Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980
23
íslands. En það eru einungis
vangaveltur, sem bíða betri tíma
— ef utanþingsstjórn verður valín.
Við skulum hafa í huga við
þessa umhugsun, hvað Wilhelm
Nölling, fjármálaráðherra Ham-
borgar, hafði um efnahagsmál
íslands að segja. Gott er að hafa
til hliðsjónar að Hamborg er í
V-Þýskalandi, þar sem lífskjör eru
einna best í heiminum og nánast
engin verðbólga er. Nölling sagði
m.a.: „Það sem þið þurfið, er góður
ráðgjafi til þess að taka efna-
hagsmál landsins til gagngerrar
endurskoðunar. Að öðrum kosti er
hætta á að illa fari. Þessi ráðgjafi
verður að vera laus við öll afskipti
þrýstihópa (t.d. stjórnmálaflokka
— innskot R.G.) og hafa óskorað
vald til þess að gera það sem hann
telur vænlegt. Það gengur aldrei
til langframa að þrýstihópar
stjórni efnahagsmálum heillar
þjóðar.
Framtíðin
Hvort sem utanþingsstjórn,
meirihlutastjórn, minnihluta-
stjórn, „Stefanía", eða hvað þær
nú allar kallast verður fyrir val-
inu, er eitt víst. Til þess að
framtíðin eigi að geta borið í
skauti sér bætta og farsæla tíma í
þjóð- og efnahagsmálum íslands,
verður að breyta stjórnarfarinu.
Það verður að nýta orkulindir
landsins með skynsemi í þágu
allra landsmanna. Það leiðir af sér
betri lífskjör og betra mannlíf.
Það verður að koma efnahags-
málum í traust horf — skipu-
leggja fjárfestingu þjóðarinnar —
auka þjóðarframleiðslu og fram-
leiðni — vinna að skipulögðum og
skynsömum kjarasamningum —
vinna að félagslégu öryggi og
réttlátri skiptingu þjóðartekna á
þá vegu, sem líklegastir eru til að
ná árangri.
Það verður umfram allt að
varast að vanmeta verðbólguna.
Hún verður ekki vegin með taum-
lausu orðaglamri. Hún verður ekki
leyst á klukkutíma, eins og einn
stjórnmálamaður sagði í síðustu
kosningabaráttu. Hún verður
kveðin niður með skipulegum og
raunhæfun aðgerðum, sem án efa
kosta e-a fórn allrar þjóðarinnar.
Ég held að þjóðin sé reiðubúin að
fórna e-u, ef sú fórn tryggir betri
tíma. Við erum öll orðin leið á því
að vera æ ofan í æ að gjalda fyrir
syndir feðranna — syndir stjórn-
málamanna, sem gjörsamlega
hafa brugðist hlutverki sínu. Jón-
as H. Haralz spáði því fyrir u.þ.b.
20 árum, að næstu 20 ár (þ.e. u.þ.b.
’60—’80) yrðu ekki verðbólguár.
Rökstuðningur hans var góður og
raunsær. Spáin reyndist alröng,
eins og öllum er ljóst, eingöngu
vegna þess, að hann bjóst ekki við
öllum þessum mistökum stjórn-
málamanna. Hver hefði búist við
þeim? Eflaust enginn. En þetta
eru blákaldar staðreyndir, sem við
getum ekki hunsað.
Já! Ástandið er svo sannarlega
ekki bjart framundan. Og við
skulum ekki gleyma því að hin
ágæta atvinnustétt sjómenn hefur
átt mestan þátt í því að þjóðmálin
hafa ekki goldið afhroð undanfar-
in ár, vegna verðbólgunnar og
neikvæðrar þróunar viðskipta-
kjara. Iðnaðurinn hefur haft mik-
ið að segja en fyrst og fremst
mikill fiskafli (1979 var metár)
hefur haft mesta þýðingu fyrir
aukningu þjóðarframleiðslu, jöfn-
uð í utanríkisviðskiptum og t.d.
forðað frá atvinnuleysi. En þjóðin
getur ekki til lengdar reitt sig á
metafla í fiskveiði. Það verður að
renna stoðum undir þjóðarbúið á
breiðum grundvelli. Það verður að
nýta vinnufúsar hendur hvar sem
er á landinu — svo að allir geti
fest björg í bú og hver og einn
finni um leið að hann vinnur
sjálfum sér og öðrum gagn.
100 lestir
af hrossa-
k jöti seldar
til Noregs
FYRIR nokkru seldi Búvörudeild
Sambandsins tæpar 100 iestir af
hrossakjöti til Noregs. Þá hafa
einnig verið send sýnishorn af
folalda- og tryppakjöti til Ítalíu
og eru þau viðskipti á vegum
Hamborgarskrifstofu Sambands-
ins. Ef af sölu verður, er reiknað
með að allt að 300 lestir verði
seldar þangað. Verðið á hrossa-
kjötinu er taiið viðunandi miðað
við verð á öðrum landbúnaðar-
vörum.
Frá þessu er skýrt í nýútkomn-
um Sambandsfréttum. Þar segir
ennfremur:
Eins og kunnugt er ollu erfið-
leikar á fóðuröflun á síðasta ári
því, að mun meira var fellt af
stórgripum s.l. haust en venjulega.
Þetta hefur valdið því, að birgðir
af hrossa- og nautgripakjöti hafa
aukist. Þannig var hrossaslátrun
300—350 lestum meiri nú í haust
en árið áður, og sömuleiðis er talið
að nautakjötsbirgðir hafi verið
tæplega 600 lestum meiri nú um
áramótin en næstu áramót á
undan. Hrossakjötið gefur betra
verð erlendis, samanborið við inn-
anlandsmarkað, heldur en naut-
gripakjötið, og einnig er á það að
líta að undanfarin síðustu ár
hefur heldur verið vöntun en hitt
á nautgripakjöti á innanlands-
markaði. Af þeim sökum hefur
þótt fýsilegra að leita markaða
erlendis fyrir hrossakjötið heldur
en nautgripakjötið.
Lentu á ísilögðu vatn-
inu og hófu veiðar
— ÞETTA var fyrsta veiðiferðin
okkar í vetur en áreiðanlega
ekki sú síðasta, sagði Guðmund-
ur Hilmarsson flugmaður þegar
hann skýrði fréttamanni Mbl.
frá óvenjulegri veiðiferð sem
hann fór sl. sunnudag ásamt
Þorláki Jóhannssyni.
Þeir félagar fóru á Piper super-
cup flugvél Guðmundar upp á
Mosfellsheiði og lentu á ísilögðu
Mjóavatni, en vatnið hefur Þor-
lákur á leigu. Þeir brutu gat á
ísinn með járnkarli, en ísinn var
um 50 sentimetra þykkur. Síðan
hófst veiðiskapurinn og stóð hann
1 5—6 tíma og afraksturinn tveir
fallegir urriðar, 4 'A og 3 pund,
sem sjást á meðfylgjandi mynd.
Erfitt er að komast að Mjóa-
vatni og er flugið hentugasti
fararmátinn á veturna en vafa-
laust er óalgengt að menn fari í
veiðiferðir eins og þeir félagar
Guðmundur og Þorlákur á sunnu-
daginn.
Úr kvikmyndinni Onibaba.
Japönsk kvikmynd
hjá Fjalakettinum
Ráðstef na BSRB
um efnahagsmál
FJALAKÖTTURINN sýnir í
Tjarnarbíói í kvöld, fimmtudag,
kl. 21, á laugardaginn kl. 17 og á
sunnudaginn kl. 17, 19:30 og 22
kvikmyndina ONIBABA eftir
Kaneto Shindo.
Myndin er gerð í Japan árið 1964.
Á tímum borgarastyrjaldanna í
Japan lifa móðir og dóttir hennar
einar sér í kofa. Þær vinna sér inn
peninga með því að selja brynjur
og herklæði dauðra hermanna. Þá
eftirfarandi athugasemd frá Skip-
stjórafélagi Norðlendinga:
Vegna ummæla Kristjáns Ragn-
arssonar, formanns L.Í.Ú. sem birt-
ust í Morgunblaðinu þriðjudaginn
22. janúar s.l. undir yfirskriftinni
„Samningum stéttarfélaga sagt upp
kemur til þeirra ungur maður og
hinn klassíski þríhyrningur mynd-
ast þegar hann verður elskhugi
dótturinnar. Móðirin drepur dul-
arfullan gest og setur á sig grímu
hans til að hræða hinn unga
keppinaut. En henni til mikillar
skelfingar getur hún ekki losað
grímuna af sér.
Aðalhlutverkin í myndinni eru
leikin af Nobuko Otowa og Jitsuko
Yoshimura.
án samráðs við þau“ vill stjórn
Skipstjórafélags Norðlendinga taka
fram, að ákvörðun félagsins að
segja ekki upp samningum er tekin
að vilja meirihluta starfandi félags-
manna og á ekkert skylt við van-
traust á forystu F.F.S.Í. Getgátur
Kristjáns Ragnarssonar þar að
lútandi eru að sjálfsögðu hans eigið
RÁÐSTEFNA Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja um efna-
hagsmál hefst í dag, fimmtudag.
og er þegar fullbókað á ráðstefn-
una. Þar munu, eins og segir í
fréttatilkynningu frá BSRB,
margir „helztu hagspekingar
þjóðarinnar” halda erindi og
svara fyrirspurnum þátttakenda
og taka þátt í hringborðsumræð-
um.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um flesta meginþætti íslenzks
efnahagslífs, s.s. um þjóðhags-
reikninga, gengisskráningu, fjár-
lagagerð, opinber gjöld, fjárfest-
ingar, áhrif opinberra aðgerða á
efnahagslífið, landbúnað, iðnað,
verzlun og viðskipti, sjávarútveg
og fiskvinnslu.
Ráðstefnunni lýkur á sunnúdag
með hringborðsumræðum, þar
sem þátt taka fulltrúar stjórn-
málaflokkanna, þeir Geir Hall-
grímsson, Kjartan Jóhannsson,
Steingrímur Hermannsson og
Svavar Gestsson.
Þá hefur BSRB vakið athygli á,
að skattamálaráðstefnu BSRB,
sem vera átti 5. febrúar, hefur
verið frestað, vegna þess að fram-
talsfresti hefur verið breytt. Veita
átti leiðbeiningar um útfyllingu
skattskýrslunnar 5. febrúar, en
það verður nú gert 20. febrúar
hugarfóstur.
Stjórn Skipstjórafélags Norð-
lendinga ber fyllsta traust til for-
ystu samtakanna og telur að þau
mistök, sem urðu við uppsögn
samninganna, hafi verið skýrð og
leiðrétt af framkvæmdastjóra
F.F.S.Í. á fullnægjandi hátt.
klukkan 20:30 að Grettisgötu 89.
Sams konar erindi átti að flytja á
Akureyri, í Iðnskólanum. Því hef-
ur einnig verið frestað til sama
dags, en hefst klukkan 20 eða
hálfri klukkustund fyrr en í
Reykjavík.
Dollar við 400
króna markið
GENGI islenzku krónunnar gagn-
vart Bandaríkjadollar hefur farið
lækkandi undanfarna daga og
hefur dollarinn smám saman
nálgast 400 krónu markið.
Tvo undanfarna daga hefur sölu-
gengi dollars verið 399,90 krónur en
fastlega er reiknað með því að
gengið sígi næstu daga og dollarinn
fari yfir 400 króna markið.
Athugasemd
VEGNA fréttar á bls. 2 í
blaðinu í gær um fund út-
varpsráðs hefur Vilborg Harð-
ardóttir, annar fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í ráðinu,
óskað eftir að taka það fram
að hún hafi gert þá grein fyrir
atkvæði sínu, að hún hefði
síður en svo á móti því að
fjallað yrði um þetta mál í
þætti í dagskrá útvarpsins, en
hún treysti ekki Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni til
þess að stjórna slíkum þætti
hlutlaust né til að gera viðhlít-
andi greinarmun á sovézkum
andófsmönnum.
„Ekki vantraust á forystu FFSÍ“
MORGUNBLAÐINU hefur borizt