Morgunblaðið - 28.11.1979, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979
Sigríður Kristinsdóttir, Eskifirði:
Prófkjör og kosningar
Nú er lokið þeirri undirbúnings-
vinnu í hönd farandi kosninga —
að raða nöfnum á framboðslista
flokkanna og birta þá. Eins og
augljóst hefur verið af frásögnum
blaða, útvarps og sjónvarps hefur
þessi vinna farið mjög mishljóð-
lega fram. Atök víða orðið allsnörp
svo valdið hafa klofningu lista og
mannskæðar hnútur flogið um
borð. Mestur hávaðinn hefur verið
umhverfis Sjálfstæðisflokkinn,
enda stærstur flokka hér, og þar af
leiðandi engir miðstjórnarvasar
svo stórir, að rúmi alla fylgismenn
hans, svo sem hinir flokkkarnir
hæla sér af.
Alltaf beinast augu manna frem-
ur að því, sem orkar tvímælis. Þess
vegna hefur lítið verið rætt um
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi í fjölmiðl-
um.
Hér var strax ákveðið af kjör-
dæmisráði að láta fara fram
prófkjör. Tókst það og framboðs-
listinn sá dagsins ljós án nokkurra
stórátaka. Margir eru þó enn and-
stæðingar prófkjörs og eru margar
ástæður tilfærðar, t.d. að of fáir
vilji gefa kost á sér til prófkjörs.
Þátttaka okkar Austfirðinga sýnir
haldleysi þessarar tilgátu. Þá hefur
verið látið að því liggja, að flokk-
arnir reyni að hafa áhrif á prófkjör
hver hjá öðrum í illum tilgangi.
Þetta var einnig hrakið. Hér kom
ekki í ljós nein óeðlileg þátttaka.
Þá er og sagt, að aðalandstaðan
SINDRAÆvSTÁLHF
Fyrirliggjandi í birgöastöö
Bitajárn
Allar algengar stæröir
U.N.P. H.E.B. I.P.E.
I | H I
Borgartúni 31 sími27222
gegn prófkjöri komi frá þeim, sem
búnir séu að krækja sér í nógu
þægilegt sæti og vilja sitja þar til
dauðadags, en eru ekki nógu vissir
um lýðhylli sína. Einnig þessi
tilgáta fékk skell hér í Austur-
landskjördæmi. Sverrir Her-
mannsson sem hefur verið efsti
maður listans um árabil, fékk yfir
85% atkvæða og stendur því mun
sterkari eftir en áður, nú veit hann,
að yfirgnæfandi meirihluti kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins í Austur-
landskjördæmi styður hann sjálf-
viljugur.
Ef við hins vegar viljum spara
okkur þá vinnu og þann kostnað,
sem óhjákvæmilega fylgir próf-
kjöri og leggja það niður með öllu
þá má það með því að raða
frambjóðendum eftir stafrófsröð á
alla framboðslistana og láta kjós-
endum eftir að númera þá við
kjörborðið. Með því er komið í veg
fyrir, að aðrir en stuðningsmenn
flokkanna hafi áhrif á röðunina,
kjósendur fá sjálfir að taka þátt í
uppstillingunni og þá er um leið
hrakin sú lífseiga tilgáta, að efstu
menn listanna hverju sinni séu
pólitískar raggeitur.
Ég vil, um leið og ég þakka
Sigríður Kristinsdóttir
prófkjörinu það traust, sem þeir
báru til mín, lýsa ánægju minni
með prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Austurlandskjördæmi. Ég tel, að
þau vinnubrögð hafi verið svo til
fyrirmyndar, að vert sé að vekja á
þeim athygli í yfirstandandi kosn-
ingabaráttu. Styðjum Sjálfstæðis-
flokkinn til sigurs.
Eskifirði 13. nóv. 1979.
mínum ágætu stuðningsmönnum í Sigriður Kristinsdóttir
Forhlið og bakhlið Snorrapeningsins.
Minnispeningur
Snorra kominn út
sjálfar
jólaundirbúnúigurimi hefet
Eru jólin vandamál á þínu heimili?
Ertu ef til vill ein þeirra, sem
kappkostar aó hafa heimiliö hreint
og fallegt, áður en jólahátíðin
gengur í garð?
fallegum Kópallitum. Með Kópal
sparast ótrúlega mikið erfiði - og
heimilið verður sem nýtt, þegar
sjálfur jólaundirbúningurinn
Þá ert þú sennilega líka ein þeirra
sem leggja sig alla fram viö
hreinsun og hreingerningar í jóla-
mánuðinum og sennilega ein
þeirra, sem er alveg örmagna,
þegar sjálfur jólaundirbúningur-
inn hefst - og svo geturður ekki
notið sjálfrar jólahátíðarinnar fyrir
þreytu!
Við leggjum til, að þú leysir þetta
vandamál með því að mála - já,
mála íbúöina með björtum og
Jólaánægjan verðurtvöföld, þegar
þú átt þess kost að njóta hennar
án streytu og strengja.
képal
fyrirjól
málninghlf
ÚT ER kominn minnispeningur i
tilefni átta aldar minningar
Snorra Sturlusonar. Peningur-
inn sem er 50 mm i þvermál er
mjög vandaður að öllum frágangi
og glæsilegur útlits.
A framhlið er vangamynd af
Snorra sem gerð er eftir fyrir-
mynd styttu Gustavs Vigelands,
er Norðmenn reistu í Reykholti. A
bakhlið er upphaf Heimskringlu,
eins kunnasta ritverks Snorra.
Þröstur Magnússon, teiknari
hannaði peninginn. Upplag þessa
penings er mjög takmarkað, eða
aðeins 500 brons og 300 silfur
925/1000. Hver peningur er núm-
eraður á kanti og einnig fylgir
númerað upprunaskírteini, þar
sem fram koma allar helstu upp-
lýsingar um peninginn og einnig
stutt æviágrip Snorra, ritað af
ólafi Halldórssyni, handritafræð-
ingi. Peningarnir eru afhentir í
vandaðri öskju og kostar brons-
peningurinn kr. 15.000 en silfur-
peningurinn kr. 39.500, einnig er
hægt að fá peningana saman í
setti á kr. 54.500. Minnispeningur-
inn er sleginn hjá ÍS-SPOR H/F
sem einnig gefur peninginn út.
Stjórnarformaður IS-SPORS er
Konráð Axelsson.
Þröstur Magnússon við teikn-
ingar sinar af Snorrapeningnum.