Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 5
-^J'TNj; JT\ rjj_\ rr, Ijj ■ jU -L/ 3 -j S -j -í - - S . MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRUAR 1980 ★ Fermingardragtir m/pilsi kr. 60.700 ★ Fermingardragtir m/buxum kr. 61.700 ★ Fermingarföt kr. 64.900 ★ Stakir jakkar og buxur kr. 63.900 ★ Skyrtur— Blússur — Bindi — Skór o.m.fl ferminga. Nyjar tizkuvörur teknar upp í dag til Austurstræti 22, 2. hssð. Sími 85055. Magnús Jónsson. safnaðarins, Kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar. Kaffisalan verður, eins og í fyrra, í Víkingasal Hótels Loft- leiða. Þar munu hlaðborð að venju svigna undir ljúffengum kökum og brauði, sem hver getur sótt sér að vild, og jafnframt verður í anddyri lítið söluborð með „páskaföndri", sem kirkjunefndarkonur hafa út- búið að undanförnu. Messuna kl. 2 þennan dag ann- ast sr. Þórir Stephensen, og Magn- ús Jónsson óperusöngvari syngur þar tvö lög, Friðarins Guð og Allsherjar Drottinn, hið síðara ásamt Dómkórnum. Á söng- skemmtunum að undanförnu hef- ur Magnús hlotið einstaklega góð- ar viðtökur allra og stendur nú á hátindi síns söngferils. Það er því Kaffisala Dónúdrkju- kvenna á Loftleiðum Kjartan Ólafsson forstjóri Fram- kvæmdastofnunar? BÆÐI Framsóknarmenn og Al- þýðubandalagsmenn sækja nú fast að fá forstjórastöður við Framkvæmdastofnun ríkisins fyrir sína menn; framsóknar- menn vilja fá að setja inn mann í stað Tómasar Árnasonar, sem sótt hefur um starfsleyfi meðan hann gegnir störfum viðskipta- ráðhe.rra, og alþýðubandalags- menn vilja að Kjartan Ólaísson verði forstjóri við Framkvæmda- stofnunina. Nú er einn forstjóri starfandi, Sverrir Hermannsson. Það var vinstri stjórnin 1971 — 74, sem setti Framkvæmdastofn- unina á fót og tilnefndi þá hver stjórnarflokkur einn „kommisar". Þeir urðu Bergur Sigurbjörnsson , frá Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, Guðmundur Vig- fússon frá Alþýðubandalaginu og Tómas Árnason frá Framsóknar- flokknum. Þessir „kommisarar" báru ekki ábyrgð gagnvart stjórn stofnunarinnar, heldur sínum flokkum og var þeim sagt upp störfum við stjórnarskiptin 1974, eins og lög sögðu til um. Þessu fyrirkomulagi var svo breytt 1975 þannig að forstjórarnir skyldu ráðnir af stjórn stofnunar- innar og voru þeir Sverrir Her- mannsson og Tómas Árnason ráðnir forstjórar. Tómas Árnason fékk svo leyfi frá störfum, er hann varð fjármálaráðherra í vinstri stjórninni 1978. Framsóknarmenn sóttu þá fast að fá að setja mann í stað Tómasar, en Alþýðuflokks- menn neituðu og varð ekkert sam- komulag með stjórnarflokkunum um þetta, þannig að Sverrir Her- mannsson var eini forstjóri stofn- unarinnar. Tómas tók svo aftur við starfi, þegar vinstri stjórnin sprakk, en hefur nú aftur fengið starfsleyfi vegna viðskiptaráð- herraembættisins. Fermingarfatnaður á pilta og stúlkur í úrvali N.K. sunnudag, 17. febrúar. verða Dómkirkjukonur með kaffisolu að Hótel Loftleiðum, og hefst hún kl. 3 e.h. að lokinni messu í Dómkirkjunni, þar sem Magnús Jónsson óperusöngvari syngur einsöng. Það hefur lengi verið fastur liður í vetrarstarfi Dómkirkju- safnaðarins að efna til „kaffi- dags“, þar sem fólki er gefið tækifæri til að njóta samfélags í notalegu umhverfi að lokinni guðsþjónustu, og styrkja um leið hið mikilvæga starf kvenfélags sérstök ánægja að fá hann til söngs í Dómkirkjunni þennan sunnudag, og ég veit, að marga mun fýsa að koma og njóta listar hans. Kaffisalan á Hótel Loftleiðum hefst kl. 3, um það bil sem messunni lýkur. Þá verður ferð með strætisvagni frá Dómkirkj- unni suður á hótel, og í bæinn aftur upp úr kl. 4. Einnig er hægt að komast með Vífilsstaðavagnin- um. Hann fer úr Lækjargötu neðan við Menntaskólann 10 mínútur fyrir heilan tíma og frá hótelinu 5 mínútur yfir hálfan tíma. Ennþá standa eftir nokkrar skuldir frá hinni miklu viðgerð á Dómkirkjunni og málningunni að utan s.l. sumar. Þar að auki eru verkefni óteljandi framundan. Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj- unnar hefur lagt fram ótrúlega stóran skerf að flestum málefnum kirkjunnar, bæði þeim, er varða kirkjuhúsnæði sjálft og hið al- menna safnaðarlíf. Þetta hefði ekki verið unnt, ef ekki hefði til komið öflugur stuðningur hinna fjölmörgu velunnara Dómkirkj- unnar. Við treystum því, að þeir minnist enn síns forna helgidóms og að fjölmennt verði á sunnudag bæði í kirkju og kaffisölum. Þórir Stephensen. Helgi Hálfdanarson: Eftir- máli Ég þakka Magnúsi Kjartanssyni fyrir góða orðsendingu í dag. Honum er greinilega jafn-ljóst og mér, að ekki er vert að teygja um of á orðaskipt- um af því tagi sem við höfum stundað um skeið, þó að mér virðist báðir hafa haft af því ánægju, og báðir eigi vafalaust ýmis- legt ósagt. Mér þykir vænt um að Magnús skerpir ekki ágreining okkar, svo sem efni kunnu að standa til, en lokar samt ekki á mig dyrum sínum. í grein- arlok gerir hann mér þann kost, sem ég hefði beztan kosið. Ég lýk þessum eftir- mála með þökk til Magn- úsar Kjartanssonar fyrir skemmtilegt vináttu-spjall um sameiginlegt áhuga- mál okkar beggja: velfarn- að íslenzkrar tungu. 14. febrúar 1980. iff^^ TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS timKARNABÆR r Glæsibæ — Laugavegi 6b Simi fra skiptiboröi 85055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.