Morgunblaðið - 31.01.1980, Side 27

Morgunblaðið - 31.01.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 27 Lúðrasveit Hafnarfjarðar. sem í dag á 30 ára afmæli. Þrjátíu ára afmæli í dag Lúðrasveit Hafnarfjarðar er í dag 30 ára. Hún var stofnuð 31. janúar 1950. Fyrsti formaður hennar var kosinn Friðþjófur Sigurðsson, byggingarfulltrúi. Núverandi formaður er Ævar Hjaltason. Lengst hefur Einar Sigurjónsson gegnt formennsku eða í 17 ár. Fyrsti stjórnandi sveitarinnar var Albert Klan sem byggði upp starfið af mikilli elju og dugnaði og stjórnaði sveitinni til dauðadags 1961. Þá tók við Jón Asgeirsson tónskáld og stjórnaði hann sveit- inni í þrjú ár. En síðan hefur Hans Ploder Fransson verið stjórnandi og hefur reynst mjög ötull og áhugasamur um gengi sveitarinnar og er óhætt að segja að Lúðrasveit- in stendur í mikilli þakkarskuld við þennan ágæta stjórnanda. Lúðrasveitin hefur tvisvar sinn- um farið í hljómleikaferð til út- landa og hlotið þar lof fyrir góðan flutning. Nú eru í sveitinni 43 blásarar. Að sjálfsögðu heldur sveitin upp á þessi tímamót. Laugardaginn 2. febrúar verður afmælisfagnaður í veitingahúsinu Gaflinum við Reykjanesbraut. Einnig verða af- mælishljómleikar haldnir seinni part marsmánaðar fyrir styrktar- félaga og aðra gesti. (Fréttatilkynning). Að gefnu tilefni Áminnir Vélstjórafélag íslands þær útgeröir sem hyggjast leita eftir undanþágum fyrir menn til vélstjórnarstarfa, af hálfu félagsins veröa þær ekki samþykktar nema Ijóst sé aö áöur hafi veriö auglýst eftir réttindarmönnum þar sem fram hafi komið: 1. Skipsheiti. 2. Staöa vélstjóra. Einnig vill félagið minna á aö undanþágubeiönir skulu berast á þar til geröum eyöublööum sem fást hjá skráningarstjórum um land allt. Stjórn Vélstjórafélags íslands. BahusAlfa Einingunum má raöa upp á ótal vegu, alveg upp í loft (239 sm), sérstakar einingar í hornin og einnig má tengja samstæöuna yfir dyr og kringum glugga. VERIÐ VELKOMIN EF ÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUGI.YSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.