Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980 _______________________________2 1 1134 íbúðir í smíðum í Reykjavík um áramót Á SÍÐASTA ári var lokið bygg- ingu húsnæðis í Reykjavík, sem samtals telur 514.223 rúmmetra. íbúðarhús telja 228.603 rúm- metra, skólar og félagsheimili 23.041 rúmmetra, verzlunar- og skrifstofuhúsnæði 71.313 rúm- metra, iðnaðar-, verkstæðis- og geymsluhús 106.909 rúmmetra og bílskúrar og geymslur 84.357 rúmmetra. Meðalstærð nýbyggðra íbúða er ca. 436 rúmmetrar, en það er 26 rúmmetrum meira en árið 1978. I smíðum um áramótin voru 1134 íbúðir, þar af 592 fokheldar eða meira. A árinu var hafin bygging á 536 nýjum íbúðum. Á síðasta ári var lokið við 79 færri íbúðir en 1978, en hins vegar hafin bygging á 25 fleiri íbúðum en 1978. Á árinu samþykkti bygg- inganefnd 113 áður gerðar íbúðir. Friðjón og Pálmi óráðn- ir ennþá ÞEIR Friðjón Þórðarson og Pálmi Jónsson alþingismenn höfðu í gærkvöldi ekki tekið ákvörðun um það, hvort þeir gerðust stuðningsmenn ríkis- stjórnar Gunnars Thoroddsen eða ekki. Friðjón og Pálmi sátu í gær fundi með stjórnarmyndunarað- ilum og einnig áttu þeir fund með Geir Hallgrímssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, og Ólafi G. Einarssyni, formanni þingflokks sjálfstæðismanna. Hvorki Geir Hallgrímsson né Ólafur G. Ein- arsson vildu segja nokkuð af þeim fundi og Mbi. tókst ekki að ná í Friðjón, Pálma eða Eggert Haukdal seint í gærkvöldi. ■ Sovétríkin Sovétríkin eru stærsta ríki í heimi, teygja sig vestan frá Eystrasalti austur að Kyrrahafi og 5000 km leið frá norðri til suðurs. Það er fróðlegt að skoða á korti hvernig þau hafa verið að smástækka síðan þau urðu til. Ártölin sýna það. Að forminu til eru þetta, skv. stjórnarskrá Sov- étríkjanna 1977, 15 sam- bandsríki, 22,4 millj. ferkm. Flest gengu þau endanlega í ríkjasambandið 1922, þó ekki öll. Og það er athyglisvert að ríkin norðan við Afganistan, Kazak- stan og Kirgizía voru síðust, ekki fyrr en 1936, og Tadzhikistan 1929. stœkka jafnt og þétt Síðan hafa smám saman verið innlimaðir bitar næst landa-' mærunum. 1940 tóku Sovétmenn að vestan Eistland, Lettland og Lithaugaland. Einnig Moldavíu eða Bessarabíu við landamæri Rúmeníu, og 1944 fengu þeir Karilíu á Kirjálasvæðinu frá Finnum. Landamærin að vestan liggja norðan frá Ishafi og suður að Svartahafi að Noregi, Finn- landi, Póllandi, Tékkóslóvakíu, Ungverjalandi og Rúmeníu, þau síðasttöldu austan járntjalds og undir áhrifamætti þeirra, svo sem sjá mátti þegar Rússar réðust með her inn í Ungverja- land 1956 og Tékkóslóvakíu 1968. Að sunnan liggja Sovétríkin að Tyrklandi, íran,- Afganistan, Kína, Mongólíu og Kóreu. Mong- ólía er á þeirra áhrifasvæði. Fóru þeir fyrst að fara inn í hana með her 1920—25 og oftar síðan, svo sem 1932 og 1939. Og nú hefur sovéskur her farið suður yfir Afganistan. Þessi tvö ríki eru því a.m.k. hálfinnlimuð. Að austan hafa Sovétmenn líka fengið viðbótarland. Tóku á síðustu dögum heimsstyrjaldar- innar síðari — eftir að atóm- sprengjunni hafði verið varpað á Japan — landsvæði og hafa ekki síðan skilað Sakalínskaga og Kúrileyjum. Hér hefur þetta verið sett niður á kort til glöggvunar. Punktalínan sýnir landamæri Sovétríkjanna. Gunnar Thoroddsen um málefnasamninginn: „Ekki ákveðið hvernig mál- ið verður lagt fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins“ „í ALLAN dag höíum við unnið að gerð málefnasamn- ings og þessu hefur skilað vel áfram,“ sagði Gunnar Thoroddsen alþingismaður í samtali við Mbl. í gær þegar blaðið ræddi við þrjá aðila í stjórnarmyndunar- tilraunum Gunnars. „Þessu hefur skilað vel áfram,“ sagði Gunnar, „en hér er um að ræða nokkuð ítarlegar málefnasamning um helztu þætti þjóðmála. Fyrst og fremst um efnahagsmál og verðbólgu, en einnig önnur mál, eflingu atvinnulífs o.fl. Við stefnum að því að ljúka gerð málefnasamningsins í kvöld og að ríkisstjórnin taki við völdum á föstudag. „Heíur verið rætt um skipt- ingu ráðuneyta?“ „Það hefur lítið verið rætt um það mál.“ „Það hefur verið rætt um hugsanlega stuðningsmenn þína. Liggur fyrir hverjir þeir eru?“ „Eggert Haukdal hefur verið með okkur á þessum fundum, fylgzt með og tekið þátt í undir- búningi. Þá hafa þeir Friðjón og Pálmi verið með okkur í dag og þeim hefur verið kynntur mál- efnasamningurinn. Þeir hafa einnig lagt til málanna, gefið ábendingar og gert athugasemdir við ýmsa þætti svo að gagn hefur orðið að.“ „Þú hefur sagt, að þú ætlir að leggja málefnasamninginn fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins og kynna hann.“ „Hef ég sagt það? Ætli ég hafi notað orðið að kynna? Það verður ekki ákveðið hvernig því verður háttað varðandi þingflokkinn fyrr en málefnasamningurinn er til- búinn." „Hyggst þú leggja málefna- samninginn fyrir flokksráðsfund Sjálfstæðisflokksins n.k. sunnu dag?“ „Það er ógerningur að segja til um það í dag, það gerist svo margt á hverjum degi. Ef þingflokkurinn samþykkir að koma til samstarfs um þessa stjórnarmyndun, þá mun ég gera grein fyrir málinu af minni hálfu á þingflokksfundi." „Ef þú hyggst ákveða ríkis- stjórnina á morgun, fimmtudag, og ætlar að hún taki við völdum á föstudag, er þá einhver timi til að kynna þingflokki Sjálfstæðis- flokksins málið?“ „Það er ekki hægt að taka neinar ákvarðanir á þessu stigi." „Við fórum yfir málefnagrund- völlinn á þingflokksfundi Fram- sóknarflokksins í dag eins og hann Eggert Haukdal kemur til stjórn- armyndunarviðræðna að Lauga- vegi 18 í gær. liggur fyrir og gerum aðeins örfáar athugasemdir við hann,“ sagði Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, í samtali við Mbl. í gærkvöldi. „Það verður annar þingflokksfundur hjá okkur og framkvæmdastjórn í fyrramálið kl. 10 og ég vona að skipting ráðuneyta liggi þá fyrir — hún þyrfti að gera það.“ „Málefnasamningurinn hefur Hjörleifur Guttormsson og ólaf- ur Ragnar Grímsson stika upp Laugaveginn. Ljósm.Mbl.: ói.k.m. verið ræddur á þingflokksfundi Alþýðubandalagsins í dag, en mál- ið er ekki afgreitt ennþá." „Eruð þið sáttir við málefna- samninginn. þótt hann sé ekki afgreiddur ennþá?“ „Nei, en það verður annar þing- flokksfundur kl. 10 í fyrramálið, en ég veit ekki hvort málið verður afgreitt þá.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.