Morgunblaðið - 07.02.1980, Side 37
MnwfílINBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
^vfíéim
mikið slit á vegi og hjólbörðum, er
safnast saman í aurrastir, sem
síðan þrýstast undan hjólbörðun-
um, ata húsin, vegfarendur og
gangstéttir auri. Þú ættir að líta á
þetta, Velvakandi minn.
7. Höldum við síðan inn að
Sjónvarpshöll, þá sjáum við, þegar
rignir, að frárennsli frá akbraut-
inni er ófullnægjandi. Ágjöf af
vatni blönduðu steinmylsnu, as-
falti og fleiru, gengur langt yfir
gangbrautina og á gangandi veg-
farendur.
8. Þegar slíkt ástand er ætti að
setja upp skilti til aðvörunar
gangandi vegfarendum.
Hlé.
Þegar ég tók aftur til við þetta
verkefni, var kominn þurrkur með
roki og síðan logni. Þá breyttist
auðvitað sviðið á sömu stöðum. I
stað aurslettna á hús, gangstéttir
og vegfarendur fáum við þessa
blöndu þurrkaða ofan í lungu.
Ekki veitir af, því af stein- og
örefnum er ekki nóg í venjulegu
fæði, er það? Ég vil nú samt kalla
þetta mengun, lyktar- og bragð-
lausa mengun. Ef til vill er ekki
orð á þessu gerandi samanborið
við „peningalyktina"?
Velvakandi minn, ég bað þig hér
á undan að líta áðurnefndan hluta
úr Reykjavík í bleytu. Nú bið ég
þig að skoða staðinn einnig í
þurrki, en hafðu með þér
rykgrímu og láttu síuna á vog
fyrir og eftir komuna.
Svo þakka ég þér fyrirhöfnina.
Sig. H. Ólafsson.“
Þessir hringdu . . .
• Hlutleysi
Alberts,
Einar Þ. Mathiesen:
„Mér eins og mörgum öðrum
hafa þótt broslegar skýringar og
rökstuðningur Alberts Guð-
mundssonar á fyrirheiti sínu um
að verja vantrausti ríkisstjórn
sem Gunnar Thoroddsen myndi
mynda með Framsókn og komm-
únistum.
Albert segir m.a. að nauðsyn-
legt sé vegna sveitarfélaganna í
landinu að mynduð verði stjórn til
að afgreidd verði fjárlög sem fyrst
á Alþingi. Því þá fyrst verði hægt
fyrir sveitarfélögin að ganga frá
sínum fjárhagsáætlunum. Vissu-
lega er það rétt að knýjandi er
orðið að hefja störf á Alþingi en
hver trúir því að Albert Guð-
mundsson beri hag sveitarfélag-
anna úti á landi fyrir brjósti?
Hvað eru mörg ár síðan Albert
Guðmundsson barðist hatramm-
lega á móti því í borgarstjórn
Reykjavíkur að samningur yrði
gerður milli Hitaveitu Reykja-
víkur og nágrannasveitarfélag-
anna um lagningu hitaveitu í
Hafnarfjörð, Kópavog og Garða-
bæ? Til hagsbóta fyrir íbúa þess-
ara byggðarlaga og til hagkvæmni
fyrir rekstur Hitaveitu Reykja-
víkur. Hvar var þá hagur ná-
grannanna? Eitt er víst að Albert
Guðmundsson bar hann ekki fyrir
brjósti þá.
Albert Guðmundsson er til-
búinn að veita ríkisstjórn sem
Gunnar Thoroddsen myndar með
Framsókn og kommúnistum hlut-
leysi til að verja hana vantrausti
án þess að hafa augum litið
væntanlegan málefnasamning
stjórnarinnar og þetta gerir Al-
bert með bréfi svona fyrirfram.
Hvaða samræmi er nú í þessari
afstöðu og afstöðu þeirri sem
Albert Guðmundsson tók er stjórn
Geirs Hallgrímssonar var mynduð
1974 og Albert treysti sér ekki til
að styðja vegna þess að Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlaði í samstarf við
Framsóknarflokkinn og í öðru lagi
vegna þess að sjálfstæðisflokkur-
inn fékk ekki viðskiptamál í þeirri
ríkisstjórn. Nú er hægt að gefa
fyrirheit sitt blindandi vitandi
það að í þessari ríkisstjórn koma
kommúnistar til með að fara með
viðskiptamálin. Ég spyr: Hvar er
samræmið?
Af framansögðu má sjá að
Albert Guðmundsson er ekki sér-
staklega að hugsa um þjóðarheill
þessa dagana. Persónulegur metn-
aður ræður fyrst og fremst því að
Albert Guðmundsson frambjóð-
andi til forsetakjörs og Gunnar
Thoroddsen hafa gert með sér
gagnkvæmt stuðningsbandalag.
Gunnar Thoroddsen styður Albert
Guðmundsson í forsetakosningun-
um og í staðinn verður Albert
Guðmundsson að styðja Gunnar
Thoroddsen. Hér er það metnað-
argirnd þessara tveggja manna,
sem ræður fyrst og fremst."
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákþingi Reykjavíkur 1980
kom þessi staða upp í skák þeirra
Gylfa Gylfasonar og Karls Þor-
steins, sem hafði svart og átti leik.
24. ... Hxe5! og hvítur gafst upp,
því að eftir 25. dxe5 — Bd8, fellur
hvíta drottningin. 24.... Bd8 hefði
hins vegar verið mjög slæmt
vegna 25. Rxc6+.
HÖGNI HREKKVÍSI
RUSL“/f
it
,\W/.
1980
McNaught Synd., Inc.
iþÁ ££ KAFFIHtélÐ tbú 10 'i P46. . . ’
Karlmannaföt frá kr. 16.900
Terylenebuxur kr. 9.450
Terylenefrakkar frá kr. 9.900
Kuldaúlpur kr. 17.750
Kuldajakkar kr. 16.900 og 18.700
Prjónavesti, hneppt meö vösum
kr. 4.950 o.m.fl. ódýrt
Andrés, herradeild, Skólavörðustíg 22.
Útsala — Útsala
Mikil verðlækkun.
Glugginn,
Laugaveg 49.
Sýningarskáli Kaupstefnunnar hf. er stendur við
Laugardalshöll, er til sölu. Afhending að lokinni næstu
sýningu Heimilið '80 er haldin verður dagana 22. ágúst
- 7. september n. k.
Upplýsingar veittar í síma 11517
KAUPSTEFNAN
REYKJAVtK HF
K)00-1200m’
STÁLGRINDARHÚS
TIL SÖLU