Morgunblaðið - 31.01.1980, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 31.01.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 7 r I Ánægja og I gleöi I Augljóst er af lestri Þjóövílans, að ekki eru menn ó eitt sáttir innan Alþýðubandalagsins um lyktirnar i stjórnarmynd- | unartilraunum Svavars Gestssonar. Sú áhersla, sem þeir Þjóöviljamenn I leggja á að telja mðnnum trú um, að Svavari hafi gengið vel, er besta sönnunin fyrir því, sem I undir kraumar. Setningar ■ eins og þessi úr forystu- grein blaðsins s.l. þriðju- dag segja sína sögu: „Eft- ir því sem Þjóðviljinn kemst næst ríkir almenn ánægja með stjórnar- myndunartilraun Svavars Gestssonar í Alþýðu- ■ bandalaginu og gildir það jafnt um verklagið, inni- haldið og niðurstöðuna.“ í sama tölublaði Þjóð- viljans skrifar Svavar Gestsson sjálfur langa varnargrein og eins og venja er í innbyrðis deil- um kommúnista er hann ekki lengi aö finna sína Albaníu og tekur hún hjá honum á sig mynd Þórar- ins Þórarinssonar rit- stjóra Tímans. Svavar segir sem svo á einum staö: „Þórarinn Þórar- insson má hafa hvaöa skoðun sem honum sýn- ist á aðgerðum við að mynda ríkisstjórnir, en ég er ekki þeirrar skoö- unar að rétt sé að mynda meirihlutastjórn án þess að um traustan sam- starfsgrundvöll sefað ræða.“ Merkilegt er, að setning sem þessi skuli koma úr penna manns, sem var ráðherra í síðustu vinstri stjórninni undir forystu Ólafs Jó- hannessonar og vildi láta þá stjórn sitja sem alira lengst. Þarf engan að furða þótt mikil ánægja og gleði ríki yfir frammi- stöðu Svavars Gestsson- ar í Alþýðubandalaginu og á Þjóðviljanum. Hvaö er Svava Jakobsdóttir langt til hægri? í forystugrein Þjóðvilj- ans í gær sagði meðal annars: „... og svo var uppi hafður uggur um að þarna væri til orðinn vettvangur til að „móta stefnu“ í íslenskum leik- listarmálum. En það er segin saga, að þegar hægrisinnar heyra nefnda stefnumótun á sviöi lista, þó fer um þá stór hrollur og finnst þeim sem gammar kommúnismans séu að rífa í sig menningarrjúp- una.“ Árni Bergmann ritstjóri Þjóðviljans, höfundur ofangreindra orða, semur þau vegna þess að í Lesbók Morgunblaðsins var vitnað í þessi orð Svövu Jakobsdóttur á Al- þingi 5. mars 1979, þegar rætt var um leiklistarlög: „Það var aðallega þetta orö „stefnumótun“, sem menn töldu að ýmsu leyti varhugavert að og festa í lögum. Sjálf var ég þeirr- ar skoðunar á sínum tíma og er enn þeirrar skoðun- ar. Ég held að bestu rökin í því máli séu þau, að orðið „stefnumótun“ get- ur verið villandi vegna þess að „stefna" er fag- orð í listum. Við tölum um raunsæisstefnu, róm- antíska stefnu. Þess vegna er fyllilega réttlæt- anlegt að mínum dómi að vara við því að festa í lögum að leiklistarráð skuli móta stefnu. Hugs- ast gæti, að þetta yrði skilið á þann veg, að leiklistarráð ætti að ráða því eða hafa áhrif á hvaða tökum listamaöur, hvort sem er rithöfundur eða leikhúsfólk, taki við- fangsefni sitt.“ Með þessari röksemd lagði Svava Jakobsdóttir þáverandi þingmaður Al- þýðubandalagsins til, aö orðið „stefnumótun“ væri fellt úr lagagrein, þar sem fjallað var um verk- efni leiklistarráðs ríkisins og var það samþykkt ón mótatkvæöa. Nú er Svava að vísu hætt á þingi fyrir kommúnista, en ekki hafa neinir utan raða þeirra orðið varir við, að hún hafi neitt það til saka unnið, sem réttlæti það, að sjálfur Árni Bergmann kalli hana hægri sinna. Það getur þó vel verið, að Svava hafi einhvers stað- ar í myrkviðum Alþýðu- bandalagsins látið í Ijós þá skoðun, að „gammar kommúnismans séu aö rífa í sig menningarrjúp- una“. Hún þekkir þá af eigin raun. VANTAR ÞIG VINNU |nj VANTAR ÞIG FÓLK í Þl AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUG- LÝSIR í MORGUNBLAÐINU r Viö kynnum einn nýjan frá Póllandi PULljNEZ PDLDNEZI er ovenju glæsilegur bill a otrulega goöu veröi eöa aðeins frá kr. 4.200.000.- KOMIÐ A BILASYNINGUNA UM NÆSTU HELGI FIAT EINKAUMBOO A ÍSLAND! DAVÍÐ SIGURÐSSON hf SlOUMÚLA 35. SfMI 85855. ST JÓRNUN ARFRÆÐSL AN irkar sem að gerast ar >að þarf ekki ; Sheer Energy, sokkabuxurnar, i nudda fætur morgni til kvölds. Þú finnur áhrifin strax og þau eru stórkostleg. Þú finnur fyrir Sheer Energy nuddinu við >ý- 'þverja hreyfingu, ogþaðsem meira 'I %r> Þ™ meira sem þú /V 1». þess meira nudd, zr líður vel Sheer I jtfíJpP' ■ _ ^ alian daginn. ^ Wæturnir eru þér 1 mikilvægir, hvers vegna ekki að gera eitthvað Gefðu þeim Sheer Energy, sokkabuxurnar sem þú finnur i Leggs standinum 1 næstu df’W' - ilMnMÍM HEER ENERCY TunguhiM 11, tM (2700 Bókfærsla I Er bókhaldið í lagi? Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiös í Bók- færslu I í fundasal félagsins aö Síöumúla 23 dagana 4.-7. febrúar nk. frá kl. 13.30—19.00 hvern dag. Fjallað veröur um sjóöbókarfærslur, dag- bókarfærslur og færslur í viöskiptamannabækur. Sýnt verður uppgjör fyrirtækja og rædd ýmis ákvæöi bókhaldslaganna. Skráning þátttakenda og nánari upplýs- ingar hjá Stjórnunarfélaginu, sími 82930. Leiöbeinandi: Kristján Aðalsteinsson. viöskiptafræöingur. BLÓMASTÓRISAR Breidd cm 250 300 400 Verö kr. 18.045 20.812 26.300 Breidd cm 500 600 800 Verö kr. 31.880 37.260 48.020 SENDUM GEGN POSTKROFU GARDINUHUSIÐ SF. lönaöarhúsinu Sími 22235.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.