Morgunblaðið - 07.02.1980, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
Sandgerði:
Góður af li
togara en
bátaaflinn
er misjafn
Sandt?erði 5. feb.
í SANDGERÐI var landað í
janúarmánuði 2617 lestum
af bolfiski og 2250 lestum af
loðnu. Togararnir þrír,
Dagstjarnan, Erlingur og
Ólafur Jónsson, öfluðu allir
mjög vel í mánuðinum og
lönduðu þeir átta sinnum í
Sandgerði samtals 1003 lest-
um, að mestum hluta þorski.
Auk þess landaði Ólafur
Jónsson einu sinni í
Njarðvíkum í mánuðinum.
Bátarnir lönduðu í janúar 1614
lestum úr 436 sjóferðum en í sama
mánuði í fyrra var afli þeirra 1713
lestir í 426 sjóferðum. Mjög ógæft-
arsamt var hjá bátunum fram
eftir mánuðinum en þá feKkst
reytingsafli á línu þegar gaf. En
seinni hluta mánaðarins var mun
skárra veður en þá tregaðist afli
þeirra mjög á heimaslóðum og er
sáratregur þar enn. A dýpri mið-
unum fæst aftur á móti þokka-
legur afli á línu, þetta yfirleitt
4—10 lestir í róðri. Afli neta- og
togbáta hefur verið mjög tregur
það sem af er árinu.
í gær lönduðu hér 30 bátar 134
lestum og voru stærri línubátarnir
almennt með 5—8 lestir og í
morgun kom togarinn Erlingur
inn eftir viku útivist með um 140
lestir. Aflahæstu bátarnir í jan-
úar voru Freyja með 135,8 lestir,
Bergþór 114,2 lestir og Arney
102,8 lestir. Freyjan og Bergþór
eru á línu en Arney á netum.
— Jón.
Vetrarvertíð
á Vestfjörðum:
Góðar
gæftir en
langt sótt
VETRARVERTÍÐ Vest-
fjarðabáta hefur gengið all-
vel það sem af er, gæftir
hafa verið góðar, en afli þó
mun lakari en var á haust-
vertíðinni. Sá fiskur, sem
fengist hefur, er fuliur af
loðnu og tekur því ekki
beitu. Línubátar frá Djúpi
hafa róið austur í Reykja-
fjarðarál síðustu daga og
fengið þar ágætan afla, 8—
12 tonn í róðri, en verið á
annan sólarhring í róðrin-
um. Patreksfjarðarbátar
hafa undanfarið leitað fyrir
sér úti á landgrunnsbrún-
inni í vestur frá Patreks-
firði.
Meðalafli í janúar var um 5
lestir á bát, sem er hliðstætt því
sem verið hefur tvær síðustu
vetrarvertíðar. Á haustvertíðinni
var meðalaflinn hins vegar 8 tonn
í róðri. Aflahæstur Vestfjarðabát-
anna í janúar var Orri frá ísafirði
með 176.6 lestir í 25 róðrum,
Víkingur III frá ísafirði með 149.3
lestir í 24 róðrum, Jakob Valgeir
frá Bolungarvík með 148.9 lestir í
24 róðrum, Garðar frá Patreks-
firði með 145.6 lestir og Vestri frá
Patreksfirði með 144.4 lestir í 24
róðrum.
Möppudýragarðurinn
nefnist nýtt íslenskt
leikrit sem frumsýnt
verður hjá Leikfélagi
Hveragerði í Hótel
Hveragerði annað kvöld.
Leikritið er eftir Óttar
Einarsson kennara á
Akureyri, en leikstjóri
er Aðalsteinn Bergdal.
Leikmynd gerði Ha-
llmundur Kristinsson.
Allir hafa þeir þremenn-
ingar komið við sögu hjá
Leikfélagi Akureyrar,
sem raunar ætlaði upp-
haflega að setja verkið á
Allt í fullum gangi á sviðinu: Kristján Theódórsson, Kristín Michelsen, Rósa Ragnarsdóttir, Jóhanna
Sigurgeirsdóttir, Elsa Busk, Steindór Gestsson, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson og liggjandi er Arni
ÓIi Þórisson. Ljósm: Ragna.
Möppudýragarðurinn
Sviðsljósunum komið fyrir. Arnar Daðason og Gísli Garðarsson við
uppsetningu ljósanna.
Sviðsmenn að störfum við undirbúning sýningarinnar, talið frá
vinstri: Kjartan Bjarnason, Þorsteinn Hansen og Kristján
Theódórsson. Ljósmyndina tók Ragnar Axelsson.
svið. Ekki varð þó af því
af ýmsum ástæðum, með-
al annars vegna tíma-
skorts að sögn.
Blaðamaður og ljós-
myndari Morgunblaðs-
ins lögðu leið sína aust-
ur fyrir Fjall í vikunni
og litu þá við á æfingu
Leikfélags Hveragerðis í
Hótelinu.
Þeir Aðalsteinn leikstjóri og
Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson
formaður Leikfélagsins sögðu,
að æfingar hefðu gengið ágæt-
lega, en þær hófust um miðjan
nóvember, og tóku þær aftur
upp í janúar að loknu löngu
jólafríi. Þetta er annað verkið
sem sýnt er í vetur, því í haust
var tekið til við að sýna
„Ærsladrauginn“, sem þá var
vakinn upp, en hann var sýnd-
ur í fyrravetur einnig.
Aðalsteinn sagði leikritið,
sem raunar væri réttara að
nefna ærsla- eða fáránleik,
sem nokkuð svipaði til kaba-
retts, fjalla um þaráttu manns
við „Kerfið". „Hann verður
fyrir því óláni að eignast nokk-
ur börn utan hjónabands,"
sagði Aðalsteinn, „raunar
hvorki meira né minna en 12
börn á einu ári með jafnmörg-
um konum. Maðurinn er deild-
arstjóri í einni deild S.O.S.,
sem stendur fyrir Samvinnu-
félag okkar Sunnlendinga, og
þar vinna konurnar tólf einnig.
Nú, það er ekki að orðlengja
það, að manninum er sagt að
fólk ætti að kannast vel við.“
Með eitt stærsta hlutverkið
fer Sigurgeir Hilmar Frið-
þjófsson, en með önnur helstu
hlutverkin fara Bergþóra
Árnadóttir og Steindór Gests-
son, sem raunar leikur hvorki
meira né minna en sjö hlut-
verk! Þá leika þeir undir á
píanó og gítar, Theódór Krist-
jánsson og Árni Jónsson. Alls
eru leikarar 14 talsins, en að
sýningunni vinna um 20
manns.
Sigurgeir sagði að Leikfélag
Hveragerðis væri nú 44 ára að
aldri, og væri líklega búið að
sýna álíka mörg leikrit. Með
Möppudýragarðinn sagði hann
að yrði farið í nágrannabyggð-
irnar, auk þess sem líklega yrði
sýnt á Seltjarnarnesi og í
Reykjavík, auk þess sem Akur-
eyri væri ofarlega á blaði.
Aðalsteinn sagði aðstæður í
Hótel Hveragerði vera heldur
erfiðar, einkum baksviðs og
hvað búningsaðstöðu snerti.
Salurinn sem slíkur væri hins
vegar ekki sem verstur. „Þá eru
leikararnir hér heldur alls ekki
sem verstir," sagði Aðalsteinn,
„heldur eru þeir í raun alveg
frábærir. Hér örlar til dæmis
ekki á þessum fræga „lestón"
sem oft veldur erfiðleikum,
heldur setja leikararnir fram
textann óaðfinnanlega. — Það
ætti því að vera hægt að lofa
góðri skemmtun og sennilega
væri ráðlegra að biðja fólk með
falskar tennur að skilja þær
eftir heima!“
- AH
Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson formaður Leikfélags Hveragerðis
og Aðalsteinn Bergdal leikstjóri.
hann verði að greiða fæðingar-
orlof kvennanna allra, eða
samtals 36 mánuði! Síðan er
rakin barátta hans við Kerfið;
hann þarf að slá fé hjá lánar-
drottnum og svo framvegis, og
einnig verður hann einnig að
létta sér upp annað veifið, en
allt virðist þetta ganga á mikl-
um afturfótum hjá honum og
flest gengur honum í óhag.
Ég tel þó ekki rétt að rekja
efnisþráðinn of nákvæmlega til
að spilla ekki ánægju væntan-
legra leikhússgesta, en get að-
eins sagt það, að þetta er
ákaflega létt verk og hressi-
legt, algjör ærslaleikur með
miklum söng. Höfundur er eins
og sagði að framan Óttar
Einarsson á Akureyri, en í
æfingum okkar hér hefur það
þó tekið allmiklum breyting-
um, auk þess sem það hefur
verið staðfært. Tónlistin er öll
frá því eftir stríð, allt lög sem
Nýtt íslenzkt leikrit
á fjalimar hjá Leik-
félagi Hveragerðis