Morgunblaðið - 28.11.1979, Page 17

Morgunblaðið - 28.11.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 17 1. Öllum ætti að vera ljóst, að nú er í það óefni komið, að ekki er nema um tvennt að velja — aðeins tvennt. Annað hvort verður þjóð vorri að lærast að stjórna hag sínum af meiri festu og viti en orðið hefur — eða svo hlýtur að fara að ábyrgðarlitlir þrýstihópar, þrjózkufullir lýðskrumarar og önnur óheillaöfl sjái svo um að áfram stefni til vaxandi ófarnaðar og smánar — sem engu verði spáð um hvar enda muni. Annaðhvort verða mann- dómsmestu og vitrustu for- ustukraftar að bera gæfu til að leiða oss út úr ógöngunum — eða þá að allt verður látið halda áfram með svipuðum hætti og verið hefur, óðaverð- bólgan geysist með óstöðvandi hraða, samkvæmt lögmáli vítahringsins, með öllum áhrifum hennar á þjóðarhag, efnalegan, siðlegan og andleg- an. Allt hefur þetta verið áður sagt með ljósum rökum, og oft svo skilmerkilega að vart verð- ur betur gert — en kannski fátt síðustu daga öllu líklegra almenningi til skilnings en grein Davíðs Schevings Thorsteinssonar um þennan vítahring óðaverðbólgunnar, sem segja má að verið hafi stjórnmálasaga landsins á síðustu tímum. 2. En svo má lengi illu venjast að gott þyki. Fæst þj óðin til að skilja hve mikið sé í húfi að vel takist um algera stefnu- breytingu? Það sakar ekki að rifjuð sé upp alvarleg aðvörun, sem þjóð vorri nýlega barst frá einu þeirra landa, sem stjórn- að er svo að til fyrirmyndar má teljast. Stundum er tekið hvað mest mark á því sem hæfustu menn útlendir segja öfgalaust og af heilum hug um hag og horfur á íslandi. Fyrir röskum mánuði var staddur hér í boði viðskiptadeildar Háskóla íslands fjármálaráð- herra Hamborgar og fyrrver- andi viðskiptamálaráðherra Þýzkalands, dr. Wilhelm Nöll- ing, sósíaldemókrati, náinn samherji og flokksbróðir kanslarans Helmut Schmidts. Blaðamaður hafði tal af hon- um um ástandið á íslandi og hann dró ekki dul á undrun sína — og skelfingu. Það er vel þess virði að orð hans séu ítrekuð, og verði lesin af allri þjóðinni: „Af stuttum kynnum mínum af landi og þjóð er ég sann- færður um að það sem veldur hinum þungu búsifjum í efna- hagsmálum landins er hversu rígbundnir þið eruð í vísitölu- kerfi. Vísitölur af öllum gerð- um eru eitur í mínum beinum. Allar ytri aðstæður eru eins og þær geta bezt orðið. Þið flytjið meira út á hvert mannsbarn en nokkur önnur þjóð, viðskiptajöfnuður ykkar er mjög góður, þjóðarfram- leiðslan er mikil... Það gefur auga leið, að vandamálið er hjá landsmönnum sjálfum, það eru ekki eldsneytishækk- anir eða aðrar verðhækkanir erlendis sem þessari óáran valda." Ráðherrann sagði, að það sem komið hefði sér mest á óvart væri „hversu lífsaf- koma landsmanna virtist góð á sama tíma og verðbólgu- ófreskjan herjar eins og raun ber vitni um.“ „Það, sem þið þurfið er góður ráðgjafi til þess að taka efnahagsmál landsins til gagngerrar end- urskoðunar, að öðrum kosti er hætta á að illa fari. Þessi ráðgjafi verður að vera alveg laus við öll afskipti þrýstihópa og hafa óskorað vald til þess að framkvæma það, sem hann telur vænlegt. Það gengur aldrei til langframa að vísitöl- ur eða þrýstihópar stjórni efnahagsmálum heillar þjóð- ar.“ (Morgunblaðið 25. okt. 1979). Hinn þýzki gestur Háskól- ans forðaðist auðvitað um- mæli, sem túlka mætti sem bein afskipti af íslenzkum stjórnmálum — en gat þó ekki orða bundizt um það, sem við blasti: Blómlegt efnahagslíf duglegrar þjóðar — en jafn- framt hættu á að illa fari ef forsprökkum þrýstihópa og öðrum misvitrum leiðtogum héldist uppi þegar til lengdar léti að hegða sér eins og óþekkir krakkar. (Þannig hugsaði hann, þótt orðað væri vægilegar). Hinn þýzki gestur talaði um ótta við að illa kynni að fara. Orð hans hefðu eins vel mátt vera á þá leið, að hann væri sannfærður um að illa hlyti að fara — ef ekki íslenzka þjóðin sæi að sér. Enginn dregur í efa að með sameiginlegu átaki hæfustu manna á sviði fjármála og stjórnmála myndi tiltölulega auðgert að stjórna voru litla þjóðfélagi af ábyrgð og viti — ef slíkir menn fengju að ráða. En fá þeir að ráða — og áður en verður um seinan? Svo er að sjá sem vér séum enn þrátt fyrir allt taldir vera í hópi ráðdeildarsamra þjóða — og skuldum þó í útlöndum að nýjasta mati 1,7 milljónir króna á hvert mannsbarn. Og hætt er við að mörgum þyki uggvænlegar fleiri háar tölur sem nú heyrast. Á hvaða leið er ísland? Ég man að Jón Þorláksson, þá fjármálaráðherra, hafði gengið frá lántöku í Englandi og sagði: „Það er gaman að geta tekið lán handa íslandi með mun lægri vöxtum en talsvert stærri ríki eiga sam- tímis kost á. Við njótum þess að vera eitt af Norðurlöndum — ein þeirra þjóða, sem bezt er treyst til að kunna fótum sínum forráð í viðskiptum.“ Löngu síðar var ég með öðrum fulltrúum á þingi Sameinuðu þjóðanna í boði hjá voldugum bankastjóra í New York, sem sagði við mig: „Eitt af því fyrsta, sem ég vissi um banka- mál, var að Island er eitt af þeim löndum, sem alltaf stend- ur í skilum, og hægt er að treysta." Það má vera að enn sé ástæðulaust að óttast að til Kristján Albertsson: Unn oss að vitkast og þroskast Hannes Hafstein þess komi að þjóð vor glati fyrra áliti og trausti af hálfu viðskiptaþjóða og peninga- stofnana umheimsins — og vandræði og tjón hljótist af til langframa. 3. Nú er boðuð leiftursókn gegn þeirri rosalegu verðbólgu sem mest hefur orðið landinu til skammar og skaða. Öðrum er þó ríkara í hug að aðgerðir kosti sem minnst óþægindi, og finnst sönnu nær að tala um leiftursókn gegn hagsmunum almennings. Ég skal ekki blanda mér í deilur af þeim toga. Þó má minna á að ekki muni einatt mannvonsku um að kenna ef svíður undan læknisaðgerð, jafnvel um allan líkamann. Frambjóðandi, sem á í vændum öruggt þingsæti, lét nýlega svo um mælt að hjarta þess af stjórnmálaflokkunum, sem um langt skeið hefur verið langsamlega þeirra stærstur, myndi vera hjá sambandi vinnuveitenda. Ég vona að það hjarta sé líka hjá vinnuveit- endum ekki síður en hjá öðrum landsmönnum, en að öðru leyti getur þessi fullyrðing ekki verið rétt. Hjarta alls almenn- ings hlýtur auðvitað að vera hjá öllum almenningi — annað væri gersamlega óhugsandi. Hinu má ekki gleyma, að fleira þarf að vera á réttum stað en hjörtu manna — og því fremur ef ráða skal fram úr miklum og háskalegum vanda. 4. Gengi íslensku krónunnar hrynur óðfluga, eða er látið „síga“, eins og kallað er á penu máli. (Þegar ég kom heim seint í júlí kostaði franski frankinn 80 ísl. krónur, en nú nærri 95 krónur). Allt verðlag hefur á sama tíma hækkað jafnt og þétt. Allt er líkt og á floti í þessu óðaverðbólguflóði, ekkert fast að halda sér við í upplausn og óreiðu. Og mönnum er löngu ljóst að þetta stöðuga „sig“, sem líkt og læsir sig um allt fjárhagskerfi landsins muni nokkru valda um margs konar „sig“ í öðrum efnum, bæði siðjegs og vitsmunalegs eðlis. Ég skal nefna dæmi um augljós merki þess konar „sigs“, og einmitt frá síðustu tímum. Eitt af öllum löndum hins kúgaða heims austursins held- ur Austur-Þýzkaland þegnum sínum í varðhaldi handan rammgerðra múra og há- reistra gaddavírsgirðinga meðfram landamærum, sem grimmir hundar og vopnaðir verðir gæta dag og nótt — lífið murkað úr fólki, sem reynir að bjarga sér á flótta inn í hinn frjálsa heim vestursins. Einn af búhnykkum Austur-Þýzka- lands er að hneppa saklaust fólk í þrældóm, menn sem ekki hafa annað fyrir sér gert en að vera ekki aðdáendur stjórnar- fars þar í landi — og gera sér þetta ógæfusama fólk að fé- þúfu. Vestur-Þjóðverjar hafa séð aumur á þessum föngum og boðizt til að leysa þúsundir þeirra úr ánauð gegn borgun fyrir hvern einstakan — og Áustur-Þýzkaland ginið yfir þessum blóðpeningum. Stjórn- völd Vestur-Þýzkalands hafa nýlega skýrt frá því, að frá árinu 1963 hafi greiðslur fyrir 16.400 fanga frá Austur- Þýzkalandi numið sem svarar 230 milljörðum íslenzkra króna. í Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur at- hæfi fangasölu-yfirvalda verið kallað „20. aldar þrælasala". En nú kemur á daginn að tekið er að nota doktorsritgerð íslenzks manns, ætlaða til að geðjast austur-þýzkum próf- essorum — sem kennslubók í félagsfræði handa einum af meiri háttar skólum íslenzka ríkisins! Birtar hafa verið glefsur úr þessari ritgerð, þar sem sagt er að leikið hafi verið á fulltrúa íslenzkrar „borgara- stéttar og jafnaðarmanna" við gerð hervarnarsamnings við Bandaríkin; talað um Banda- ríkjamenn og þeirra „fulltrúa hérlendis“; sagt að „að baki þessum herverndarsamningi lágu fyrst og fremst hagsmun- ir Bandaríkjanna" — og annað í svipuðum dúr. Kennari fjöl- brautaskólans í félagsfræði hefur lagt sig niður við að þýða þessa ritgerð á íslenzku og þar með komið henni á framfæri. Og skólameistari hefur lagt blessun sína yfir þessa kennslu í félagsfræði — en afsakar þó ósvífnar og lúalegar staðhæf- ingar doktorsefnisins í blaða- viðtali, með því að ritgerð hans eigi að verja við austur-þýzkan háskóla og höfundur hennar viti „hvað fellur í kramið hjá prófessorum sínum". Er svo helzt að heyra sem þá skipti minna máli hvað kennt verður íslenzkum nemendum. Þegar slíkt vitnast, og kunn- ir skólamenn eru við riðnir, verður ekki öðru um kennt en ískyggilegu „sigi“. Ekki getur menntamála- ráðuneytið látið skólamönnum þolast að halda heimskulegum pólitískum áróðri að nemend- um í skólum landsins. Ekki getur þolast að kennsla íslenzkra skóla um félagsfræði og mannréttindi beri með sér að hún hafi verið falin læri- sveini austur-þýzkra fræðara, enda talin passa í það „kram“ af skólameistara. Nú er þess að bíða hvernig íslenzk stjórnvöld muni bregð- ast við þessu hneyksli. 5. Þegar erfiðlega horfir í lífi þjóðar og mikið liggur við að úr rætist, er eðlilegt að þess sé minnst, að oft hafa orðið snögg umskipti til hins betra þegar öflug forusta tók til sinna ráða. Og eins er hollt að muna, að sá vandi sem oss er nú á höndum, er þó lítilræði eitt í samanburði við þá miklu margflóknari og illkynjaðri erfiðleika, sem leiðtogar hinna risavöxnu mannfélaga hafa orðið að glíma við til sigurs. í kreppunni miklu voru fjár- mál Bandaríkjanna komin í það óefni undir lok stjórnarára Hoovers forseta, að meiri og minni fyritæki hrundu unn- vörpum um land allt, fjöldi banka komst í greiðsluþrot og urðu að loka — allt virtist riða til falls á hyldýpisbarmi; og fæstir sáu hvernig því yrði forðað. Þá tók Franklin Roosevelt við völdum snemma a ári 1933, myndaði um sig forustusveit vitrustu og kjarkmestu manna, sinn fræga „brain trust“, tók á skemmsta tíma þær ákvarðanir, sem sýnt þótti að einar dygðu, talaði vikulega langt mál í útvarp við þjóð sína, og bað hana að taka á einurð og stillingu, beygja sig undir hverja nauðsyn, sem skyldan byði — og treysta sjálfri sér. Og þjóðin hlýddi forseta sínum. Það tók hann hundrað daga að skapa nýtt ástand. Eftir það þurfti enginn að bera kvíðboga fyrir fjárhagslegri framtíð Bandaríkjanna. Nú myndi mörgum þykja gott að eitthvað svipað gæti hugsanlega gerst á íslandi. Ekki mun skorta góðan vilja góðra manna úr öllum flokk- um — ef við berum gæfu til sameiginlegs átaks. En því meiri von er til að sú verði raunin, því betur sem er hugfest, að það getur farið illa. K.A. Það getur farið illa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.