Morgunblaðið - 07.02.1980, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.02.1980, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980 Ólafsvíkurenni milli Olafsvíkur og Kifs. Fimm snjóflóð féllu á veginn undir Ólafsvíkurenni: Veghefilliim stanzaði aðeins steinsnar frá bjargbrúninni Ólafsvik. fi. fohrúar. LITLU munaði að stórslys yrði þegar mikið snjóflóð féll á veginn Ólafsvíkurenni. þar sem veghefill var að ljúka við að riðja veginn. Flóðið hreyf hefil- inn með sér og feykti honum um 20 metra niður snarhratta hlíðina og staðnæmdist hann ekki fyrr en steinsnar frá bjargbrúninni. en þar cr um 50 metra hengiflug fram af niður í sjó. Þrátt fyrir erfiðar aðstæöur tókst hefilstjóranum, Ríkharði Hjörleifssyni, að komast út úr heflinum lítt meiddur. Hann hlaut aðeins skrámur hér og þar. Annárs má segja að mikil mildi var, að ekki urðu frekari slys, því aðeins munaði hárs- breidd, að annað snjóflóð hryfi með sér sex fólksbíla, sem biðu þess að vegurinn opnaðist. Það var rétt um hádegið að veghefillinn var sendur út í Enni til að ryðja veginn, en það hafði fennt mjög í driftir. Þeir sem á eftir heflinum komu sögðu svo frá, að hann hefði verið að ryðja síðustu hindruninni úr vegi þeg- ar flóðið kom æðandi framan á hann. — „Flóðið feykti heflinum svo eins og eldspýtustokki út af veginum og áfram um 20 metra niður undir bjargbrúnina". Skriðan sjálf mun hafa verið 30—40 metra breið og mjög þykk. Er Ríkharður hafði komizt út út heflinum ætlaði einn bílanna, sem beið, að aka honum til Ólafsvíkur, en þá féll stór snjóskriða þar rétt hjá þannig að bílarnir sex voru innilokaðir. Það munaði því aðeins hárs- breidd að stórslys yrði í því tilviki. Það var svo tveimur tímum síðar, að stór grafa opnaði veg- inn á nýjan leik við mjög slæmar aðstæður, auk þess sem mikil hætta var á því að ný flóð féllu. Veginum var eftir þetta lokað vegna slysahættu. Alls munu fimm snjóskriður hafa fallið á veginn í dag, en það er ekki svo óalgengt yfir vetrartímann. Hreppsnefndir Ólafsvíkur og Neshrepps hafa ítrekað sent stjórnvöldum óskir um aðgerðir til að draga úr slysahættu í Enninu, en því hefur lítt eða ekki verið sinnt til þessa. — Helgi. Búfé fækkaði veru- lega á síðasta ári SAMKVÆMT bráðabirgðauppgjöri forðagæzlumanna í 56 hreppum landins í 6 sýslum hefur orðið veruleg fækkun búfjár á sl. ári og eru aðalástæður þess taldar vera hin mikla ótíð sem var allt síðasta sumar, þannig að mjög lítið náðist inn af góðum heyjum. Nautpeningi hefur samkvæmt uppgjörinu fækkað um 8,68% frá fyrra ári, mjólkurkúm um 6,80%, sauðfé um 10,68% og hrossum um 6.07%. — £> INNLENT Þá hefur fariö fram könnun á eftirtekju og kemur þar í ljós að rýrnun eftirtekju á Suðurlandi hefur verið um 3%, en um 20% nyrðra, en um 12% reiknast rýrn- un eftirtekju, mæld í næringar- gildi fóðursins, í samanburði við árið 1978. Það er því reiknað með að fyrir landið í heild reynist eftirtekju- tapið milli ára vera um 12% og er áætlað að tap bænda vegna þessa nemi á fjórða milljarð króna. Skattframtöl: Eyðublöðin borin út á næstu dögum Framtalsfrestur óbreyttur, eða 25. febrúar n.k. RÍKISSKATTSTJÓRI hefur nú gefið öllum .skattstjórum lands- ins fyrirmæli um að hefja dreif- ingu hinna nýju framtalseyðu- hlaða, sem prentuð hafa verið. Sigurbjörn Þorbjörnsson ríkis- skattstjóri sagði í samtali við Mbl. að væntanlega yrði hafist handa við dreifingu eyðublaðanna í kringum næstu helgi og síðan í kjölfarið yrðu gefnar út leiðbein- ingar um framtalið, sem unnar hafa verið af starfsmönnum ríkis- skattstjóra. Aðspurður sagði Sigurbjörn að enn hefði ekki verið tekin nein ákvörðun um frekari framtals- frest, en samkvæmt síðustu ákvörðun ber fólki að skila fram- tölum sínum fyrir 25. febrúar n.k. Landið sígur og skjálftum linnir á Kröflusvæðinu SlÐUSTU sex daga hefur land sigið á Kröflusvæðinu og jarðskjálftum' fækkað úr 20—30 á sólarhring í aðeins einn í gærdag. Landsigið er mjög hægt ög var'varla merkjanlegt fyrst i stað og sambærilegt við sig. sem varð á svæðinu fyrstu tíu dagana í desember, en að því sigi loknu byrjaði land að rísa að nýju og hefur aldrei verið hærra en nú. Þetta sig nú og það sem var í desember eru mun minni en þessi stóru sig undanfarin ár, þegar kvikan hefur hlaupið um lengri veg í norður eða suður, sagði Axel Björnsson jarðeðlisfræðingur í samtali við Mbl. í gær. — Þannig er nú um breytta hegðun að ræða og þróunin er mjög hægfara, sagði hann. Þegar hann var spurður hvort umbrot- unum við Kröflu væri e.t.v. að ljúka, svaraði hann því til, að fleiri veltu þeim möguleika fyrir sér. — Það er einn möguleikinn að svo sé, en ég held að enn sé of snemmt að slá nokkru föstu um það. Það veröur að fylgjast með þessari þróun og sjá hvað gerist. Sumir jarðvísindamenn halda því fram, að þetta séu dauðateygjurn- ar og aðrir að umbrotin séu að breyta um eðli og áfram megi vænta tíðinda af þessu svæði, sagði Axel. Þess má geta, að enn er skjálftavakt í Reykjahlíð, en jarðvísindamenn hugleiða nú hvort leggja skuli til við Al- mannavarnarráð, að sú öryggis- vakt verði lögð niður. ísafjörður: íbúðarhús eyðilagðist í eldsvoða HÚSIÐ við Mánagötu 2 á ísafirði, sem er tvílyft íbúðarhús. skemmdist mikið af völdum elds og vatns í gærdag og má segja að allt innbú tveggja fjölskyídna. sem þar bjuggu, sé ónýtt. Eldur kom upp í húsinu um hálfsexleytið í gærdag og varð húsið fljótlega alelda. Slökkvilið Isafjarðar var þegar kallað á staðinn og tók um klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. Fóru nið- ur um ís á Þing- vallavatni ÍSINN á Pingvallavatni hefur undanfarið verið ha'ttulegur yfirferðar og þá einkum á vatninu aust- anverðu. Fyrir nokkrum dögum varð það óhapp á vatninu. að ísinn gaf sig undan hjónum. sem þar voru á ferð á vélsleða ásamt fjögurra ára syni sínum. Is var undir í vök- inni. og hefur það trúlegast orðið fólkinu til bjargar. Hafði fólkið farið út á vatnið til að vitja um net og var þetta í þriðja skiptið. sem þau fóru þeirra erinda. Um hvað voru þeir að tala? GUÐMUNDUR .1. Guðmundsson alþingismaður kom í gær að máli við Morgunblaðið og vildi benda á, að frá hendi Alþýðubandalags- ins hafi viðræður, sem fram hefðu farið við Alþýðuflokkinn, og hann tók þátt i ásamt Þresti Ólafssyni og Magnúsi H. Magn- ússyni og Karli Steinari Guðna- syni aðeins staðið um það að freista þess að finna málefna- grundvöll milli þessara tveggja flokka, en ekki um nýsköpunar- stjórn, eins og fram kom í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í fyrradag. Hins vegar er það ljóst, að Magnús H. Magnússon og Karl Steinar Guðnason áttu einnig í viðræðum við sjálfstæðismenn á þessum sama tíma. Alþýðuflokks- mennirnir kynntu þær hugmynd- ir, sem þar var rætt um sem hugsanlegan grundvöll að nýsköp- unarstjórn. Til þeirra viðræðna voru nefndir af sjálfstæðis- mönnum þeir Ólafur G. Einarsson og Lárus Jónsson. Því er ljóst af þessu, að um nýsköpunarviðræður var að ræða milli Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks, en viðræður um málefnagrundvöll milli Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks. Ný- sköpunarstjórn er eins og kunnugt er samstjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks. Harður árekstur MJÖG harður árekstur varð á Vesturlandsvegi um klukkan 15 í gærdag. Pick- up bifreið ók af- leggjarann frá Skálatúnsheimil- inu og út á Vesturlandsveginn og lenti þá í árekstri við vörubifreið, sem kom frá Reykjavík. Hentist minni bifreiðin talsverðan spöl og rotaðist ökumaðurinn. Hann var fluttur á slysadeildina. Báðir bílarnir skemmdust mikið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.