Morgunblaðið - 14.12.1979, Síða 9

Morgunblaðið - 14.12.1979, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 41 Ljósm. Mbl. ÖI.K.M. verulega á piltinn. Þetta sumar var eins og menntaskóli fyrir mig. Það var ekki einasta, að ég fengi að spreyta mig á erfiðu verki, heldur sá dr. Einar ólafur Sveinsson um útgáfuna. Hann vann þessa bók upp úr skissubókum séra Jónasar. Það var hrein unun að láta hann mennta sig því hann fræddi mig um svo margt varð- andi íslenzkuna og ritað mál. Satt að segja veit ég ekki, hvort ég hef nokkurn tímann upplifað annað eins sumar og sumarið 1934.“ Og Hafsteinn flettir bókinni hugsi. Og það svo, að ég er farinn að óttast, að ég hafi misst hann allan inn í þessa tímavél. — Hvenær gafstu út fyrstu bókina? Ég þarf að endurtaka spurninguna. Hvenær gafstu út fyrstu bókina, Hafsteinn? „Fyrstu bókina? Það var vorið áður en ég fór til Kaupmanna- hafnar." Ekki orð meir. Ætlar Einar Ólafur Sveinsson að eyði- leggja þetta samtal, eða hvað? — Til Kaupmannahafnar? Hvað varstu að gera til Kaup- mannahafnar? „Til Kaupmannahafnar? Ég fór þangað vorið 1939 á danska bók- iðnskólann." — Hvers vegna? „Mig langaði að leita mér fjöl- þættari menntunar í iðn minni." Og nú fer Hafsteinn, Guði sé lof, aftur í gang. „Það fór að brjótast í mér strax í iðnskólanum að láta prentverkið lönd og leið og fara alfarið í myndlist. Ég var í teiknitímum hjá Tryggva Magn- ússyni og Birni Björnssyni og þetta varð ákaflega sterkur þáttur í mér. En ég átti konu og mér hraus hugur við hungrinu, sem ég vissi að væri á næsta leiti, ef ég færi að sækja á brattann sem myndlistar- maður. Þó var ég síður en svo smeykur við það persónulega. En ég tók þá ákvörðun að nota myndlistina til að fullkomnæmitt prentverk og mér finnst satt að segja, að það hafi kannske heppn- ast að einhverju leyti. Ég átti enga peninga til að hafa til Hafnar. Þá datt mér í hug að gefa út bók og reyna að græða á henni. Eftir nokkra leit ákvað ég að stela hugmyndinni bak við danska heimilisdagbók. Þetta var svona bók, sem fólk færði inn í allan sinn heimiliskostnað. Ég bætti svo um betur og setti auglýsingu á hverja síðu. Veiztu hver safnaði auglýsingunum? Al- freð Andrésson, gamanleikari. Og hann var svo duglegur, að við höfðum nokkurn pening út úr þessu. Upp úr þessu urðum við Alfreð góðir vinir. Enda var hann fágætur maður. Ég kallaði útgáf- una Njál. í höfuðið á bóndanum á Bergþórshvoli. Það er margt sem sá maður hefur mátt þola eftir brennuna." Slegið saman í eina ölflösku „Nú, en ég fór til Kaupmanna- hafnar og í skólann. Þegar til kom, átti ég mjög auðvelt með að tileinka mér formkenningar skól- ans; þetta formskyn í hinni nýju prentlist, eins og formið var þá nefnt af forystumönnum hennar. Mér fannst það liggja mér í augum uppi. Það var eins og innbyggt í mig.“ — Hvaðan hafðirðu það? „Þetta bara bjó í mér. Annars held ég að myndlistin í mér sé frá langömmu minni, Guðbjörgu Eyj- ólfsdóttur. Hún kenndi heimasæt- um meðal annars hannyrðir, teiknaði sjálf öll munstur og týndi blóm og grös. Hún bjó til sín kennslugögn sjálf. Það má segja að svipað gerði ég í skólanum. Ég notaði nær ekkert af þeim kennslugögnum, sem lögð voru til, heldur bjó til mitt efni sjálfur, teiknaði, skar í dúk myndir og skreytigögn. Og meira en það. Þeir voru með bréfaskóla líka, tólf verkefni. A kvöldin dundaði ég við að leysa þau og um haustið lagði ég fyrir þá úrlausnir mínar, ekki bara tólf, heldur þrjár af hverri, samtals 36 úrlausnir. Ég man, hvað augun í þeim urðu stór, þegar ég skákaði þessari kvöld- vinnu fram á borðið. Allar úr- lausnirnar voru dæmdar ágætar. Og sumarvinnan mín í skólanum birtist svo öll eins og hún lagði sig í fagtímaritinu Det grafiske fag. Þetta gaf mér faglegt traust á sjálfan mig. Ég hef oft hugsað um það síðar, að þessi skóli hafi verið mér eins konar stökkpallur. Ég Hafsteinn Guð- mundsson flettir Þjóð- vinafélagsalmanakinu, sem heillaði hann ung- an í Gularási í Landeyj- um. fékk vissu um það að ég var á réttri braut og að mér var óhætt að miðla öðrum.“ — Þú hefur ekki gefið þér mikinn tíma til „hins ljúfa lífs“ í Kaupmannahöfn? „Blessaður vertu. Það var eng- inn peningur til. Ég man til dæmis eftir því, að við Stefán Jónsson arkitekt hittumst stundum. Og oft áttum við ekki meiri pening en það, að við urðum að slá saman í eina ölflösku." — Hvað tók svo við, þegar skólanum lauk? „Kennarar mínir réðu mig í Gutenberg hús án þess að ég minntist á það við þá. Það er svo merkilegt, að ég byrjaði þar sama mánaðardaginn og ég byrjaði í ísafold áður; 2. september. Nákvæmlega tíu árum síðar. En 2. september 1939 var líka dagurinn, sem Þjóðverjar réðust inn í Pólland. Innrásin olli mikl- um kvíða í Danmörku og þeir fóru strax að segja upp fólki í prentiðn- aðinum. Fjögur hundruð prentur- um sögðu þeir upp á einu bretti að kalla; fyrstu vikuna minnir mig. Ég fann það líka strax, að ég var litinn hornauga. Ég var útlending- ur og hafði vinnu meðan innlendir voru látnir hætta. Eftir mánuðinn var mér sagt upp. Þegar ég kom út úr Gutenberg hus að loknum síðasta vinnudegi, standa þá ekki tveir menn á tröppunum og svífa á mig. Þeir voru frá skólanum og sögðust vera búnir að útvega mér vinnu hjá F.E. Bording sem er stórt og gamalt prentverk í Kaupmanna- höfn. En nú ætlaði ég heim. Ég átti konu heima og allt í einu fannst mér einhvern veginn ekki ráðlegt að vera lengur að heiman eins og á stóð. Ég fór upp til F.E. Bording og þakkaði þeim elsku- legheitin. Mætti ég eiga ykkur að, ef ég kem aftur?, spurði ég. Þó það nú væri. Vertu velkominn, hvenær sem er, sögðu þeir. Ég náði svo í síðustu ferð Drottningarinnar til Islands. Það er svo ef til vill önnur saga, en varla hefði ég komið heim fyrst um sinn, ef stríðið hefði ekki brotizt út. Ég hafði í hyggju að vinna við prentverkið á daginn, en stunda skóla á kvöldin. En forlög- in hafa ætlað mér heim.“ — Hvað tók svo við hér heima? „Ég hélt áfram í ísafold og menntaði mig sem ég gat í mynd- listinni hjá þeim Jóhanni Briem, Finni Jónssyni og Þorvaldi Skúla- syni. Strax um haustið stofnaði ég til tilraunanámskeiðs fyrir setjara og fékk til þess húsnæði í Iðnskólan- um. Eftir þann vetur fékk skóla- stjórinn, Helgi H. Eiríksson, mig til þess að kenna fagteikningu í minni iðn. Það gerði ég svo í 20 ár.“ — Varstu lengi í ísafold? „Til 1942. Þá stofnaði ég prentsmiðjuna Hóla. Kristinn Andrésson hafði mikinn áhuga á stofnun prentverks fyrir Mál og menningu. Ég hygg að hann hafi talað við mig eftir ábendingu Stefáns Ögmundssonar prentara." — Af hverju? Varstu kommi? „Ég hef alla t.íð viljað styðja þann, sem mér i'innst þurfa hjálp- ar við eða vera hornreka í lífinu. Ef það er kommúnismi, hef ég vafalaust verið kommi. Hinn hrjáði á enn alla mína samúð. Annars vorum við Stefán góðir vinir á þessum árum. Nú, en ég sló til og tók tilboði Kristins. Ég var þó allkrumpinn, því mér fannst þetta í stórt ráðist og mig vantaði viðskiptalega kunnáttu. Mig langar að sýna þér tvennt, sem ég gerði á þessum Hólaárum mínum. Prentverk er í mínum augum list, mundu það. Hér sérðu nokkur titilblöð, sem ég téiknaði á einn bókaflokkinn og lét síðan setja upp í hendi. Þá voru rammar í tízku á titilblöðum, ef mikið þótti við þurfa, en voru að mínu áliti oft skelfing ósmekklega notaðir. Þetta varð 70 bóka flokkur og kom út í 7 ár og ég einsetti mér að hafa mismunandi ramma á öllum titil- blöðunum, svona til að sýna, hvernig væri þó hægt að nota ramma á smekklegri og marg- víslegri hátt. Sjálfur hafði ég annars ekkert dálæti á ramma- setningu og hef aldrei haft. En sjáðu þetta“. „Svo er hérna annar bókaflokk- ur, sem ég sá alveg um eins og hinn. Það er 25 ára afmælisútgáfa Máls og menningar. Hjá Hólum rissaði ég upp allar þær bækur, sem mér þótti akkur í. Þær skipta mörgum hundruðum. Og í prentsmiðjunni hafði ég ágætá starfsmenn, er lögðu sig fram um það að fara eftir tillögum mínum." Það er.út af fyrir sig merkilegt að fletta þessum bókum og heyra Hafstein Guðmundsson fjalla um útlit þeirra. Frómt frá sagt, þótt blaðamaður sé og þekki af eigin raun, hvað góð útlitsteikning hef- ur að segja, þá verð ég að viðurkenna að bækur hef ég fyrst og fremst lesið, en ekki skoðað. Hafsteinn hlær svolítið, þegar ég hef orð á þessu og segir mér eftirfarandi sögu: „Utgefandi nokkur, sem þótti hafa yfir meðallagi gott vit á texta, hafði neitað að gefa út ljóð eftir mann nokkurn. Ég sleppi nöfnunum af ásettu ráði. Þau hafa ekkert með söguna í þessu sam- hengi að gera. Ég tók mig svo til og gaf þessi ljóð út. Teiknaði bókina sjálfur. Skömmu síðar mætti ég hinum útgefandanum á götu og þá segir hann: Það er einkennilegt, Hafsteinn, að þetta eru allt önnur ljóð, sem þú gefur út, heldur en þau, sem ég las. Þakka þér fyrir góði, sagði ég. Af þessu má draga þann lærdóm, að það er nauðsynlegt að gera eitt- hvað fyrir texta með góðri útlits- teikningu. Það er listin að geta með prentlistinni lyft undir með tjáningu skáldsins. Þá hefur vel tekizt." Núllið er mitt tákn Ég tek eftir því, að mörg þeirra tölusettu eintaka, sem Hafsteinn á eru númer 0. Hvers vegna? „Núllið er symból fyrir mig. Þú veizt að ef ekkert stendur með því, þá þýðir það ekki neitt. Það fær gildi sitt af því sem með því stendur. Ég get ekki fengið betra tákn fyrir mig persónulega en núllið. Það er mjög algengt að bókasafn- arar bindi sig við ákveðna tölu. Sigurður Nordal safnaði sjöum og ég veit, að Tala Torfa Hjartarson- ar er ellefu. Þorsteinn heitinn Jósefsson og Magnús Kjaran söfn- uðu tölunni einn. Þeir bitust hart um það númer og hafði hvorugur betur." — Hvað varstu lengi með Hóla? „Til 1963. Þá fer ég að byggja mitt eigið prentverk; Prenthús Hafsteins Guðmundssonar. En ég var áfram hluthafi í Hólum og er enn. Svo seldi ég Hólum prenthús- ið í þeirri von að þeir fullkláruðu húsnæðið, en þar vantar tvo þriðju á ennþá. Hólar fluttu svo í prent- húsið og seldu húsnæði sitt í Þingholtinu. Af tilviljun keypti ég svo síðar það húsnæði." — Af hverju seldirðu prenthús- ið? Fórstu á hausinn? „Ekki vil ég viðurkenna það, nema það sé að fara á hausinn að selja sitt fyrirtæki. En það gekk ekki að vera sjálfur útgefandi og prenta um leið fyrir aðra, því ég lét sjálfan mig ævinlega sitja á hakanum. Ég snéri mér svo alveg að útgáfu, en hef jafnan ríslað mér við að sjá um útlit bóka fvrir aðra líka." SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.