö
' mynda ríkisstjórn í nafni
l__________________________
Framsóknarflokksins. Er
Tíminn aö boða þaö, að
ekki sé unnt aö „stóla á
hann Óla“ í þessu efni?
Og svo er það ágirnd
Ólafs á forsetaembætt-
inu, sem hlýtur aö setja
strik í reikning ofan-
greindra röksemda
Tímans. i Vísi á mánudag
sagði Ólafur: „Þaö hefur
ekki verið skoraö á mig
ennþá aö gefa kost á mér
til forsetakjörs, en ef þaö
verður gert mun ég taka
þann kostinn til alvar-
legrar íhugunar." Hvernig
getur Ólafur Jóhannes-
son orðið „verulegt
áhrifaafl sem ráöherra í
næstu ríki8stjórn“, þegar
hann er nú farinn aö
hvetja fylgispaka hjörö
sína til aö skora á sig til
forsetakjörs? Því veröur
ekki trúaö, aö framsókn-
armenn bregðist þessu
kalli „ókrýnds foringja"
síns. Þeir hljóta aó veróa
viö þeirri ósk Ólafs, sem
lýsir sér í þessum oröum
í Vísi: „Ég verö þingmaó-
ur áfram, auóvitað meö
þeim fyrirvara aö líf og
heilsa endist, nema ég
verði hafinn í æöra veldi."
í Tímanum hefur Ólafur
þegar verið „hafinn í
æöra veldi" og nú hefur
hann eftir engu aö bíða
nema 4. desember, þá
getur hann hafið sinn
næsta leik í sirkusi
stjórnmálanna.
En þeir, sem hafa í
hyggju að kjósa Fram-
sóknarflokkinn vegna Ól-
afs Jóhannessonar hljóta
aö spyrja sjálfa sig: Til
hvers? Þeir hljóta einnig
aó vona, aó hann hætti á
þingi, áöur en hann fær
hrundió í framkvæmd
áformum sínum um að
leggja 40% hitaveituskatt
á Reykvíkinga. Öruggasta
leiðin til að breyta stjórn-
málunum úr sirkus er
auðvitaö aó kjósa ekki
trúðana. „Þjóóarleiðtogi",
„ókrýndur foringi", „há-
karlaformaöur" og önnur
innantóm orö í „æóra
veldi“ skyggja auðvitaö á
þaó flugnasuö þegnanna
í hjálendunni sem enginn
heyrir lengur.
„Meö sæmi-
legri sam-
visku“?
Hér í blaðinu í gær var
rifjuð upp andstaóa
Morgunblaösins við þá
ákvörðun Benedikts
Gröndal að breyta útivist-
arreglum Bandaríkja-
manna á Keflavíkurflug-
velli utan varnarsvæöis-
ins. Eftirfarandi oró skulu
ítrekuó í því sambandi:
„Þar er komiö á jafnvægi
sem hindrar óþörf áhrif
varnarliðsmanna á ís-
lenskt þjóölíf — og hefur
gefist vel. Björgunarsveit
varnarliösins er að sjálf-
sögðu undan skilin, en
hún hefur unniö mörg
afrek í fórnfúsu þjónustu-
starfi".
Ekki eru allir sammála
því að þakka megi björg-
unarsveit varnarliösins
þaö mikla, sem hún hefur
vel gert. Fyrir skömmu
sat Svavar Gestsson
frambjóöandi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík
fyrir svörum á beinni línu
Vísis og var þá m.a.
spurður um neyðarþjón-
ustu varnarliósins og
ekki stóö á svarinu, en
þannig birtist það í Vísi:
„Ja, ég sé nú ekki
betur en landsmenn, ef
þeir ætla aó lifa sjálf-
stæöu llfi, verói að
minnsta kosti aö geta
bjargað sér sjálfir úr
lífsháska. Þannig að
menn geti lent í honum
meó sæmilegri samvisku
frekar en eiga þaö á
hættu aó herinn losi þá
úr honum."
Þá vita menn þaö. En
meó hvaða samvisku
mælti Svavar Gestsson
ofangreind orö? Svar
hans er ómerkilegt og til
marks um þann yfir-
drepsskap, sem einkenn-
ir allan málflutning
kommúnista um öryggi
lands og þjóðar. En þaó
ber einnig vott um vió-
leitni forystumanna
kommúnista til aó draga
með þvættingi fjööur yfir
svik þeirra vió þann mál-
staó, sem þeir eru kjörnir
til að framfylgja. Þeim
væri nær að venda sínu
kvæði í kross. Þá gætu
þeir talaö meö góðri
samvisku.
Vantar þig
eldhúsinnréttingu ?
Hefur þú athugað að nú er hagkvæmasti tíminn
til að panta eldhúsinnréttingu. Verðið lægst og
kjörinn best. Komið, sjáið sýnishorn á staðnum. Smiöjuvegi 44 Kópavogi
Látið teikna og gera föst verðtilboð ykkur að Símar 27511 og 71100.
kostnaðarlausu.
Athugið — Þegar pöntun er staðfest, stendur verðið.
Raunhæf verðtrygging í verðbólgunni.
Vatnsþéttur
krossviður
nýkominn
Þykktir: 4 — 6 — 9 — 12 — 15 og 18 mm, á mjög
hagstæöu verði.
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Til sölu
Volvo station érg. '77. Blár
að lit, ekinn aöeins 39 þús.
km. sérstaklega vel farinn
og góður bíll. Uppl. í síma
82201 og 72911 í dag og
næstu daga.
Vantarþig
hillur-hirslur
á lagerinn, verkstæöiö, í bílskúrinn eða
geymsluna
0DEXION
Landssmiðjan hefur ávalit fyrirliggjandi allar
gerðir af Dexion og Apton hillum. Uppistöðurnar
eru gataðar og hillurnar skrúfaðar á eða smellt í.
Það geturekki verið auðveldara.