Morgunblaðið - 07.02.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
3
Lítið um farsóttir
undanfarin tvö ár
ÓLAFUR Ólafsson landlæknir
sagði í samtali við Morgunblaðið að
mjög lítið hefði verið um farsóttir í
heiminum undanfarin tvö ár, en
þessar upplýsingar kæmu fram í
skýrslum sem landlækni berast
vikulega frá Alþjóða heilbrigðis-
málastofnuninni.
Ólafur sagði að aðeins hefði komið
fram einstöku tilfelli á mjög af-
mörkuðum svæðum, en venjulega
skytu farsóttir upp kollinum ein-
hvers staðar í heiminum a.m.k. einu
sinni á ári.
Flugleiðir:
• •
Onnur Boeing
þotan seld
til Mexíkó?
TVÆR þotur Flugleiða hafa að
undanförnu verið á söluskrá, ein
Boeing 727 þota og ein DC—8 þota.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa Flugleiða hafa menn
frá Mexíkó komið til viðra-ðna við
Flugleiðr um hugsanleg kaup á
Boeing þotunni og kvað Sveinn
tilboð frá þeim væntanlegt síðar í
vikunni.
Boeing þotan sem hér um ræðir er
fyrsta þotan er komst í eigu íslensks
flugfélags, Gullfaxi, sem Flugfélag
Islands tók í notkun 24. júní 1967.
Sveinn Sæmundsson sagði, að
Mexíkómennirnir væru fulltrúar
nýs flugfélags og hefði þeim litist
vel á þotuna m.a. vegna þess að hún
væri með vörudyrum, en þeir hefðu
hugsað sér að nota hana til vöru—
og farþegaflugs milli Mexíkó og
Bandaríkjanna. Að öðru leyti kvaðst
Sveinn ekki vita hverju fram yndi
varðandi hugsanlega sölu þotunnar,
beðið væri tilboðs, sem e.t.v. bærist
síðar í vikunni.
fyrst og fremst hönnuð með
björgunarstörf, fólksflutninga
og verklegar framkvæmdir í
huga.
— Þyrlan getur lent á öllum
varðskipunum og hægt verður að
taka hana í skýli á tveimur
þeirra með lítils háttar lagfær-
ingum. Þessi þyrla er talin
einhver bezta þyrlan, sem fáan-
leg er fyrir aðra starfsemi en
herstarfsemi. Þangað til á
síðasta ári leyfðu flugmálayfir-
völd í heiminum ekki þyrluflug í
myrkri að undanskildum her-
þyrlum. Með auknum tæknibún-
aði hefur orðið breyting á þessu
og almennar þyrlur geta nú
fengið leyfi til þess.
— Afgreiðslutíminn á okkar
þyrlu er áætlaður í júlí og reikna
má með að hún kosti okkur um
1% milljón dollara. Af þeirri
upphæð erum við búnir að greiða
lítinn hluta, en fjármögnun er
enn ekki endanlega ákveðin.
Rætt hefur verið um að selja
aðra Fokker-flugvél Landhelgis-
gæzlunnar, en það er þó ekki
afgreitt mál og stafar meðal
annars af óvissunni, sem ríkir í
stjórnmálum, sagði Pétur Sig-
urðsson.
Landhelgisgæzlan fær nýja
og f ullkomna þyrlu í sumar
-Rætt um að selja aðra Fokker-flugvélina
Landhelgisgæzlan á von á
nýrri þyrlu næsta sumar og er
hún af gerðinni Sikorsky S76.
Þyrlan hefur 4—600 sjómilna
flugþol, tekur 12 manns í sæti
auk tveggja flugmanna og
kaupverðið er um IV2 miiljón
dollara eða um 600 milljónir
króna. Nýja þyrlan getur flogið
jafnt í björtu sem í myrkri.
— Við reiknum með að fá
nýju þyrluna í júlí í sumar, sagði
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landhelgisgæzlunnar, í samtali
við Mbl. í gær. PJún er af
gerðinni S-76, sem er alveg ný
gerð, en þó þegar komin í notkun
og hafa verið pantaðar yfir 300
þyrlur af þessari gerð. Vélin er
ekki hugsuð sem herþyrla og
Þyrla Landhelgisgæzlunnar er
talsvert minni en sú, sem vænt-
anleg er í sumar, og er ekki búin
til flugs í myrkri. Þá hefur hún
heldur ekki spil til að bjarga
fólki úr háska, t.d. á sjó. Nýja
þyrlan verður búin tækjum til að
framkvæma slíka björgun.
I L^ ~V\rneð tágatgjPllfpwítlökkuðum hjólum.
ItrDOrO fitapgltgafur, önnur með keramikflísum
í borðplötu,hvítar eða'SSSnái'flísar, hin með plötum klæddum
með línoliumdúk eða harðplasti.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartun 29 Simi 20640
Hcegindastólar
Þægilegir léttir stólar úr birki, fást í mismunandi útgáfum, fjórir
litir af fléttuðum strigaböndum og ein útgáfa með fléttuðum
/S* klofnum reyr.
vfrí j