Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakið. Hjúkrunarheim- ilið í Kópavogi Það er ekki að ástæðulausu, sem sagt hefur verið, að í sumum greinum sé aðbúnaður aldraðra þvílíkur hér á landi, að sé á mörkum þess að samræmzt geti menningar- og velferðarþjóðfélagi. Bæði er það, að tekjutrygging og eftirlaun eru með mjög mismunandi hætti. Sumir eiga aðgang að verðtryggðum lífeyrissjóði, jafnvel mörgum, meðan aðrir naumast draga fram lífið, þótt þeir velti hverri krónu milli handanna, áður en þeir eyða henni. Hitt er þó miklu verra, að sumt gamalt fólk hefur hvergi höfði sínu að að halla, þótt það sé þrotið að heilsu og kröftum og þurfi hjúkrunar og umönnunar við til þess að fá nauðþurftum sínum fullnægt. Sl. laugardag gerðist sögulegur atburður í málefnum aldraðra, er elzti íbúi Kópavogs, Ragnheiður Guðbrands- dóttir, 101 árs gömul, tók fyrstu skóflustunguna að Hjúkrunarheimili aldraðra, sem verður hið fyrsta sinnar tegundar á landinu. Aðdragandinn er tæp tvö ár. í apríl 1978 var með formlegum hætti hafizt handa við undirbúninginn, þar sem mikil sjálfboðaliðsvinna hefur verið lögð af mörkum, m.a. af ýmsum sérfróðum mönnum. Að þessari framkvæmd standa 9 félagssamtök, en söfnunarbaukum hefur verið dreift inn á hvert heimili í Kópavogi. Búizt er við, að byggingarfram- kvæmdum og frágangi ljúki að fullu á næsta ári. Það er eftirtektarvert, að hið opinbera, hvorki bær né ríki, kemur neitt við sögu varðandi byggingu þessa hjúkrunarheimilis, heldur stendur framkvæmdin ein- vörðungu á framtaki og dugnaði einstaklinga og samtaka þeirra. Þannig vill það löngum fara, þótt við búum við margbrotið tryggingakerfi og ítarlega löggjöf, að borgararnir sjáflir vita bezt, hvar þörfin er brýnust, og taka að lokum til sinna ráða, ef kerfið opnast ekki, heldur byrgir fyrir allar gáttir. Morgunblaðið fagnar þessu framtaki með heillaóskum um að árangurinn verði eins og til er stofnað. Naflastrengur- inn heldur enn Viðbrögðin við handtöku Sakarovs hafa verið eindreg- in og hörð hvarvetna í löndum hins frjálsa heims. M.a. hefur „íslenzka andófsnefndin“ verið stofnuð- og beitt sér fyrir, að útvarpsþáttur verði um andófsmenn n.k. sunnudagskvöld. Við afgreiðslu málsins í útvarpsráði greiddu fulltrúar Alþýðubandalagsins atkvæði gegn því, að þátturinn yrði fluttur og lét annar bóka, að andófsmenn hefðu verið mikið í fréttum að undanförnu og að nóg væri komið af sovétníði. Við venjulegum manni horfa þessi mál svo, að hinir sovézku ráðamenn hafi kveðið sjálfum sér níð með verkum sínum. Reynslan sýnir, að þrýstingur frá hinum frjálsa heimi getur orðið til þess að lina þjáningar andófsmanna, sem hnepptir hafa verið í fai\gelsi eða lokaðir inni á „geðveikrahælum" og jafnvel valdið því, að þeir hafa verið látnir lausir. Þess vegna er vandséð, hvað fyrir fulltrúa Alþýðubandalagsins vakti, þegar hann kvartaði undan, að andófsmenn hefðu verið mikið í fréttum, svo að yrði að „sovétníði". En hitt leyndi sér ekki, að „naflastrengurinn“ heldur enn við móðurflokk- inn í austri, þangað sem „steinbarnið" sækir „næringu" sína. Morgunblaðið sneri sér í gær til þriggja manna, sem nefndir hafa verið á nafn vegna komandi forsetakosninga og spurði hvort þeir hygðust gefa kost á sér í framboð. Fara svör þeirra hér á eftir: Andrés Björnsson útvarpsstjóri: „Á framboðstímum er margt skrafað“ Ég sækist ekki eftir þessu virðu- lega embætti „Á FRAMBOÐSTÍMUM er margt skrafað. Einhverjir hafa nefnt þetta við mig,“ sagði Andrés Björnsson útvarps- stjóri í gær, er Mbl. spurði hann, hvort hann hygðist gefa kost á sér til kjörs forseta íslands, en hann er einn af þeim, sem nefndir hafa verið. „Ég hef ekki leitt huga að því, og sækist ekki eftir þessu virðulega embætti,“ sagði hann að lokum. Hans G. Andersen sendiherra: „Eg hygg ekki á neitt slíkt“ „JÚ, ÉG hef heyrt eitthvað um það,“ sagði Hans G. And- ersen sendiherra er Mbl. spurði hann, hvort hann hefði fengið áskoranir um að gefa kost á sér til kjörs forseta. „Ég hygg þó ekki á neitt slíkt,“ sagði hann ennfremur. „Margir kallaðir en fáir útvaldir“ — sagði Sigurður Bjarnason sendiherra, en hann hyggst ekki gefa kost á sér „MARGIR eru kallaðir en fáir útvaldir,“ sagði Sigurð- ur Bjarnason sendiherra í London, er Mbl. spurði hann, hvort hann hygðist gefa kost á sér til forsetaframboðs. „Það er rétt, að það hafa ýmsir nefnt þetta við mig og okkur hjónin,en við höfum ekki hug á þessu starfi og þykir miður að Kristján Eld- járn skuli láta af störfum. En við þökkum þeim, sem sýnt hafa okkur það traust að minnast á þetta við okkur, og árnum þjóðinni árs og friðar," sagði Sigurður í lokin. Nýi Barði kom í gær Neskaupstað — 30. jan. NÝTT skip bættist í flotann í dag þegar Barði NK kom hingað í fyrsta skipti klukkan 16.30. Þessi margumtalaði skuttogari kom frá Englandi, þar sem gerðar voru á honum breytingar. Togarinn var keyptur í Frakklandi og tóku kaupendurnir gamla Barða upp í kaupverðið. Mismunurinn á kaupverðinu var fjármagnaður með lántöku í Englandi. Skipstjóri á Barða er Herbert Benjamínsson, 1. vélstjóri, Bjarni Þórlindsson og 1. stýrimaður Jón Aðalsteinsson. -Ásgeir. * Forseti Islands, he Erfiða an í „ÉG taldi þetta vera rök- rétt framhald af viðræðum mínum við einstaka flokksformenn í fyrradag og aftur í gær,“ sagði forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, er Mbl. ræddi við hann í gær eftir að hann hafði falið flokks- formönnunum öllum að reyna til þrautar myndun meirihlutastjórnar og sett þeim frest til að komast að niðurstöðu í síðasta lagi á mánudaginn. Mbl. spurði forsetann, hvort af þessu mætti ráða, að hann teldi samstjórn allra flokkanna fjög- urra líklegasta kostinn. „Ég tel fjögurra flokka stjórn einn af þeim möguleikum, sem koma til greina, en ég vil nú ekki gera þar upp í milli," svaraði forsetinn. „Það að ég tilnefni engan einstakan flokksformann til að standa fyrir þessari könn- un ber ekki sérstaklega að skilja sem undanfara þjóðstjórnar, heldur mælist ég til þess að flokksformennirnir kanni alla raunhæfa möguleika, sem enn kunna að vera fyrir hendi til myndunar meirihlutastjórnar." Þá spurði Mbl. forsetann, hvort hann væri farinn að undir- búa þann möguleika, að hann þyrfti að skipa utanþingsstjórn. „Þessi möguleiki er vitanlega fræðilega séð fyrir hendi, en þá sem síðasta úrræði og málið er ekki komið á það stig ennþá,“ svaraði forsetinn.. „Mér finnst hinsvegar að menn geti sagt sér það sjálfir, að ég hef hugsað um þetta og það er ekki fyrir það að synja heldur, að þetta hafi borið á góma í samtölum við menn, en það er langt því frá að nokkur ákvörðun hafi verið tekin. En ég hef velt því allmikið fyrir mér, hvernig eigi að standa að þessu, ef til þess þyrfti að taka.“ Mbl. spurði forsetann, hvort minnihlutastjórn, ef einhver flokkur eða flokkar vildu mynda hana, væri ekki nærtækari kost- ur en utanþingsstjórn. Hann sagði: „Að meirihlutamöguleik- um frágengnum má búast við því Geir Hallgrímsson: Það á að sér að þjc „ÉG tel að það sé ekki annað reynandi en hella sér af krafti í það að kanna möguleikann á fjög- urra flokka stjórn,“ sagði Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstaíð- isflokksins í samtali við Mbl. i gærkvöldi. Mbl. spurði Geir hvort hann teldi að það sem gerzt hefur síðan hann skilaði stjórnarmyndunarumboði sínu væri nægilegur undanfari þjóð- stjórnar, en Geir kannaði sem kunnugt er möguleikana á fjögurra flokka samstarfi.„Það vil ég ekkert segja um á þessu stigi,“ svaraði Geir. „En ég hugsa að það verði algjörlega að ganga úr skugga um það.“ í greinargerð Geirs að stjórnar- myndunartilraun hans lokinni sagði hann m.a. að hann teldi ekki að það væri málefnaágreiningur sem í raun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.