Morgunblaðið - 28.11.1979, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.11.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 23 SALOME Þorkelsdóttir, þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokks- ins i Reykjaneskjördæmi, heim- sótti í gær fyrirtæki í Mosfells- sveit. Hún skoðaði hið nýja fugla- sláturhús að Varmá, ísfugl, og rabbaði við starfsmenn Bygg- ungs. „Þetta glæsilega fuglaslát- urhús sýnir frjálst framtak í verki og það er einmitt að svona uppbyggingu, sem við viljum stuðla — að örva einstaklinginn til dáða," sagði Salome á fundi með starfsfólki ísfugls. Fjörlegar og skemmtilegar um- ræður fóru fram í kaffistofu starfsfólks eftir að Salome hafði kynnt sér sláturhúsið. Salome gerði grein fyrir stefnu Sjálfstæð- isflokksins. Margar fyrirspurnir bárust og skemmti fólk sér hið bezta. Og í kaffistofu ísfugls komst Salome að þvi að hún átti þar frændfólk — þau Magneu Hannesdóttur, Kristínu Hannes- dóttur og Loga Jónsson, sem öll eru skyld Salome. Hið nýja fugla- sláturhús að Varmá er mjög fullkomið og nú er unnið að fullnaðarfrágangi hússins. Að lokinni velheppnaðri heim- sókn í Isfugl, þar sem góður rómur var gerður að máli Salome, heim- sótti hún byggingarmenn Bygg- ungs í Mosfellssveit. Á vegum Byggungs er nú unnið að byggingu 71 raðhúss í sveitinni og lýsir það glögglega miklum vexti í byggð- arlaginu. „Við lofum ekki gulli og Meðal frænda — Kristin Hannesdóttir, Saiome, Logi Jónsson og Magnea Hannesdóttir. grænum skógum — við vitum að vandamálin eru gífurleg. En við viljum takast á við þau. Við höfum sett fram stefnuskrá og munum standa og falla með henni,“ sagði Salome á fundi með starfs- mönnum. „Það er annaðhvort að kjósa leið út úr verðbólgunni — kjósa Sjálfstæðisflokkinn — eða vinstri flokkana og áframhald óðaverðbólgu,“ sagði hún enn- fremur. Hún svaraði meðal annars fyrirspurnum um stefnu Sjálf- stæðisflokksins í húsnæðismálum, um aukna ábyrgð sveitarfélaga, minnkandi ríkisumsvif, stefnu Sjálfstæðisflokksins í heilbrigð- ismálum auk fleiri málaflokka. Rétt eins og í Isfugli var gerður góður rómur að máli Salome og klöppuðu starfsmenn henni lof í lófa þegar hún hélt á braut. hins vegar. Starfsmenn ríkisfyr- irtækja eru þrúgaðir af því að geta aldrei gert nokkurn skapaðan hlut án þess að fara bónleiðina í fjármálaráðuneytið, engar nýj- ungar eða rekstrarhagkvæmni. Þetta hlýtur að leiða til þess að menn þreytast fyrr en síðar, annað er alls ekki átt við með þessari málsgrein, sem ég sjálfur ber reyndar enga ábyrgð á,“ sagði Friðrik í svari sínu. Þá var Friðrik að því spurður hvort hann gerði sér grein fyrir því hver fjárhagslegur skaði Landssmiðjunnar væri af því að rekinn væri sá áróður að annað- hvort ætti að leggja hana niður eða selja. Og hvort tilgangurinn með þessum áróðri væri að valda ríkisfyrirtækjum fjárhagslegu tjóni. — „Það er auðvitað út í hött að meining með þessum umræðum sé að valda fyrirtækinu tjóni, hins vegar tel ég mjög eðlilegt að umræða fari fram um hluti þar sem mismunandi sjónarmið eru á lofti. Það er til að mynda ekki í slæmum tilgangi sem vinstri menn ræða um að eðlilegt væri að sameina olíufélögin og sameina eigi ríkisbanka og svo framvegis, þetta er aðeins gert til þess að skapa heilbrigða umræðu um svona mál,“ sagði Friðrik í svari sínu. Alyktun samstarfsnefndar Landssmiðjunnar: Vítavert ábyrgðarleysi að gera 80 manna viimu- stað að pólitísku bitbeini í UPPHAFI fundar Friðriks Sophussonar fyrrverandi alþing- ismanns og frambjóðanda Sjálf- stæðisflokksins með starfs- mönnum Landssmiðjunnar var lögð fram svohljóðandi ályktun Samstarfsnefndar Landssmiðj- unnar: „Vegna kafla í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins, þar sem lagt er til að ríkisfyrirtæki séu seld, og blaðaskrifa Friðriks Sophussonar og annarra sjálfstæðismanna þar að lútandi, vill Samstarfsnefndin taka fram eftirfarandi: 1. I framangreindum umræðum sjálfstæðismanna kemur ekki fram að Landssmiðjan er rekin með hagnaði, þiggur ekki fé úr ríkissjóði og greiðir skatta sem nema í ár 28 milljónum króna. Með slagorðinu Báknið burt er almenningi gefið í skyn að hér sé um byrði á almennum skattgreið- endum að ræða, sem eru ósann- indi, sem gætu verið sprottin af tvennu, annars vegar vanþekkingu á rekstri fyrirtækisins, hins vegar vísvitandi blekkingu. 2. Ríkisvaldið hefur ekki beitt áhrifavaldi í Landssmiðjunni til þess að hafa áhrif á markaðsverð eða vísitölu. 3. Landssmiðjan á í harðri sam- keppni við önnur fyrirtæki og áróður fyrir því að leggja hana niður eða breyta eignarformi hennar veldur henni verulegu tjóni. 4. Við teljum það vera vítavert ábyrgðarleysi stjórnmálaflokks og stjórnmálamanna að gera 80 manna vinnustað, sem gegnir hlutverki sínu með prýði, að póli- tísku bitbeini á forsendum sem annaðhvort eru sprottnar af van- þekkingu eða vísvitandi ósannind- um. 5. Að ósk iðnaðarráðuneytisins hafa verið gerðar tillögur um úrbætur í húsnæðis- og starfsað- stöðu Landssmiðjunnar. Þær gera ráð fyrir uppbyggingu Lands- smiðjunnar á nýju athafnasvæði við Kleppsvík í Sundahöfn og er gert ráð fyrir möguleikum á sam- tengingu við fyrirhugaða skipa- verksstöð á sama stað. Ljóst er að ekkert einkaframtak ræður við verkefni af þessu tagi og það verður ekki framkvæmt nema til komi samvinna opinberra aðila. Umtalsverður hluti af viðgerðum íslenskra skipa fer fram erlendis, vegna skorts á aðstöðu til slíkra viðgerða hérlendis. Samstarfs- nefndin telur uppbyggingu slíkra fyrirtækja, sem að framan greinir, þjóðhagslega hagkvæma og leggur áherslu á að mótaðri stefnu iðnað- arráðuneytisins verði fylgt og hrint í framkvæmd." Ahugamenn stof na mál- fræðifélag ÁHUGAMENN um málfræði hafa í hyggju að stofna til félags sem hafi það markmið að efla fræðslu hér á landi um íslenska og almenna málfræði og stuðla að rannsóknum á íslensku máli. Félaginu er ætlað að gangast fyrir fræðslufundum um málfræði- leg efni og annast útgáfu tímarits um íslenskt mál. Hugmyndin er að tímaritið komi út einu sinni á ári, og er fyrsta bindi þess, sem er jafnframt afmælisrit, helgað Ásgeiri Blöndal Magnússyni sjötugum, nú í prentun. Ætlunin er að félagið verði opið öllum áhugamönnum um málfræði og íslenska tungu, og eru þeir sem áhuga hafa á þátttöku í félaginu hvattir til að koma á stofnfund þess, sem haldinn verður laugardaginn 1. desember kl. 13 í stofu 423 í Árnagarði við Suðurgötu. Fréttatilkynning. Höfum fyrirliggjandi olíu- sigti í sjálfsskiftingar. Skiftum á staðnum. J. SVEINSSON & CO. Hverfisgötu 116 — Reykjavík. Lærið vélritun Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 29. nóvem- ber. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13. Vélritunarskalinn Suðurlandsbraut 20 Utankjön>taðak(Miirig Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, símar 39790, 39788, 39789. Sjálfstæðisfólk, vinsamlegast látið skrif- stofuna vita um alla kjósendur, sem ekki eru heima á kjördegi. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá. Utankjörstaöakosning fer fram í Miöbæjar- skólanum alla daga 10—12, 14—18 og 20—22 nema sunnudaga 14—18. SJALFBOÐAUÐA VANTAR Okkur vantar sjálfboðaliða 15 ára og eldri til starfa um helgina, viö kosn- ingagetraunina. Allt vinnuframlag — til lengri eöa skemmri tíma er vel þegiö. Sjálfboöaliöar eru beönir aö gefa sig fram viö skrifstofur félagsins aö Nóa- túni 21 eöa Öldugötu 4 í síöasta lagi n.k. föstudag. + RAUÐI KROSS ÍSLANDS NÓATÚNI 21 REYKJAVÍK SÍMI: 26722 EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU ýöingu r. \ í góöu' kr. bandi-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.