Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 3 Hilmar Helgason formaður SÁÁ: „Réttlátt að allir sitji við sama borð „ÉG TEL að réttlætið hafi sigrað í þessu máli, þ.e. að eitt sé látið yfir alla ganga,“ sagði Ililmar Helgason formaður SÁÁ er Mbl. innti hann álits á nýútgefinni regiugerð sem heimilar ferða- mönnum er koma frá útlöndum að taka með sér bjór inn í landið í stað léttvins. „Þetta er hins vegar alitof lítið magn til þess að það breyti einhverju í drykkjuvenjum þjóð- arinnar," sagði Hilmar ennfrem- Ólafur Haukur Árnason áfengisvarnaráÖunautur: „Alltaf litið svo á að allur innf lutn- ingur á áfengu öli væri ólöglegur" „ÁFENGISVARNARÁÐ hefur jafnan litið svo á, að allur inn- flutningur áfengs öls væri óiögleg- ur, svo og tollfrjáls innflutningur annars áfengis. Málið snýst því um það hvort áfengislög eða ein- hver lög önnur eiga að segja fyrir um meðferð. áfengis í landinu," sagði Ólafur Haukur Árnason hjá áfengisvarnaráði er Mbl. innti hann álits á reglugerð sem fjár- málaráðherra mun setja í dag og heimilar öllum ferðamönnum að kaupa og flytja með sér bjór inn 1 iandið. „Rýmkun regtugerðar sem grundvallast á öðrum lögum en áfengislögum um innflutning áfengs öls er í algjöru ósamræmi við þá áfengismálastefnu sem uppi er í heiminum. Heilbrigðisnefnd Sameinuðu þjóðanna beindi því til aðildarþjóðanna á síðasta ári, að reyna að minnka áfengisneyzlu með auknum hömlum. Sérstaklega er varað við: 1) Að bæta við nýjum áfengistegundum, 2) fjölga áfeng- isdreifingarstöðum, 3) selja áfengi á vægu verði, þ.e. með tollfríðind- um. Ef menn eru þess sinnis að álíta það forréttindi og af hinu góða að fá að kaupa áfengt öl, þá er misrétti þegnanna enn aukið með þessari reglugerð. Þeir sem fara landa á milli fá nú bæði ódýrt áfengi og öl, en hinir sem heima sitja kaupa nú áfengi á „réttu“ verði. Fjármálaráðherra hefur ekki haft samband við áfengisvarnaráð um þetta mál, enda ekki kleift að setja þessa reglugerð samkvæmt áfengislögum,“ sagði Ólafur Hauk- ur Árnason. Davíð Scheving Thorsteinsson fagnar sigri. Strax þegar spurðist út um setningu reglugerðar sem heimilar ferðamönnum að taka með sér bjór inn í landið, sendi ónafngreindur stuðningsmaður Davíð bjór, en hann hefur verið ötuli stuðningsmaður þess að allir landsmenn sætu við sama borð í þessum efnum. Ljósmynd Mbi. F.miiía. Davíð Scheving Thorsteinsson: „Feginn þessum málalokum „ÉG ER auðvitað ákaflega feginn þessum málalokum, þ.e. að ein lög skuli nú gilda yfir alla þegna landsins hvað þetta áhrærir,“ sagði Davíð Scheving Thorsteins- son er Mbl. innti hann álits á reglugerð sem fjármálaráðherra setur i dag þess efnis að eftirleiðis verði ferðamönnum á leið frá útlöndum heimilt að flytja með sér bjór, en það hefur til þessa einung- is verið heimilt áhöfnum flugvéla og skipa. „Að mínu mati á Sighvatur Björgvinsson fjármálaráðherra heiður skilið fyrir að taka svo rösklega og réttlátlega á málinu eins og raun ber vitni,“ sagði Davíð ennfremur. Hefur þú eða fyrirtæki þau er þú starfar við í hyggju að hefja innflutning bjórs til sölu hér á landi? „Hvorki ég né þau fyrirtæki sem ég vinn við hafa umboð fyrir bjór, né hef ég nokkurn áhuga á slíku persónulega. Hitt er annað að ég vona að íslenzkir framleiðendur taki nú til hendinni og hefji framleiðslu á sínum gamla góða sterka bjór,“ sagði Davíð. En er ekki ennþá verið að mismuna þjóðfélagsþegnunum þrátt fyrir þessa reglugerð, þar sem aðeins þeir sem ferðast til útlanda hafa rétt til bjórkaupa? „Jú, það er alveg rétt og það má segja að þeir sem oft ferðast til útlanda njóti enn frekari réttinda heidur en þeir sem sjaldan fara, og svo þeir sem heima sitja fá engan bjór. Það er því næsta skrefið í málinu að berjast gegn því órétt- læti,“ sagði Davíð að síðustu. : Eldhúsborð og stólar Mikið úrval.Hringborð, stærð borðplötu 100 cm. og 125 cm. Ferköntuð borð, stærðir 75x75 cm., 90x90 cm., 60x100 cm., 75x120 cm. og 75x 150 cm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.