Morgunblaðið - 31.01.1980, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 31.01.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 31 ^ 'l I P\ifT i ÍÉ vliP JL*-TLvúlfct r Karlakór Akureyrar 50 ára Afmælissamsöngvar á laugardag og sunnudag í Akureyrarkirkju KARLAKÓR Akureyrar er 50 ára um þessar mundir og minnist afmælisins með tveimur sam- söngvum í Akureyrarkirkju á laugardaginn kl. 16 og sunnudag- inn kl. 17. Þar kemur einnig fram kór gamalla félaga með sjálfstæða söngskrá undir stjórn Áskels Jónssonar, og Lúðrasveit Akur- eyrar mun leika undir sameigin- legum söng kóranna. Söngstjóri Karlakórs Akureyrar er Guð- mundur Jóhannsson, einsöngvari Óskar Pétursson og undirleikari Jonathan Bager. Einsöngvarar með eldri kórfélögum eru Eiríkur Stefánsson og Jóhann Konráðs- son, en undirleikari Philip Jenk- ins. Stofnfundur Karlakórs Akureyr- ar var haldinn 26. janúar 1930, en þá hafði kórinn æft söng í þrjá mánuði og sungið opinberlega 14. desember 1929. Aðalhvatamenn að stofnun kórsins voru Áskell Snorrason, tónskáld, sem var í senn fyrsti stjórnandi og fyrsti formaður söngfélagsins, og Þórir Jónsson, sem var fyrsti ritari þess. Fyrsti gjaldkerinn var Aðalsteinn Þorsteinsson. Lengst gegndi Jónas Jónsson frá Brekknakoti for- mennsku, en Steingrímur Egg- ertsson hefir lengst allra setið í stjórn. Hann var gjaldkeri í 24 ár, kom upp öflugu styrktarfélagakerfi og hefir séð um rekstur húseignar kórsins til þessa. Söngstjórar Karlakórs Akureyr- ar hafa verið þessir: Áskell Snorra- son (1929—-1942), Sveinn Bjarman (1942—1943), Áskell Jónsson (1943—1965 nema 2 ár), Jakob Tryggvason (1951), Jón Þórarins- son (1956), Guðmundur K. Jó- hannsson (1965—1970 og 1977 til þessa dags), Jón Hlöðver Áskelsson (1970—1973), Jón Hj. Jónsson (1973—1976) og Guðmundur Þor- steinsson (1976—1977). — Af stofn- endum kórsins eru nú með vissu tveir á lífi, Indriði Isfeld og Óskar Guðjónsson. Fyrsta söngförin var farin árið 1938 til Reykjavíkur, og í þeirri för var söngur kórsins fyrst hljóð- ritaður. Síðan hafa verið farnar margar söngferðir víða um land og ein til Norðurlanda, 1967. Þá var sungið í Noregi, Svíþjóð og Finn- landi. Fyrir fimm árum kom út hljómplata með söng kórsins. Árið 1961 keypti kórinn húseignina Laxagötu 5 í félagi við Lúðrasveit Akureyrar, og þar fara æfingar fram. Konur kórmanna hafa í 15 ár haft með sér félagið Hörpu, sem hefir stutt Karlakórinn á marg- víslegan hátt, ekki síst með fjáröfl- un og rausnarlegum gjöfum. Styrktarfélagar eru rúmlega 300, en starfandi söngmenn 45. Núverandi stjórn Karlakórs Ak- ureyrar skipa: Ari Friðfinnsson, formaður, Magnús Kristinsson, varaformaður, Benedikt Sigur- björnsson, ritari, Bryngeir Krist- insson, gjaldkeri, og Grétar Bene- diktsson, skjalavörður. Kórinn minntist afmælis síns með hófi í Sjálfstæðishúsinu á föstudaginn var, og þá var með- fylgjandi mynd tekin. Sv.P. Síðbúnir barnadagar... síöustu daga Partner verksmiðjuútsölunnar. Við lækkum verð á allskonar barnafatnaöi, s.s. peysum, buxum, skyrtum o.fl. Og nú prúttum við um hrúguna á borðinu, þar sem leynast margar góðar flíkur. Það er sannkölluð fjölskylduskemmtun að koma á Partner verksmiðjuútsöluna, því þar fá flestir eitthvað við sitt hæfi og „prísarnir“ fá alla til að brosa. Opið fimmtudag, föstudag og laugardag kl. 10—7. Verksmiðju- útsalan, bak við gamla Litavers- húsið, Grensásvegi 22. REGER TRIO BERNHARD HARTOG WOLFRAM CHRIST v,o,a ANSGAR SCHNEIDER Violoncello HLJOMLEIKAR I NORRÆNA HUSINU Á VEGUM GERMANIU OG ÞYZKA BOKASAFNSINS FÖSTUD. 1. FEBRIIAR 1980 KL. 20.30. Franz Schubert Max Reger Ludwig van Beethoven Strengiat'io i B-Dur D 581 Strengiatrio i d-moll op 141b Strengialrio i G-Dur op 9 1 r Félagið GERMANIA verður sextíu ara á þessu ari Hljómleikar þessir er einn þáttur í afmælishátið félagsins Enginn aögangseyrir. Strandgötu 1 — Hafnarfiröt Opiö 9—1 Rönk 'Nú mæta allir Pönk klæddlr, Pönk málaöir og Pönk greiddir. Og þelr sem koma þannig fá frítt inn. Spiluö veröur Pönk og nýbylgju tónlist frá 9—11/ og Dóri sýnir lit, ef ekki tvo. Bræðrabandið kemur svo kl. 11 meö sitt frábæra og villta atriöi úr villta vestrinu. Ath. Þiö fáiö Pönk hárlitlna ( Lokknum sfmi 51388 og jafnvel litunlna ef þörf krefur. Flensborgarar fjölmenniö Rokkótek — Rokkótek — Rokkót-ek I 4* Q> o O) -o o oc *o o oc R0KK0TEK íkvöld kl. 9—1 ATHUGIÐ LOKAÐ Á MORGUN Hótel Borg sími 11440 í fararbroddi í hálfa öld. I a> 'O o cc JtK 0) 'O o cc I JtK 0) »o 41 Jt Rokkótek — Rokkótek — Rokkótek œ Tfskusýning f kvöld kl. 21.30 Modelsamtökin sýna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.