Morgunblaðið - 28.11.1979, Qupperneq 32
'Sími á afgreiðslu:
83033
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979
á ritstjórn og skrifstofuí
10100
JH«r0unbInbib
Lög vinstrí stjórnarinnar um Framleiðsluráð:
Skömmtunarkerfi á
bændur um áramót
Framtöl bænda eru
þegar tekin að ber-
ast Framleiðsluráð-
inu — framtöl síð-
ustu 3ja ára. Þessir
bunkar eru nú á
borði í fundarher-
bergi Framleiðslu-
ráðsins í Bændahöll-
inni.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Framleiðsluráðið fær vald
til að ákveða framleiðslu-
magn hvers bónda í landinu
STJÓRNARFRUMVARP vinstri stjórnarinnar um sér-
stakt skömmtunarkerfi á framleiðslu bænda var sam-
þykkt á Alþingi 6. apríl síðastliðinn. Byggir þetta kerfi
á sérstakri kvótareglu, sem veitir Framleiðsluráði
landbúnaðarins heimild til algjörrar miðstýringar.
Ráðið hefur nú fengið lagaheimild til þess að ákveða,
hve mikið hver bóndi má framleiða af búvöru. Er gert
ráð fyrir því í lögunum, að bændur fái fullt verð fyrir
ákveðinn hluta framleiðslunnar, sem hefur verið
ákveðinn 80% af meðalframleiðslu 3ja síðustu ára, en
síðan myndi verðið stiglækka eftir því, sem magnið færi
umfram þetta mark.
Lögin, sem samþykkt voru á
Alþingi, heita Breyting á lögum
um Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins. í þeim er gert ráð fyrir, að sé
bú stærra en meðalbú, verði um
meiri skerðingu að ræða en á
meðalbúi og mun þá vanta meira
upp á fullt verð hjá slíkum
bændum en öðrum. Sett hefur
verið reglugerð með lögunum, en
hún er mjög víðtæk. Framkvæmd
laganna er nú til athugunar hjá
Framleiðsluráðinu, en stefnt er að
því, að unnið verði samkvæmt
lögunum frá og með næstu ára-
mótum. Skerðing búvöruverðsins
til bænda mun fara eftir því sem
markaður og útflutningsbætur
leyfa, lögin gera ekki ráð fyrir því,
að bændur geti fengið fullt verð af
útflutningsbótum, niðurgreiðslum
og sölunni hér innanlands umfram
áðurnefnd mörk.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
krefst þetta kerfi gífurlegra'r
vinnu og eftirlits, en Framleiðslu-
ráðið á að hafa umsjón með
framkvæmd þess. Fremur hljótt
hefur verið um lög þessi og áhrif
þeirra, og segja fróðir menn, að
fæstir hafi áttað sig á því, hve
umfangsmikið kerfi þetta er, sem
verið er að koma á fót og inn á
hvaöa brautir það leiðir bændur.
Um er að ræða skömmtunarkerfi
á búvöruframleiðslu. Talið er, að
bændur hafi t.d. alls ekki áttað sig
á kerfinu og þeir vita í raun ekki
hvað bíður þeirra. Meðan á með-
ferð þingsins stóð, komu alls
konar ábendingar og athugasemd-
ir við lögin, sem í upphafi voru
tiltölulega einföld. En eftir breyt-
ingar, sem á þeim voru gerðar,
urðu þau gífuriega flókin og er nú
rætt um, að þau séu mjög erfið í
framkvæmd, og nánast mjög illa
gerð.
Grundvöllur þess kvótafyrir-
komulags, sem nú er verið að
vinna að, eru skattframtöl síðustu
3ja ára. Aðferðin, að leggja skatt-
framtöl sem grundvöll að kvóta-
kerfinu, er í raun meingölluð, þar
sem framtölin eru alls ekki gerð í
þessum tilgangi, heldur til þess að
leggja á skatt. A skrifstofum úti á
landi er nú unnið að því að ljósrita
skattframtöl og eru þau send til
Framleiðsluráðsins, þar sem unn-
ið verður úr þeim.
Tillögur Seðlabankans til ríkisstjórnarinnar
Vextir á innláimm hækki um
4%, en um 2lh% á útlánum
Bankaráðið fyrsta siiuii á móti tillögu hankastjórnar,
en vextir hefðu þurft að hækka um 6 til 9V2 %
BANKASTJÓRN Seðlabankans
hefur lagt til við rikisstjórnina,
að innlánsvextir hækki um 4%,
en útlánsvextir um 2‘/2%. Þessi
tillaga var til umfjöllunar i
bankaráði Seðlabankans i gær,
sem er samráðsaðili, en ekki
ákvörðunaraðili í þessu máli og
gerðist það þá fyrsta sinni, að
meirihluti bankaráðs lagðist
gegn tillögu bankastjórnarinnar,
aðeins einn bankaráðsfulltrúi
var henni meðmæltur. Meirihlut-
inn, 3 fulltrúar vildu fresta
ákvörðun um vaxtahækkun og
einn fulltrúi sat hjá. Að mati
hagfræðideildar Seðlabankans
hefðu vextir þurft að hækka frá 6
til 9‘A% svo að ólafslögum yrði
fullnægt. Kjartan Jóhannsson,
bankamálaráðherra sagði i
gærkveldi, að hann dokaði nú
aðeins við eftir skýrslu banka-
stjóranna um ákvörðun þeirra.
Þegar hún lægi fyrir myndi
ríkisstjórnin fjalla um hana, og
væntanlega þá i dag.
Pétur Sæmundsen, annar full-
trúi Sjálfstæðisflokksins í banka-
ráðinu sat hjá við skoðanakönnun
í ráðinu og kvaðst gera það, vegna
þess að hann liti svo á að vaxta-
stefna, sem styddist ekki við
styrka og samræmda stjórn allra
meginþátta efnahagsmála væri í
raun óframkvæmanleg. Hinn full-
Verðjöfnunargjald á hitaveitu:
90 þúsund krónur á
fmun manna fjölskyldu
2ja milljarða álögur á höfuðborgarsvæðið á ári
VERÐ JÖFNUN ARG J ALD á
gjaldskrá Hitaveitu Reykja-
vikur, sem þyrfti að vera 40%
samkvæmt tillögum nefndar,
sem starfaði á vegum vinstri
stjórnarinnar, mundi nema 2
milljörðum króna eða rúmlega
90 þúsund krónum i aukin gjöld
á hverja 5 manna fjölskyldu á
orkusölusvæði Hitaveitu
Reykjavíkur.
Hjörleifur Guttormsson, orku-
ráðherra Alþýðubandalagsins í
fyrrverandi ríkisstjórn, skipaði
þessa nefnd, en eins og Morgun-
blaðið skýrði frá í gær, lýsti
Ólafur Jóhannesson, efsti maður
á framboðslista Framsóknar-
flokksins í Reykjavík því yfir á
„beinni línu“ Tímans, að hann
teldi verðjöfnun óhjákvæmilega.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, nemur þessi verð-
jöfnun, sem nefnd fyrrverandi
orkuráðherra komst að niður-
stöðu um, einni krónu á hverja
kílówattstund. Heildarsala Hita-
veitu Reykjavíkur á ári til
Reykvíkinga, Kópavogsbúa,
Hafnfirðinga og fleiri nemur um
2 gígawattstundum á ári. íbúar á
þessu orkuveitusvæði Hitaveitu
Reykjavíkur eru rúmlega 111 þús.
trúi Sjálfstæðisflokksins, Sverrir
Júlíusson, studdi tillögu banka-
stjórnarinnar, og taldi að hún
væri rétt mat á aðstæðum. Full-
trúi Alþýðubandalagsins í banka-
ráðinu, Ingi R. Helgason, formað-
ur ráðsins og fulltrúar Framsókn-
arflokksins, Geir Magnússon og
Eiríkur Tómasson vildu allir
fresta vaxtahækkuninni. Ingi leit
svo á, að ekki skipti máli hvernig
þeim áföngum yrði skipað fram til
ársloka 1980, að náð yrði mark-
miði laganna um stjórn efna-
hagsmála 0. fl. Eiríkur hafði þó þá
sérstöðu, að hann vildi frestun
aðeins til 31. desember 1979.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu
Seðlabankans, að bankaráðið sam-
þykkir ekki tillögur bankastjórn-
arinnar, sem nú er skipuð Davíð
ólafssyni og Guðmundi Hjartar-
syni, en dr. Jóhannes Nordal er í
leyfi. Á bankaráðsfundinum kom
m.a. fram, að Þjóðhagsstofnun
treysti sér ekki til að spá um
framvindu efnahagsmála og verð-
bólguhraða í ljósi þeirrar óvissu,
sem kosningarnar hefðu í för með
sér, en samkvæmt reglum á að
miða við slíka spá við ákvörðun
vaxtahækkunar, svo og þróunar
síðustu mánaða. Tillögur banka-
stjórnarinnar eru mjög varlega
ákveðnar og ná þær ekki því
marki, að neikvæðir raunvextir
verði hlutfallslega jafnháir og
þeir voru í maí síðastliðnum.
Tillögur seðlabankastjórnarinn-
ar verða nú sendar ríkisstjórn til
ákvörðunar og verður ákvörðun að
liggja fyrir í dag, eigi að vera unnt
að birta hana í Lögbirtingarblað-
inu fyrir mánaðamótin, en nýir
vextir eiga að taka gildi 1. des-
ember.