Morgunblaðið - 13.02.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1980
5
Síðasti dagur kvik-
myndahátiðarinnar
KVIKMYNDAHÁTÍÐ Lista-
hátíðar hefur verið mjög vel
sótt og sl. sunnudag (10.2.)
nálgaðist áhorfendafjöldinn
18.000 manns. Hátíðin hefur nú
verið framlengd um einn dag og
lýkur henni i kvöld. Alls hefur
verið sýnd á hátíðinni 31 mynd.
3 samsettar. sýningar af styttri
myndum. eriendum (f jöldi stutt-
myndanna er 21) og 4 íslenskar
myndir í kvikmyndasamkeppn-
inni (Lítil Þúfa hlaut verðlaun-
in, handrit og leikstjórn Ágúst
Guðmundsson). Alls hafa þvi
verið sýndar 55 myndir á há-
tíðinni á 13 dögum!
Tvær myndir, sem kynntar
eru í sýningarskrá kvikmynda-
hátíðarinnar, komu því miður
ekki til landsins, þrátt fyrir
loforð þar um, áður en hátíðin
hófst, og þrátt fyrir gífurlegt
myndaúrval er mikill skaði að
þessum tveim myndum. Þetta
eru Skákmennirnir eftir S. Ray,
en þeir sitja að sögn á flugvellin-
um í London og tefla þrátefli við
breska tollþjóna. Hin myndin er
Engið (Ii PratoX eftir Taviani-
bræður, en ekkert hefur til
hennar spurst. Þá virtust það
vera álög á þessari kvikmynda-
hátíð, að erlendir gestir, sem
hingað vildu koma urðu annað
hvort að aflýsa komu sinni
vegna anna, urðu fyrir slysum
eða lögðust í rúmið af öðrum
orsökum. Þannig fór t.d. um
Chantal Akerman, belgísku kon-
una, sem var væntanleg fram á
síðustu stundu. Miðað við um-
fang hátíðarinnar verða þetta þó
að teljast litlar hrakfarir, ekki
síst vegna þess að í fyrradag
barst hátíðinni í hendur mynd,
sem mikill fengur er að. Áður
Listahátið í Reykjavik
Kvikmyndahátíð
1980
eftir SIGURÐ
SVERRI PÁLSSON
hafði verið beðið um þessa mynd
en engin staðfesting hafði borist
um að hún fengist, þegar sýn-
ingarskráin var prentuð. Þetta
er myndin Vegir útlagans (Les
Chemins de l’Exilx) eftir Claude
Coretta, en henni eru gerð nán-
ari skil hér á öðrum stað.
Erfitt er að segja fyrir um
það, hvaða myndir hafi verið
vinsælastar á þessari kvik-
myndahátíð. Sjáðu sæta naflann
minn hefur langflesta áhorfend-
ur, 5200 (tölur miðast við sunnu-
dagskvöld 10.2.), en myndinni
var líka gefið gott tækifæri.
Carlos Saura hefur verið vel
sóttur, en um 3000 manns hafa
séð myndirnar Hrafninn og Með
bundið fyrir augun. Þá hafa
þýsku myndirnar Woyzek. Al-
bert-hvers vegna? og Þýskaland
að hausti einnig verið vinsælar
og sænska myndin Krakkarnir í
Copacabana hefur verið sér-
staklega vel sótt. Eins og áður
sagði er þó varlegt að dæma
myndirnar út frá aðsókninni
eingöngu, vegna þess hve salirn-
ir í Regnboganum eru misjafn-
lega stórir og sýningafjöldi
myndanna hefur verið mjög
misjafn. Þannig má t.d. nefna að
nokkrar myndir hafa verið með
100% sætanýtingu á öllum sýn-
ingum til þessa, þ.e. Dækjan, Án
deyfingar, Albert hvers vegna
og Jeanne Dielman og India
Song með 98% sætanýtingu. Af
þessu má sjá, að halda mætti
kvikmyndahátíðinni áfram með
góðum árangri í að minnsta
kosti viku til viðbótar ef ekki
lengur. Af þessum viðtökum
áhorfenda má líka sjá, að kvik-
myndahátíðin sem slík hefur
sannað gildi sitt og er þess
umkomin, að verða fastur liður í
menningarlífi okkar, helst ár-
legur viðburður eins og annars
staðar, þar sem kvikmynda-
hátíðir eru haldnar.
Þá er rétt að minna á það hér,
að í dag verður sýnd í fyrsta sinn
heimildamyndin Action — Okt-
óberdeilan 1970, en mynd þessi
er nátengd myndinni Skipanir. í
Action er gerð grein fyrir sögu-
legum bakgrunni þeirra atburða,
er herlög voru sett í gildi í
Quebec 1970 en í Skipunum
segir frá því, hvernig þetta
ástand kom persónulega við
nokkra einstaklinga. Skipanir
hefur einna helst verið gagnrýnd
fyrir það, að gera ekki nógu
mikla grein fyrir bakgrunni at-
burða, en með því að sjá Action
ættu endar að nást saman.
SSP.
Lýsa yfir stuðn-
ingi við Friðjón
BLAÐINU hefur borizt eftiríar-
andi yfirlýsing, sem samþykkt
var á fundi Sjálfstæðisfélags
Dalasýslu hinn 9. febr.r
Yfirlýsing
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing:
Selfossi, 9. febr. 1980.
Einn af hörðustu stunings-
mönnum Eggerts Haukdal, í
síðastliðnum kosningum, mót-
mælir harðlega hans vinnubrögð-
um öllum, sem hann álítur alhliða
svik við hans kjósendur. Hann
bendir Eggert Haukdal á, að hann
hafi ekkert umboð fengið, til að
styðja þessa stjórn, frá þeim sem
hann studdu.
Og hann telur vítaverð störf
Gunnars Thoroddsen, og mótmæl-
ir stjórn hans allri sem slíkri.
Fyrrverandi stuðningsmaður, —
núverandi andstæðingur.
Ólafur Eyjólfsson.
Fundurinn lýsir eindregnum
stuðningi við Friðjón Þórðarson
og aðild hans að ríkisstjórn Gunn-
ars Thoroddsens.
Fundurinn harmar framkomnar
yfirlýsingar frá meirihluta þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins og tel-
ur þær vart samrýmast flokki sem
kennir sig við sjálfstæði og ein-
staklingsfrelsi.
Fundurinn beinir því til sjálf-
stæðismanna um land allt að
stuðla að sáttum og einingu innan
flokksins, þannig að sjálfstæðis-
menn geti rætt mál sín af dreng-
lyndi og sanngirni, þrátt fyrir
skiptar skoðanir á ýmsum málum.
f.h. Sjálfstæðisfélags Dalasýslu,
Þrúður Kristjánsdóttir
formaður.
f.h. Sjálfstæðiskvennafélags
Dalasýslu,
Kristjana R. Ágústsdóttir,
í.h. Félags ungra sjálf-
stæðismanna í Dalasýslu,
Jóhannes Benediktsson
formaður
Fyrsta loðnan til
Fáskrúðsfjarðar
FáskrúÖsfirdi. 12. febrúar
ÞRÍR bátar komu með fyrstu
loðnuna til hafnar í nótt, samtais
um 2700 tonn. Hákon var með
780 tonn, Rauðsey með 530 tonn
og Sigurður með 1350 tonn.
Miklar breytingar hafa verið
gerðar á verksmiðjunni frá
síðustu vertíð og nam heildar-
kostnaðurinn við þær um 100
milljónum króna. Löndunarað-
staða er öll mun betri en áður var,
vigtarnar hafa verið settar inn í
hús, þannig að afköst hafa aukist
um helming frá því sem áður var.
Það eru um 200 tonn sem koma
á land á klukkutímanum þessa
stundina, en heildarrými er um
8000 tonn.
— Albert
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
□ Herrafötfrá ............. 49.900-
□ Stakir jakkar frá ...... 19.900,-
□ Riflaöar flauelis-
buxur frá ............... 8.900,-
□ Dúnwatt úlpur frá ...... 19.900,-
□ Barna jakkar frá ........ 8.900,-
□ Dragtirfrá .............. 39.900-
□ Skyrturfrá ............... 4.900-
□ Blússurfrá .............. 3.900,-
□ Vesti frá ............... 3.900.-
□ Watteraðar flauelis-
úlpur .................. 16.900.-
□ Alullartweed ........ 1.900 pr. m
□ Fínflauel ........... 3.900 pr. m
□ Glans popplín ....... 600 pr. m
□ Kansas-kaki ......... 1.000 pr. m
□ Terline ............. 1.500 pr. m
□ Flannel ............. 1.500 pr. m
□ Denim ............... 600 pr. m
□ Einnig mikið af allskonar
efnum og tilleggi
□ Gardínur og stórisaefni
□ Kápur — kjólar — jakkar o.m.fl.
með miklum afslætti.
ÚTSÖL UMARKA ÐUR
/CflrilðÖflSyðr ■ Saumastofa og verslanir
Garbó — Bonaparte
Bonanza — Belgjageröin