Morgunblaðið - 07.02.1980, Síða 36

Morgunblaðið - 07.02.1980, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980 M0RödK/-í6^_ KAFr/NU \ R Þú veiddir hana! Nú skaltu bara vinda að því bráðan bug að steikja hana. Ég er kominn á lappir — kominn á lappir — kominn á lappir! Ég vann fimm milljónir! Flöskuhálsar og mengun BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Sem gjafari opnaði suður á tveim gröndum með spilin að neðan. Norður beitti þá einfaldri samlagningu og sagði lokasögn- ina. sex grönd. Norður S. K92 H. K93 T. ÁD6 L. 9864 Vestur S. DG10 H. D874 T. 95 L. G1032 Austur S. 8753 H. G62 T. G842 L. 75 Suður S. Á64 H. Á105 T. K1073 L. ÁKD Útspil spaðadrottning. Suður tók slaginn heima og þegar í ljós kom, að laufin skiptust ekki 3—3, austur lét spaða, varð greinilega að ná fjórum slögum á tígul. Og að auki varð að beita vestur valdi, svo hann gæfi eftir tök sín á svörtu litunum. En hvernig? Ef þvingun átti að nást varð að gefa einn slag og fengi austur slag á hjarta myndi hann spila spaða og þá yrði ekki fyrir hendi inn- koma á blindan á réttum tíma. Suður fann laglega lausn á þessu. En hún krafðist þess, að austur ætti bara þrjú hjörtu og því fjora tígla. Eftir slagina þrjá á lauf tók suður á ás og drottningu í tígli, spilaði tígli á tíuna, og tók á kónginn en vestur varð þá að iáta tvö hjörtu og blindur mátti missa eitt hjarta. Þar með vorU fimm spil á hendi og óskastaðan að koma. Hjartakóngur og ás fylgdu og vestur lenti í óttalegri púka- pressu þegar suður lagði hjartatí- una á borðið. COSPER Maturinn var svo sem ekkert sérstakur, en tíma- sprengjan — hún heppnaðist ágætlega! „Heill og sæll, Velvakandi minn. Áttu svolitla prentsvertu, sem þú mátt sjá af, til þess að koma eftirfarandi á framfæri? Ég ætla ekki að taka fyrir, til umræðu, nema örlítinn hluta af Reykjavík, sem sé Laugavegs- spottann frá Hlemmi að Sjón- varpshöllinni. 1. Frá fleyg-gatnamótum Hverf- isgötu og Laugavegar að Mjólkurstöðinni þrengist gatan, sem nú heitir Laugavegur, svo hún myndar „flöskuháls". 2. Þarna um fer hér um bil einn bíll á 3ja sekúnda millibili. 3. Gegnt Mjólkursamsölunni er gangbraut, þar hafa bílar (bílstjórar þeirra) ekið á fólk á gangi þar yfir. 4. Væri ekki ráð að mála gangbrautarmerki á akbrautina? Það er ekki alltaf snjór á henni. 5. Og banna framúrakstur á þessum spotta og mála einnig slíkt bannmerki á götuna. Ósk mín að umferðarmerki séu máluð á göt- una, er vegna þess að mér virðist að sumir ökumenn hafi augun langt fyrir neðan sjóndeildar- hringinn og sjá þess vegna ekki þessi háu umferðarmerki á stólp- unum. 6. í áðurnefndum „flöskuhálsi", frá Þverholti að Mjólkurstöðinni, er eins og áður segir mikil og hröð bílaumferð og þar af leiðandi Vestur Norður S. K9 H. - T. - L. 9 Austur S. G10 S. 87 H. - H. G T. - T. - L. G L. - Suður S. 64 H. 10 T. - L. - Greyið mátti ekkert spil missa og blindur tók síðustu slagina. Maigret og vínkaupmaðurinn 39 — í fötum hans sem voru mér send 'var lyklakippa. Ég býst við að þar hafi einnig verið lykillinn að peningaskápnum en ég hugaði ekkert að þvi. — Ég ætla ekki að trufla yður meira að sinni. en jafn- skjótt og jarðarförin er um garð gengin ... — Þér getið bara hringt í mig sejnni partinn á morgun. — Ég leyfi mér að biðja yður að farga ekki neinu ... Skyldi ekki forvitnin verða annríkinu yfirsterkari svo að hún færi í skápinn í dag og athugaði hvað þar væri að finna. Síðan hringdi hann í Gíraff- ann. — Ifvernig gengur? — Því skyldi það ekki ganga vel? — Mér er tjáð að yður hafi verið hoðið í jarðarförina. — Já. hún hringdi í mig. Ég hafði ekki búizt við því. Ég hafði á tilfinningunni. að henni gcðjaðist ekki að mér. — Segið mér, er peninga- skápur á Quai de Charenton. — Já, í skrifstofu bé)khaldar- ans. — Hver er með lykilinn að honum? — Náttúrlega bókarinn og væntanlega hefur Oscar sjálfur haft lykil. — Vitið þér hvort hann gcymdi einkabréf þar? — Það hcld ég ekki. Þegar honum bárust slík bréf reif hann þau annað hvort i ta-tlur eða stakk þeim í vasann. — Viljið þér samt spyrja bokarann og segja mér svar hans. Ég bíð. Ifann notaði tækifærið að kveikja sér í pípunni. Nokkrum minútum síðar kom hún aftur. — Eruð þér þarna enn? - Já. — Þetta var ‘rétt hjá mér. Það er ekkert í skápnum annað en skjöl og dálítið í seðlum. Bókarinn veit ekki einu sinni hvort Chabut hafði lykla. Það er víst frekar að hr. Lepretrc hafi lykil. — Þakka yður fyrir. — Verðið þér við útförina? — Ég geri ekki ráð fyrir því. Mér hefur ekki verið boðið. — Það hafa allir leyfi til að ganga inn i kirkju. Hann lagði tólið á. Hann var enn þungur í höfðinu. en skapið var betra en um morguninn. Hann gekk inn til samstarís- manna sinna. Lapointe sat þar og skrifaði skýrsluna sína í óðaönn. Ilann pikkaði á ritvél og notaði aðeins tvo fingur en hann var eldfljótur samt. — Ég fékk heimsókn áðan. sagði Maigret. — Það var lista- verkabókaforleggjarinn. — Ilvað vildi hann? — Fá einhver bréf aftur. Það er alveg ófyrirgefanlegt að ég skyldi ekki hugsa út í þau bréf sem Chabut hefur fengið. Þar ga>ti verið að finna eitthvað sem kynni að leiða eitthvað í ljós. Það á meðal annars við um bréf Caucassons. Hann skrifaði til að biðja Chahut um peninga. Eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslensku — Vegna þess að Chabut var í tygjum við konu hans? — Caucasson kom einu sinni að þeim. Reyndar hélt hann nú víst um tíma við Jeanne Chabut. En þetta er athyglisvert og það gæti verið að við kæmumst á snoðir um hitt og annað ef við næðum í bréfin ... — Ilvar cr þau að finna? — Væntanlega i pcninga- skáp sem er byggður inn í vegginn bak við málverkið af honum sjálfum á heimili hans. — Ilefur kona hans lesið þau? — Mér skilst hún hafi ekki látið sér detta í hug að gá í skápinn. Ilún fann af tilviljun lykilinn að honum í flíkum þeim sem voru sendar heim til hennar og maður hennar var klæddur á miðvikudaginn. — Hafið þér rætt þetta við hana? — Já og ég er viss um að hún opnar skápinn og tckur bréfin og les þau i kvöld. Jarðarförin er á morgun. Það verða bara nokkrir útvaldir viðstaddir og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.