Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 4
4 PLAST i PLÖTUM PLASTGLER: Akrylgler í sérflokki. Glærar, munstraðar og í litum til notkunar í glugga, hurðir, bílrúður, milliveggi, undir skrifborðsstóla o.fl. Allt að 17 sinnum styrk- ieiki venjulegs glers. Fáanlegar í eftirtöldum þykktum: 10, 8, 6, 5, 4, 3 og 2 mm. Sólarolast Sunlux: Riflaðar og smábylgjaðar plastplötur til notkunar á þök, gróðurhús, svalir, milliveggi, o.fl. Gular, frostglærar, glærar. Báruplast: Trefjaplast í rúllum og plötum Plastþynnur: Glærar plastþynnur í þykktunum 0,25, 1 og 2 mm. Nýborg BYGGINGAVÖRUR ÁRMÚLA 23 SÍMI 86755 SPECK Lensi-, slor-, skolp-, sjó-, vatns- og holræsa-dælur. Utvegum einnig dælusett með raf-, bensín- og diesel vélum. SðMölaygjyKr J<§)(rD©®®!fi) ©(ö) Vesturgötu 16, simi 13280 Lestur Passíu- sálmanna MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1980 Erlingur Gíslason Jón Sigurbjörnsson Þóra Friðriksdóttir Brynja Benediktsdóttir Útvarpsleikrit klukkan 21.10: E igir tkon urnar 1 >rj iár í kvöld klukkan 21.10 verður í Ríkisútvarpinu flutt leikritið Eiginkonurnar þrjár eftir Eilu Penríanen, í þýðingu Ásthildar Egilson. Leikstjóri er Erlingur Gíslason. í hlutverkum eru Jón Sigurbjörnsson, Þóra Friðrikds- dóttir, Brynja Benediktsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Gunnar Rafn Guðmundsson. Flutningur leiksins tekur um eina klukkustund. Leikurinn fjallar um mann sem á tvö hjónabönd að baki og er nýgiftur þriðju konunni. Hann á við áfengisvandamál að stríða, en ákveðinn í að leita sér lækninga. Fyrri konurnar tvær ef tir Eilu Pennanen koma í heimsókn, staðráðnar í að vekja ábyrgðartilfinningu með manninum, en unga konan lítur á þær sem „illa sendingu", til þess ætlaða að spilla ham- ingju hennar. Eila Pennanen er fædd í Tammerfors í Finnlandi árið 1916. Hún er ein af fremstu og afkastamestu höfundum Finna eftir heimsstyrjöldina. Eila hef- ur skrifað skáldsögur, smásögur, ritgerðir, ljóð og leikrit og er auk þess frábær þýðandi. Einnig fæst hún við bókmenntagagn- rýni. Fyrsta bók hennar, „Fyrir stríð áttum við æsku“, kom út 1942, en merkasta verkið fram til þessa er að líkindum skáld- saga í þremum hlutum, sem gerist í fæðingarbæ höfundar um aldamótin. Eila Pennanen tók að skrifa útvarpsleikrit fyrir um það bil aldarfjórðungi, en hefur ekki verið sérlega afkastamikil á því sviði. Engu að síður hafa nokkur leikrita hennar vakið talsverða athygli og má í því sambandi nefna, að „Eiginkonurnar þrjár“ fékk Norðurlandaverðlaun í keppni útvarpsleikrita 1977—78. Útvarp í kvöld kl. 20.30: Tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar UNNENDUM klassískrar tónlistar, sem og öðrum hlustendum Ríkisútvarps- ins, skal bent á, að í kvöld verður útvarpað frá tón- leikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Háskóla- bíói. Verður fyrri hluta efnisskrár útvarpað beint, og hefst útsendingin klukkan 20.30. A efnisskránni eru for- leikur eftir Hector Berl- ioz, og fiðlukonsert eftir Sergej Prokofjeff. Stjórn- andi er Gilbert Levine og einleikari er Pina Carmir- elli. ÞAÐ er fyrir löngu orðin föst hefð í dagskrá Ríkisútvarpsins að láta lesa alla Passíusálm- ana upp fyrir páska, og er þeirri venju haldið í ár. Lesari er að þessu sinni Árni Krist- jánsson, en ýmsir kunnir and- ans menn hafa skipst á um að lesa sálmana. Passíusálma Hallgríms Pét- urssonar þarf líklega ekki að kynna sérstaklega fyrir út- varpshlustendum. Sálmarnir þykja tvímælalaust eiga heima innan um fágætustu gersemar íslenskrar mennigararfleifðar, og eru þeir oft taldir vera eitt besta dæmi um fagran kveð- skap í Evrópu eftir að upp var tekinn lútherskur siður. Ævi Hallgríms Péturssonar hefur ekki síður orðið mönnum Umhugsunarefni, en hann var prestur eftir að Brynjólfur Skálholtsbiskup fann hann bölvandi og ragnandi á íslensku í járnsmiðju í kóngs- ins Kaupinhafn. Þá átti fyrir honum að liggja að kvænast einni þeirra kvenna er hrökt- ust til Afríku eftir Tyrkjarán- ið 1627, og síðar fékk hann holdsveiki er að lokum dró hann til dauða. Allt þetta og miklu fleira hefur verið tíund- að rækilega yfir öllum þeim kynslóðum íslendinga er geng- ið hafa eftir hans dag, og hann stendur fólki ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. ^ Úlvarp ReykjavíK FIM4UUDNGUR 7. febrúar MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. (Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: Kristján Guðlaugsson heldur áfram lestri þýðingar sinnar á sögunni „Veröldin er full af vinum“ eftir Ingrid Sjöstrand (14). 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Morguntónleikar Hafliði Hallgrímsson og Halldór Ilaraldsson leika „Fimmu“, tónverk fyrir selló og píanó eftir Hafliða Hal!- grímsson / Guimoar Novaes leikur á píanó „Fiðrildi“ op. 2 eftir Robert Schuman / Gérard Souzay syngur Fimm grísk alþýðulög eftir Maur- ice Ravel; Dalton Baldwin leikur á pianó. 11.00 Iðnaðarmál. Umsjónarmenn: Sigmar Ármannsson og Sveinn Hannesson. Rætt við Hörð Jónsson verkfræðing hjá Iðntæknistofnun íslands. 11.15 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar SÍÐDEGIÐ Tónleikasyrpa. Léttklassísk tónlist. dans- og dægurlög og lög leikin á ýmis hljóðfæri. 14.45 Til umhugsunar. Karl Helgason fjallar um áfengismál. 15.00 Popp. Páll Pálsson kynn- ir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson sér um timann. 16.40 Útvarpssaga barnanna: „Ekki hrynur heimurinn“ eftir Judy Bloome. Guðbjörg Þórisdóttir les þýðingu sína (4). 17.00 Siðdegistónleikar Guðmundur Jónsson leikur Píanóetýður nr. 1—4 eftir Einar Markússon / Kamm- 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Skonrokk. Þorgeir Ástvaldsson kynnir vinsæl dægúrlög. 21.10 Kastljós. Þáttur um k_____________________________ ersveit Reykjavíkur leikur „Stig“, tónverk fyrir kamm- ersveit eftir Leif Þórarins- son; höfundurinn stj. / Jam- es Galway og Konunglega fílharmoníusveitin í Lundún- um leika Flautukonsert eftir Jacques Ibert; Charles Du- toit stj. / Luciano Pavarotti syngur aríur úr þekktum óperum. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. KVÖLDIÐ 19.35 Daglegt mál. Helgi Tryggvason fyrrum yf- irkennari flytur þáttinn. 19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja. 20.05 „Afmælisdagurinn“, smá- saga eftir Finn Söeborg. Halldór S. Stefánsson innlend málefni. Umsjónar- maður Guðjón Einarsson. 22.10 Lovey. Ný bandarísk sjónvarpskvikmynd. byggð á ævisögu Mary MacCrack- en, sem starfað hefur að kennslu þroskaheftra barna. Aðalhlutverk Jane Alexander. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 23.40 Dagskrárlok íslenzkaði. Karl Guðmunds- son leikari les. 20.30 Tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands í Há- skólabiói. Stjórnandi: Gil- bert Levine frá Bandaríkjun- um. Einleikari: Pina Carmi- relli frá Ítalíu. Fyrri hluta efnisskrár útvarpað beint: a. „Rómverskt karnival“, forleikur eftir Hector Berl- ioz. b. Fiðlukonsert nr. 2 í g-moll eftir Sergej Prokofjeff. Kynnir: Jón Múli Árnason. 21.10 Leikrit: „Eiginkonurnar þrjár“ eftir Eilu Pennanen. Þýðandi: Ásthildur Egilson. Leikstjóri: Erlingur Gísla- son. Persónur og leikendur: Paavo/Jón Sigurbjörnsson, Irma, fyrsta eiginkona hans /Þóra Friðriksdóttir, Ulla, önnur eiginkona hans/ Brynja Benediktsdóttir, Pála, sambýliskona hans/ Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Antero, sonur Paavos og Irmu/Gunnar Rafn Guð- mundsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Lestur Passíusálma (4). 22.40 Reykjavikurpistill Eggert Jónsson borgarhag- fræðingur talar á ný um breytingarnar í borginni. 23.00 Kvöldtónleikar a. Beaux Arts tríóið leikur Píanótríó í B-dúr eftir Jos- eph Haydn. b. Collegium con Basso kammersveitin leikur Sept- ett nr. 1 op. 26 eftir Alexand- er Fesca. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. SKJÁNUM FÖSTUDAGUR 8. febrúar 1980

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.