Morgunblaðið - 14.12.1979, Page 29

Morgunblaðið - 14.12.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 61 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL 10— 11 FRÁ MÁNUDEGI n»i imáFivmro.vj- • Brauð handa hungruðum heimi „Mikið er talað um hörmung- ar úti í heimi. Hjálparstofnun kirkjunnar er með víðtæka söfn- unarstarfsemi til hjálpar hungr- uðum heimi og er það vel, en ég óttast að þetta lendi þó víða útundan að setja í baukana og koma þeim til skila, fólk hefur um svo margt að hugsa. En af hverju ekki að gera tiltölulega einfaldan hlut, sem skila mundi ríkulegum árangri? Því ekki að setja gjald á leikföng? Samanber gjald á eldspýtur og tappagjald á gosflöskur, sem rennur hvort tveggja til góðs málefnis hér innan lands. Setja má gjald á leikföng þannig að um leið og við kaupum þau til að gleðja okkar börn og barnabörn, sem í flestum tilfellum eru börn allsnægtanna, sem betur fer, þá séum við jafnframt að kaupa máltíð eða lyf handa bágstöddum börnum úti í heimi. Ég held að fólk borgaði gjarnan þessar aukakrónur með glöðu geði og þá kæmi þarna nokkuð öruggur tekjustofn fyrir þetta málefni. Guðgeir Sumarliðason, Bitru, Hraungerðishreppi.“ • Guðíræðinemar með morgun- bænir? Útvarpshlustandi: „Mér finnst ég hafa einhvern tíma séð eða heyrt þeirri hugmynd hreyft að guðfræðinemar gætu tekið að sér morgunbænir út- varpsins og öðlast þar með mikil- væga reynslu og undirbúning fyrir væntanlegt prestsstarf. Ég vil leyfa mér að taka undir þá hugmynd. Ekki er ég með því að segja, að prestarnir okkar standi illa í því stykki að annast morgunbænir, en það er nú einu sinni svo, að við útvarpshlustend- ur viljum gjarnan fá að heyra nýjar raddir og því er ekki úr vegi að taka upp örari skipti. Nú er skipt um umsjónarmann morgun- bæna mánaðarlega að ég held, en mætti ekki gera það viku- eða hálfsmánaðarlega og taka þá guð- fræðinema með í hópinn og hafa þá innan um og saman við. Með þátttöku í morgunbænum hljóta SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti í Sovétríkjunum í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Taimanovs, stórmeistara, og Vorotnikovs, sem hafði svart og átti leik. þeir að kynnast að nokkru því starfi sem fyrir þeim liggur vænt- anlega og ef ég man rétt tóku þeir að sér fyrir nokkrum árum lestur Passíusálmanna og gekk vel. Því hlóta þeir að geta komist vel frá því að sjá okkur fyrir morgunbæn- • Skattar og Kefla- víkursjónvarp Örn Ásmundsson: „Ekki hefur ástandið í þjóð- málunum hjá okkur farið mikið batnandi upp á síðkastið og finnst mér sem skattar og dýrtíð hafi aldrei verið meiri en nú er. Allt er að hækka, þar með talið áfengi, bensín hækkar á nokkurra vikna fresti liggur við og skattaáþjánin leggst sífellt þyngra á alla lands- menn hvort sem þeir hafa lágar tekjur eða háar. Nefna má, að tollar á sportvör- um eins og og skotvopnum og slíku eru gífurlega háir og finnst mér ekki ná nokkurri átt að þeir nemi um 100% eins og nú er. Og í framhaldi af því finnst mér rétt að árétta að bændur eru fullað- gangsharðir í að banna veiði- mönnum afnot af afréttum, en við eigum þessi afréttarlönd eins og þeir nema rétt einstaka maður, sem hefur gamalt bréf upp á umráðarétt. Nei, mér finnast bændur ganga of langt í því að elta veiðimenn upp um fjöll eins og hvern annan glæpamann og ættu þeir að leggja þann ósið af. Að lokum vil ég aðeins fá að nefna með sjónvarpið að mér finnst það hafa sýnt fullmikið af byltingarmyndum að undanförnu og ef það ætlar að ota manni út í byltingu þá er það náttúrlega ekkert grín. Ég held að meðan íslenska sjónvarpið er ekki betra en nú er ætti það ekki að skaða að leyfa sendingar Keflavíkursjón- varpsins, þar er jafnan ágætt barnaefni t.d. fyrir hádegi á laug- ardögum og fram á nætur eru oft gamlar og góðar kvikmyndir, sem myndi vera hin besta afþreying fyrir þá sem á annað borð hafa áhuga á því.“ 21.. RÍ3!! (Skemmtilegur leikur, en hvítur er vitanlega nauðbeygð- ur til þess að drepa aftur með hróknum, því að annars leikur svartur Re3+ og vinnur hvítu drottninguna) 22. Hxí3 — Dh4! (Hótar máti) 23. Hg3 — Dhl+, 24. Hgl - Re3+, 25. Kf2 - Dh2+ og hvítur gafst upp. HÖGNI HREKKVÍSI © 1979 McNaught Synd., Inc. / &ANM4Ð /S&OA' & / „ Pv SL^PPUe ’i fETTA 6/NN, £N /VÆ5T. / SlGeA V/öGA £ ‘ÚLVE&ÁN VALHUSGOGN ÁRMÚLI 4 SÍMI82275 Bragakaffi Cheerios Krakus jaröarber Perur Hagkaups W.C. Hagkaups-eldhúsrúllur Verö 819 pr. pk. 389 pr. 7 oz. 749 1/1 dós 375 1/2 dós 245 pr. 2 rúllur 529 pr. 2 rúllur Opið til 22 í kvöld og 22 á morgun laugardag. HAGKAUP EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU £% Qúm mG&VK A\*7?TN SI66A 'JtSóAÍ \WMro vfiz víanu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.