Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 13

Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 13 Kvartett - tónleikar Fjórðu tónleikar myrku músik- daganna voru haldnir á Kjarvals- stöðum og iék á þeim kvartett undir stjórn Guðnýjar Guðmunds- dóttur ásamt Mark Reedman, Helgu Þórarinsdóttur og Carmel Russill. Tónleikarnir hófust á Hásselby-kvartettinum eftir Þor- kel Sigurbjörnsson. Kvartettinn er saminn 1968 og var þá tímamóta- verk fyrir okkur ísiendinga, bæði hvað snertir stíl og gæði. Undir- ritaður náði ekki inn í sali Kjar- valsstaða í tæka tíð og heyrði verkið því í gegnum upptökutæki útvarpsmanna, sem er ekki alveg það sama og að vera viðstaddur í hljómleikasal. Annað verkið á efn- isskránni var Movement, eftir Hjálmar Ragnarsson, það er skil- getið afkvæmi „akademískra" vinnubragða, búið til úr einhverj- um sérstökum tónaröðum. Þessar tónaraðir voru fyrrum kölluð stef og mynduðu kjarna þess er hlust- andinn átti að skynja. Hafa þessar tónaraðir einhverja merkingu fyrir hlustandann, skynjar hann ferli þeirra og ummyndanir, eins og gerðist um stefin fyrrum, eða er gerð verksins ekki það sem hlust- andinn á að skynja? Þessar hugs- anir fylgdu einnig hlustun þriðja verksins á tónleikunum, Kvartett, eftir Snorra Sigfús Birgisson, sem „skiptist í andstæða hluta (hæga og þunga, hraða og létta)“ og einnig, að „Ákveðin hljóðfallsmynstur deilast sífellt milli hljóðfæranna yfir samstæðum hljómasambönd- um“ eins og segir í efnisskrá. Er þetta það sem hlustandinn á að skynja í tónlistinni og ekkert annað, eða eru þett'a aðeins bygg- ingarfræðilegir undirstöðuþættir, er þjóna undir þá ætlan að búa til tónverk, sams konar og reglur í kontrapunkti og hljómfræði fyrr- um, sem þá þjónuðu sem undirstöð- ur þeirrar fagurfræði er tónsköpun þá byggðist á. Ef dæminu er snúið við og hætt er að einblína á byggingarfræðilegar undirstöður og reynt að skynja verkin sem hljóðræna framvindu, mætti líkja þröun tónverks við þróun hug- mynda í orðræðu. Þær tónaraðir er fyrrum voru kallaðar lag byggðust á skyldleikatengslum tónanna, sem fræðilega eru skilgreind í tónstig- þróun óskilgreindra hugtaka, til finningu, sem túlkuð er með hryn og tónblæ alls konar. Ef túlkandi markmið eru tekin út úr myndinni, er spurningin sú hvort tónverk geti haldið gildi sínu? Greinanlegt lag- ferli gegndi því hlutverki, sem annars var fólgið í markmiðum og túlkun þeirra, en þegar lagferlið eða steffrymið er orðið ógreinilegt í gerð verksins, er skynjunin orðin hrein tónræn upplifun, sem gerir miklar kröfur til tækni höfunda og flytjenda. Það er ljóst að tónsmíðar ungu tónskáldanna, Hjálmars Ragnarssonar og Snorra Sigfúsar Birgissonar, samsvara þekkingu þeirra og lærdómi, enda má heyra í þeim margt er hefur verið iðkað í smiðjum tónskálda síðustu 20 árin. Það sem veldur þessari löngu orðræðu hjá undirrituðum er spurningin um það hvort þessi verk séu aðeins stefna við einhver til- tekin leikform, tóntiltektir, sem stundum er erfitt að greina í sundur (og þar með fylgja þróun þeirra, hugsun verksins) og eigi ekki annað erindi til hlustenda en að vera óskilgreind hljóðræn upp- lifun. I síðasta verkinu á þessum tónleikum var flutt verk eftir Sjostakovits, síðasti kvartettinn hans. Án alls efa liggja til grund- vallar því verki tónrænar athugan- ir, en einnig má finna þar ýmislegt annað, er ekki síður getur aukið á áhrifamátt verksins en form þess og gerð. Þetta er verk manns sem gengið hefur langa leið er einn og á sér engan viðmælanda nema göngustafinn sinn. Aðkast og að- dáun skiptir ekki- lengur máli, en einsemdin, fóstruð í friðsæld kyrrðarinnar, er brunnur þess lífsvatns er hann býður fram og án þess að vita hvað framundan er, er hann sáttur við fortíðina, því hann hefur brennt það kerti til ösku er örlaganornirnar skenktu honum í tannfé. Að loknu verkinu, sem líkja má við smá hvíldarstund, tekur hann staf sinn og heldur hljóður á vit hins ókunna. Kvartett nr. 15 eftir Sjostakovits er stórkostlegt uppgjör mikils listamanns, skap- andi anda, er svarar skarkala og skrumi heimsins með hljóðlátri kveðju, lífssátt, er dvín til samlags við eilífðina. Flytjendur áttu þarna stóra stund og fluttu þetta alvarlega verk mjög vel. Væri það ekki stórkostlegt verkefni fyrir íslensk- an kvartett að flytja meira af kammertónlist Sjostakovits, enda er undirritaður sannfærður um að Guðný og félagar hennar gætu gert stórkostlega hluti í flutningi nútímatónlistar, eins sannaðist best fyrir nokkrum árum, er kvart- ettinn flutti tónlist eftir Kodaly og Bartok. T - í Jon Asgeirsson. Ursula Ingólfsson—Fassbind Urs Schneider Sinfóníutónleikar Efnisskrá: Smetana — Moldau Mozart — Píanókonsert, K.V. 537 Tsjaikovsky — Sinfónía nr. 6 Einleikari: Úrsúla Ingólfsson Stjórnandi: Urs Schneider ÞAÐ er óhætt að fullyrða að efnisskráin samanstendur af einhverjum vinsælustu verk- um tónbókmenntanna. Moldau er eitt af sex tónaljóðum, er Smetana kallar Föðurland mitt og er meðal frægustu hljómsveitarverka 19. aldar- innar. Þrátt fyrir mikinn hraða var verkið vel leikið. Næsta verkefnið, Píanókon- sert K.V. 537, sem gefið var nafnið „Krýningarkonsert- inn“, var fluttur af Úrsúlu Ingólfsson. Konsertinn er fal- leg tónsmíð og lét einleikarinn hæga kaflann fallega, en fyrsti kaflinn var bæði óviss í hraða og gerð, sem ekki er vegna Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON tæknilegra veikleika, heldur þessara óskilgreindu erfiðu augnablika hljóðfæraleikar- ans, sem ávallt vofa yfir. Að öðru leyti var fallegur Moz- art-blær yfir leik Úrsúlu Ing- ólfsson. Síðasta verkið, 6. sinfónían eftir Tsjaikovsky, er meðal sterkustu skáldverka tónbók- menntanna. Það er talið að höfundurinn hafi í raun og veru upplifað innra með sér þær geðsveiflur, sem verkið er fullt af, að lítll munur hafi verið á manninum sjálfum og sumum verkum hans og í þessu tilliti eigi hann margt sameiginlegt með Beethoven í síðustu verkum hans. Þessi ógnarþungi tilfinninganna var ekki rómantísk frásögn eða túlkun, heldur einstaklings- bundin tjáning og svo sönn, að mörgum stendur ógn af þess- um verkum og til að verja sig gegn því að uppgötva sjálfa sig, segjast margir ekki þola Tsjaikovsky. Það sem ein- kenndi að miklu ieyti stjórn Urs Schneider var mikill hraði. Margt var vel gert og margt týndist, en þrátt fyrir mikinn hraðar, fumkennt upp- haf og nokkur slys, var fjórði þátturinn áhrifamestur að þessu sinni. Jón Ásgeirsson um. Þegar tónskáld höfðu lært að búa til lög innan ramma tónstiganna, varð næsta stigið að finna nýja tónstiga og síðan að blanda þeim saman. Þannig varð tónlistin flóknari og torkennilegri í hlustun. Á þessu stigi höfnuðu tónskáld öllum skyldleikatengslum tónanna (tólftónakerfið) og tónninn varð sjálfstætt, heyranlegt fyrirbrigði. Fyrst framan af deildu tónlistar- menn um þessa þætti, en eftir því sem tónskáldum tókst að byggja upp nýtt tónmál og ná valdi á þessum nýja hugsunarhætti, hljóðnaði andstaðan gegn nýbreytni í blæbrigðum og tónferli. En hvað er það þá sem heldur einu tónverki saman, eða gefur því gildi sem listaverk. Sumir hafa lagt áherslu á það, að markmiðið með gerð verksins hafi meira að segja en bygging þess og aðrir telja bygginguna aðalatriðið og nefna til málsins tónlist Bach, sem er þá aftur svarað, að þar sé byggingar- tæknin aðeins hluti markmiðsins en ekki einráð. Þrátt fyrir það að afstaðan til blæbrigða og tengsla tónanna hafi breyst, er framvinda tónverka enn háð vinnutækni og markmiðum og má allt eins kalla þetta inntak verkanna, hugsun, Gífurlegt úrval flauelsefna Aðalstrceti 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.