Morgunblaðið - 07.02.1980, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
• Sigurftur Gunnarsson og félagar hans í Víkingi innbyrtu tvö
auðveid stig í Firðinum í gærkvöldi.
Ekki glæta hjá
slökum Haukum
Evrópukeppnin í handknattleik
Draumur Vals rættist — drógst
á móti spænsku meisturunum
MÓTHERJAR íslandsmeistara Vals í undanúrslitum Evrópumeistara-
keppninnar í handknattleik verða spænsku meistararnir Atletico
Madrid. Og má segja að draumur Valsmanna hafi ræst því að þetta
voru óskamótherjar þeirra í 4 liða úrslitunum. Vestur-þýzku
meistararnir Grosswaldsted drógust á móti ungversku meisturunum
Tatabanja. Möguleikar Vals eru því góðir á að komast í úrslit
keppninnar takist liðinu vel upp í leikjum sínum á móti Spánverjun-
um. Rétt er þó að vara við ofmikiili bjartsýni. Spænskur handknatt-
leikur hefur verið í mjög rnikilli framför nú hin siðari ár. og höfum við
íslendingar ekki sótt gull í greipar Spánverja í tveim síðustu
landsleikjum þjóðanna, þeir töpuðust með 25 mörkum gegn 22, og í
B-keppninni á Spáni í febrúar 1979 tapaði landsliðið með 19 mörkum
gegn 15. Spænska landsliðið vann sér rétt til þátttöku á Ólympíuleik-
unum í Moskvu og ekkert er til sparað að liðið nái þar sem bestum
árangri. Það er því alveg ljóst að róður Vals verður ekki léttur því að
í spænska liðinu eru ekki færri en átta landsliðsmenn.
Þórður Sigurðsson formaður
handknattleiksdeildar Vals sagði í
viðtali við Mbl. í gær að vissulega
væru Valsmenn í sjöunda himni.
— Að hinum liðunum ólöstuðum
þá teljum við mesta möguleika á
að sigra Spánverjana. En við
skulum ekki gleyma því að
spænska liðið sigraði dönsku
meistarana létt og örugglega og
sýnir það okkur styrkleika þeirra.
Við munum leggja allt í sölurnar
til þess að ná sem bestum árangri
í leiknum, og ekkert verður til
sparað að afla upplýsinga um liðið
og leikmenn þess. Það gæti farið
svo að Hilmar Björnsson færi til
Spánar til að fylgjast með því þar.
Við leggjum áherslu á að fyrri
leikurinn fari fram 24. febrúar og
síðari leikurinn hér heima 9. mars,
en við höfum ekki sett okkur í
samband við Spánverjana ennþá
og því er allt óákveðið í þessum
efnum. En málin munu skýrast
fljótt, sagði Þórður að lokum.
Jón H. Karlsson leikreyndasti
maður Vals sagði: — Að dragast á
móti Atletico Madrid gefur okkur
mestar vonir um að komast í
úrslitin í keppninni. En gleymum
því ekki að handknattleikurinn á
Spáni er góður, og það gæti farið
svo að fólk yrði fyrir vonbrigðum
með úrslitin í leikjum okkar. Það
er betra fyrir okkur að leika fyrri
leikinn á útivelli, hann kemur til
með að skipta höfuðmáli.
-þr.
„Tel að Valsmenn
eigi ekki möguleika“
— segir Viggó Sigurðsson
EINS og kunnugt er leikur einn íslenskur landsliðsmaður í
handknattleik, Viggó Sigurðsson, með spænska liðinu F.C. Barcelona
við góðan orðstír. Við slógum á þráðinn til Viggós í gærdag og inntum
hann cftir því hvaða möguleika hann teldi að Valsmenn ættu í leikjum
sinum á móti spænsku meisturunum, og báðum hann að segja okkur
hvcrjir væru helstu kostir þessa liðs sem Valsmcnn þurfa að leggja að
velli til þcss að komast í úrslitaleik Evrópumeistarakeppninnar í
handknattleik.
Haukar:Víkingur
20:24
STIGIN voru aldrei í hættu hjá
Víkingum er þeir sóttu Ilauka
heim í Fjörðinn í gærkvöldi.
Öruggur fjögurra marka sigur
var útkoman 24—20 fyrir
Víking. eftir að staðan í hálfleik
hafði vcrið 12—8 fyrir Víking.
Það var aldrei hin minnsta
spenna í leik þessum, Víkingarn-
ir voru hreinlega allt of góðir
fyrir Kauka og eini Ijósi punktur-
inn hjá þeim var, að Hörður
Harðar virðist vera að ná sér á
strik eftir afleitan vetur. Gegn
lakari liðum en Víking er ekki
ólíklegt að það færi þeim eitthvað
af stigum í næstu lcikjum.
Eftir tíðindalitlar fimm fyrstu
mínútur, fór hraðaupphlaupa-
maskínan í gang hjá Víkingi og
áður en langt var um liðið var
staðan orðin 7—2. Þá kom ein af
þessum dæmigerðu Haukasveifl-
um þeir skoruðu næstu fimm
mörkin, þar af Hörður fjögur, og
jöfnuðu 7—7, en þá voru sex
mínútur til leikhlés. Víkingarnir
sigu þá fram úr á nýjan leik og
voru fjórum mörkum yfir í hálf-
leik. Síðari hálfleikur var síðan
tíðindalítill, Víkingar héldu sínum
hlut, þrátt fyrir að Haukarnir
beittu óvenjulegri vörn, 3—3, og
síðan „Hilmarsbragðinu" að taka
tvo leikmenn Víkings úr umferð.
Þetta féll um sjálft sig, það
hindraði að vísu sum kerfi
Víkinga, en þá var bara tekið til
við gegnumbrot og hornaspil í
staðinn, svo ekki sé minnzt á
hraðaupphlaupin.
Það var lengst af meistarabrag-
ur á leik Víkings og höfðu Hauk-
arnir ekki roð við þeim. Þorbergur
Aðalsteinsson fór á kostum og lék
einn sinn bezta leik í langan tíma.
Þá var Jens mjög góður í markinu,
varði 17 skot í leiknum. Páll og
Árni voru einnig mjög sterkir, en
annars var liðið jafnt. Hjá Hauk-
um bar Gunnar Einarsson mark-
vörður af. Hann varði 18 skot í
leiknum, þar á meðal þrjú víti, og
er niðurdrepandi fyrir veslings
Gunnar að sýna slíkan leik, en
hafna samt í tapliði. Þá sýndi
Hörður sinn bezta leik á vetrinum,
Árni Hermannsson var einnig
sleipur.
j stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild Hafnarfirði
Haukar—Víkingur 20—24 (8—12)
Mörk Hauka: Hörður Harðarson 9/4,
Árni Hermannsson 4/1, Stefán
Jónsson 3, Andrés Kristjánsson 2,
Árni Sverrisson og Júlíus Pálsson 1
mark hvor.
Mörk Víkings: Þorbergur Aðal-
steinsson 9/2, Páll Björgvinsson
5/1, Siguröur Gunnarsson 4/2, Ólaf-
ur Jónsson, Árni Indriðason og
Erlendur Hermannsson 2 mörk
hver.
Brottrekstur: Steinar, Páll, Er-
lendur og Jens úr Víkingi í 2
mínútur hver, Höröur í Haukum í 2
mlnútur.
Misheppnuð víti: Gunnar varði
vítaköst Páls, Sigurðar og Þor-
bergs, Höröur skaut einu í stöng.
—89-
— Það hefur töluvert verið
skrifað um þetta hér í blöðunum
og er greinilegt að Spánverjar
óskuðu þess að fá Val sem mót-
herja. Ég hafði það líka einhvern
veginn á tilfinningunni að þessi
tvö lið myndu dragast saman,
sagði Viggó, og hélt svo áfram og
sagði:
— Ég er mjög ánægður með að
fá samanburð á spænskum og
íslenskum handknattleik. Ég tel
að Valsmenn eigi ekki möguleika á
að sigra þá í leiknum. Að mínu
mati er þetta of sterkt lið fyrir þá.
Mjög sterkt sóknarlið, með góðar
skyttur bæði vinstri handar og
ENGLENDINGAR voru ekki í
vandræðum að sigra slakt lands-
lið írska lýðveldisins í landsleik i
knattspyrnu á Wembley i gær-
kvöldi, en leikurinn var síðasti
leikurinn í 4. riðli Evrópukeppn-
innar í knattspyrnu og voru
Englendingar fyrir löngu búnir
að tryggja sér sigur í riðlinum.
Englendingar skoruðu tvívegis
gegn engu marki íra. Staðan i
hálfleik var 1—0.
Leikurinn þótti slakur i flesta
staði, en snilldarframmistaða
Kevins Keegan lífgaði mjög upp á
molluna. Keegan skoraði bæði
mörk enska liðsins. Það fyrra kom
á 33. mínútu, er Terry McDermott
hægri handar, góða hornamenn,
góða miðjumenn sem dreifa spil-
inu vel. Liðið leikur ákaflega
hraðan bolta. Lítið er um línu-
sendingar. Þeir spila ekki mikið
leikkerfi, en mikið er um einstakl-
ingsframtak. Byrjunarliðið hjá
þeim er allt í landsliðinu. Átta
menn sem léku með spænska
landsliðinu í B-keppninni á
síðasta ári, eru í liðinu. Mark-
varsla liðsins er gloppótt, en
varnarleikurinn getur verið mjög
sterkur, harður og oft á tíðum
góður. Þetta eru allt atvinnumenn
sem eru í liðinu. Þeir hafa aðeins
tapað einum leik það sem af er
sendi fyrir markið, beint á kollinn
á David Johnson. Hann skallaði
rakleiðis á tærnar á Keegan, sem
skoraði af stuttu færi. Síðara
markið skoraði Keegan síðan á 74.
mínútu, er hann vippaði knettin-
um laglega yfir írska markvörð-
inn.
keppnistímabilinu. Gerðu svo
jafntefli við F.C. Barcelona, 16—
16.
Leikmenn æfa daglega, og gerð-
ar eru miklar kröfur til getu
þeirra. Liðið er mjög sterkt á
útivelli og hefur mikla reynslu.
Sló frönsku meistarana létt út,
sigruðu þá með sjö marka mun á
útivelli. Þetta er gott hraðaupp-
hlaups lið, en það fer mjög í
taugarnar á Spánverjum ef lið
hanga á boltanum. Það er mikill
plús fyrir Valsmenn, en ég get
fullvissað þá um að róðurinn
verður erfiður bæði heima og
heiman, sagði Viggó.
— Við í Barcelona eigum að
leika gegn Atletico Madrid hinn
24. febrúar og segja má að það sé
úrslitaleikurinn í deildarkeppn-
inni hér. Fyrri leik liðanna lauk
með jafntefli 16—16. Við erum
enn í efsta sæti, en þeir fylgja fast
á eftir. Mér hefur gengið ágætlega
að undanförnu og verið með þetta
5 til 6 mörk í leik. Ég hef ekki
tekið neina ákvörðun enn varðandi
félagaskipti þegar keppnistímabil-
inu lýkur hér. Mig langar til
V-Þýskalands, hvað sem verður.
Dave Johnson, sem lék þarna
sinn fyrsta landsleik fyrir Eng-
land í fimm ár, var borinn af
leikvelli, illa slasaður í andliti
eftir árekstur við írska markvörð-
inn Gerry Peyton, sem éinnig varð
að hverfa af leikvelli. Stutt gaman
fyrir Johnson.
Valur
AÐALFUNDUR knattspyrnufé-
lagsins Vals fer fram 14. febrúar
n.k. að IHíðarenda og hefst kl.
20.30. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Einkunnagjðfln
LIÐ VÍKINGS: Jan Einarsson 4, Sígurður Gunnarsson 2, Árni Indriöason 3,
Páll Björgvinsson 3, Þorbergur Aðalsteinsson 4, Erlendur Hermannsson 2,
Ólafur Jónsson 2, Guömundur Guðmundsson 1, Kristján Sigmundsson 1,
Steinar Birgisson 2.
LID HAUKA: Gunnar Einarsson 4, Ingimar Haraldsson 1, Andés Kristjáns-
son 2, Hörður Harðarson 3, Stefán Jónsson 2, Árni Hermannsson 3, Árni
Sverrisson 1, Júlíus Páisson 1, Sigurgeir Marteinsson 1.
DÓMARI: Óli Ólsen og Gunnar Kjartansson 3.
-Þr.
Keegan í miklum ham