Morgunblaðið - 28.11.1979, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979
Valur og Víkingur leiða saman hesta sína
Ráðast úrslitin í kvöld?
í KVÖLD kl. 19.00 mætast i
Laugardalshöllinni Víkingur og
Valur i fyrri leik liðanna i 1.
deild. Lið Vikings er nú i efsta
sæti i 1. deildinni ásamt FH en
það eru einu liðin i 1. deild sem
ekki hafa tapað stigi eftir þrjár
umferðir. Valsmenn mega illa við
þvi að tapa tveimur stigum i
kvöld ætli þeir sér að verja
íslandsmeistaratitilinn. Eins og
fram kemur hér á eftir i spjalli
við þjálfara liðanna. eru bæði
liðin i mjög góðri æfingu um
þessar mundir. Valsmenn munu
halda utan á morgun, fimmtu-
dag, til Bretlands þar sem þeir
mæta enska liðinu Brentwood í
London um helgina. Og Víkingar
leika i Sviþjóð innan skamms.
Valur hefur hamskipti
Lið Vals mun mæta til leiks í
alveg nýjum búningum. Þeir hafa
að undanförnu leikið í Hummel-
búningum en leika nú í Adidas frá
toppi til táar. Þá mun Stefán
Halldórsson sem verið hefur
meiddur að undanförnu leika með
liðinu að nýju.
Páll leikur sinn 300. leik
Páll Björgvinsson, sá snjalli
leikmaður, mun leika sinn 300.
meistaraflokksleik í kvöld fyrir
Víking. Páll hefur mörg undanfar-
in ár verið einn af burðarásum
Víkingsiiðsins og er nú leikreynd-
asti maður þess. Spurningin er
hvort honum tekst að leiða liðið til
sigurs í kvöld.
Hörkuleikir
Jafnan þegar Víkingur og Valur
mætast sýna liðin mjög góðan
handknattleik. Og leikir þeirra
bjóða upp á hraða, hörku og
spennu. Handknattleiksunnendur
ættu því að fá eitthvað fyrir snúð
sinn í höllinni í kvöld. Rétt er að
benda fólki á að mæta tímanlega
til að forðast þrengsli, en leikur-
inn hefst kl. 19.00 eins og áður
sagði. Landsliðsþjálfarinn Jóhann
Ingi verður kynnir. — þr.
m'
• Verður Hilmar Björnsson
þjálfari Vals svona brosmildur
eftir leikinn i kvöld?
Nú fara veður- og akstursskilyrði að gerast ótrygg,að
íslenskum hætti, svo ekki sé meira sagt.
Því er bæði nauðsynlegt og tímabært fyrir bifreiðaeigendur
að búa sig vel til hjólanna.
Goodyear snjóhjólbarðarnir eru hannaðir til þess að gefa
hámarks rásfestu og grip í umhleypingum vetrarins.
Þú ert vel búinn til hjólanna, vetrarlangt, með Goodyear.
FULLKOMIN HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Felgum, affelgum og neglum
TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING
Hjólbaróaþjónustan
Laugavegi 172,símar 28080, 21240
HEKLAHF
Hvað segja
þjálfararnir
Þjálfari Víkings, Bogdan:
— Við í Víkingi erum í góðri
æfingu þrátt fyrir þá leiðinlegu
staðreynd að við höfum misst
fjöldan allan af æfingatimum í
Laugardalshöllinni, þar sem hún
er svo oft upptekin á kvöldin
fyrir kappleiki. Liðið er þó þrátt
fyrir það i góðri likamlegri
æfingu og vonandi skortir leik-
menn ekki einbeitingu þegar á
inn á eftir að bjóða upp á spennu
og skemmtun fyrir áhorfendur.
Þjálfari Vals,
Hilmar Björnsson:
— Þetta verður skemmtilegur
leikur, og örugglega leikur fyrir
áhorfendur. Bæði liðin eru í mjög
góðri þjálfun núna þar sem þau
eru að fara í Evrópukeppni, og
þjálfun þeirra hefur miðast við
• Bogdan þjálfari Vikinga vill engu spé um úrslit og segir bæði liðin
eiga jafna möguleika á sigri.
hólminn verður komið. Þessi leik-
ur er afar þýðingarmikill. Mér
fundust leikmenn Víkings leika
frekar illa á móti Fram, þeir
einbeittu sér ekki eins og skyldi
og gerðu ekki eins og fyrir þá var
lagt. Valur og Víkingur eru með
bestu liðin í 1. deildinni i ár, en
geta hins vegar hæglega tapað
stigum til Fram, FH og Hauka.
Ég tel að möguleikar Vals og
Vikings séu jafnir til sigurs i
leiknum i kvöld. Það er ómögu-
legt að spá um úrslitin. Leikur-
að vera í sem bestri æfingu á
þessum tíma. Við munum alveg
örugglega veita Valsmönnum
harða keppni, við megum illa við
því að tapa öðrum tveimur stig-
um í mótinu svona i byrjun. Eg
treysti mér ekki til þess að spá
um úrslitin í leiknum, hann
verður allan tímann mjög jafn.
Best gæti ég trúað þvi að eitt til
tvö mörk skilji liðin i lokin. En
hver markatalan verður, það
verður bara að koma í ljós. — þr.
Nýtt sölumet
hja Getraunum
ENN nýtt sölumet í Getraunum. Vinningsupphæð kr. 513.500.-. í
146.700 raðir seldar. Þrjár konur 2. vinning komu fram 68 raðir
meðal fimm vinningshafa til 1. með 10 rétta sem gefur 16.100.-.
vinnings með 11 réttar lausnir.