Morgunblaðið - 07.02.1980, Side 40
^-Síminn á afgreiðslunni er
%} 83033
lorðíwwMaijiiíí*
Lækkar
hitakostnaðinn
FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1980
Feyenoord vill
kaupa Asgeir
Sigurvinsson
IIOLLENZK daKblöð hafa
undanfarna da>?a hirt fréttir
þoss efnis, að knattspyrnufé-
laiíið Feyenpord væri á hött-
unum eftir Ás)jeiri Sigurvins-
syni, sem Likur nú mcð
helgíska félaginu Standard
Liege. Þessi frétt harst Mbl.
frá Ilollandi i gærkvöldi.
'fgja blöðin, að Feyenoord hafi
hug á því að Asgeir taki stöðu
hollenzka landsliðsmannsins Wim
Jansen, sem hættir hjá Feyenoord
í vor og fer til Bandaríkjanna.
Leika Ásgeir og Pétur saman
liði Feyenoord?
Grímsstöðum
á Fjöllum:
Folaldið fannst
eftir langa
veru á öræfum
Grímsstöðum á Fjöllum. 6. febrúar.
FOLALD, sem hefur verið
týnt frá því í haust,
fannst loksins í dag við
Fremstahól, mjög sunnar-
lega á Fjöllum. Það var
Vernharður í Möðrudal,
sem á folaldið, sem fór við
annan mann í morgun til
þess að leita að því, en það
hafði sézt við Grafarlönd
vestur við Jökulsá fyrir
skömmu.
Folaldið er nú komið í
hús hér á Grímsstöðum og
er við „hestaheilsu". Það
lítur hreint ótrúlega vel út
miðað við aðstæður.
Tíðarfar hefur verið
gott hér undanfarnar vik-
ur og færð þokkaleg. Hér
hefur verið fært í Mý-
vatnssveit á jeppum í all-
an vetur og einstöku bíll
farið austur yfir þótt sú
leið sé talið ófær með öllu.
Þá má geta þess að
nokkuð vel hefur til tekist
í búrekstri hér þrátt fyrir
að útlitið væri dökkt í
haust vegna heyleysis og
af fólki hér er allt gott að
frétta.
— Benedikt
Segja blöðin ennfremur, að Feye-
noord hafi fullan hug á því að
reyna að kaupa Ásgeir, þótt vitað
sé að hann muni kosta stórfé.
Ásgeir sem nú er 24 ára gamall,
hefur verið atvinnuknattspyrnu-
maður í Belgíu síðan árið 1973.
Annar íslenzkur knattspyrnu-
maður, Pétur Pétursson, leikur
sem kunnugt er með Feyenoord og
er hann nú markhæsti leikmaður
liðsins og jafnframt markhæsti
leikmaður úrvalsdeildarinnar í
Hollandi.
Morgunblaðið reyndi í gær-
kvöldi að ná tali af Ásgeiri, en
tókst ekki.
Stjórnarmyndunarviðræður Gunnars Thor-
oddsens, Framsóknarflokks og Alþýðubandalags
héldu áfram í gær og sátu þeir Pálmi Jónsson og
Friðjón Þórðarson viðræðufundi og kynntu sér efni
málefnasamningsins. Á þessari mynd, sem Ol.K.M.
tók á fundi eftir hádegi, eru f.v.: Gunnar
Thoroddsen, Pálmi Jónsson, Eggert Haukdal, Jón
Helgason, Tómas Árnason, Steingrímur Her-
mannsson og Svavar Gestsson, en milli hans og
Steingríms sátu Ólafur Ragnar Grímsson og
Hjörleifur Guttormsson.
Málefnasamningur ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens:
Kaupgjald ekki lögákveðið,
hámarkshækkun á verðlag
MÁLEFNASAMNINGUR ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen er nú
svo til fullgerður. í honum segir, að ekki megi setja lög um kaupgjald.
ekki skerða kaupgjaldsvisitölu, ncma allir aðilar stjórnarinnar þrír
samþykki. Ennfremur sé eigi heimilt að gera slíkt nema i fullu
samráði við samtök Iaunafólks. Þá er ákveðið, að verðlag megi ekki
hækka umfram ákveðin mörk, sem eru 8%, 7% og 5% á næstu þremur
ársfjórðungum og vextir hækki ekki frekar en orðið er, en lækki með
verðbólgustiginu. Þá segir. að afgreiða skuli greiðsluhallalaus
fjárlög.
í málefnasamningnum segir
m.a.: „Ríkisstjórnin mun ekki setja
lög um almenn laun, nema allir
aðilar að ríkisstjórninni séu þar
sammála, enda sé haft samráð við
samtök launafólks. Hins vegar
mun ríkisstjórnin leita eftir sam-
komulagi við aðila vinnumarkaðar-
ins um niðurstöður í kjarasamn-
ingum, sem geta samrýmst barátt-
unni gegn verðbólgu og þeirri
stefnu stjórnarinnar, að jafna
lífskjör og bæta kjör hinna lakast
settu í þjóðfélaginu."
„Til að draga úr almennum
peningalaunahækkunum er ríkis-
stjórnin reiðubúin til þess í tengsl-
um við kjarasamninga að beita sér
fyrir eftirtöldum ráðstöfunum:
Árin 1980 til 1981 verði tryggðir
a.m.k. 5 til 7 milljarðar, er renni
m.a. til eftirtalinna verkefna: bygg-
ingar verkamannabústaða, íbúða á
vegum sveitarfélaga og bygginga-
samvinnufélaga, nýbyggingar
hjúkrunar- og dvalarheimilis aldr-
aðra, dagvistunarheimila. Athuguð
verði í þessu sambandi niðurfelling
útsvars af lægstu tekjum og
sjúkratryggingagjalds. Frá 1. júní
hækki tekjutrygging aldraðra og
öryrkja umfram verðbætur og
sömuleiðis frá 1. júní 1981.“ Þá er
sagt, að sett skuli löggjöf um nýtt
húsnæðislánakerfi.
Settar eru hömlur á hækkun
verðlags, sem eru mjög svipaðs
eðlis og tillögur Framsóknarflokks-
ins. Er verðlag þar bundið næstu
þrjá ársfjórðunga við 8%, 7% og
5%.
Sjá viðtal við Gunnar
Thoroddsen um málefna-
samninginn og þingflokk
Sjálfstæðisflokksins á mið-
opnu.
Garðar Sigurösson um málefnasamninginn:
„Ýmislegt sem ég er
aBs ekki ánægður með“
„ÉG SAMÞYKKI enga hluti
fyrirfram,“ sagði Garðar Sig-
urðsson, alþingismaður Alþýðu-
bandalagsins. i samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, þegar hann
var inntur eftir áliti á þeim
málefnasamningi, sem unnið hef-
ur verið með í tilraunum til
myndunar ríkisstjórnar siðustu
daga.
„Ég samþykkti að þessi mögu*
leiki yrði kannaður," sagði Garð-
ar, „en það er ennþá verið að
bítast um ýmis atriði og því er
ekki hægt að neita, að það er
ýmislegt í þessu, sem ég er alls
ekki ánægður með.“
,fiim og hendi vœri veifað
og hefiUinn hentist af stað“
„ÞAÐ VAR eins og hendi væri
veifað þegar ég var að komast í
gegnum síðustu hindrunina á
veginum að hefillinn hentist af
stað með flóðinu,“ sagði
Ríkharður Hjörleifsson veghef-
ilsstjóri, sem lenti í þeirri
óskemmtilegu reynslu í gær-
dag, að stórt snjóflóð féll á
hann, þar sem hann var að
ryðja veginn undir Ólafsvikur-
enni í samtali við Mbl.
„Hefillinn hentist áfram með
flóðinu um 20 metra niður
bratta hlíðina og stöðvaðist Joks
sagði Ríkharð-
ur Hjörleifsson
sem slapp
naumlega úr
snjóflóði undir
Ólafsvikurenni
í klettabelti rétt fyrir ofan sjálfa
bjargbrúnina, þannig að það
mátti engu muna að ég færi
fram af,“ sagði Ríkharður enn-
fremur.
— Reiknaðir þú með því að
dagar þínir væru taldir þegar
allt fór af stað?
„Nei, ég var mjög rólegur,
enda hef ég oft hugsað um það,
hvað ég mund gera ef ég lenti í
snjóflóði. Ég gerði mér því
dálitla grein fyrir því hvað
myndi gerast," sagði Ríkharður.
Aðspurður hvort hann hefði
slasazt sagði Ríkharður, að hann
hefði aðeins fengið skrámur hér
og þar, en rúður hefilsins hefðu
brotnað í öllum hamaganginum
og hurðin gengið inn.
„Ég komst síðan út um einn
gluggann og upp á þak, en
hefillinn stóð að hluta til upp úr
flóðinu. Það mátti svo engu
muna að illa færi þegar við
vorum á leiðinni inn til Ólafsvík-
ur, en þá féll annað snjóflóð á
veginn rétt fyrir framan okkur,"
sagði Ríkharður að síðustu.
Sjá einnig — „Veghefillinn
stoppaði aðeins ...“ bls. 22.