Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980 11 hvors landsins. Sundið dýpkar eftir því sem nær strönd Omans dregur. Þess vegna eru siglinga- leiðir í báðar áttir, sem eru mílu breiðar rennur með mólu breiðu öryggisbelti á milli, aðeins í lögsögu Omans. Dýpið í rennun- um sjáifum er 300 fet og það minnkar óðfluga, þegar farið er út úr vandlega merktri siglinga- leiðinni. Olíumálaráðherra Saudi-* 1 Arabíu Ahmed Zaki Yamani hreyfði því á síðasta ári, að örvilnaðir palestínskir skærulið- ar kynnu að reyna að sökkva olíuskipum í þessum grunnu rennum. Hafa verið uppi ráða- gerðir um að breyta um siglinga- leiðir til að draga úr þessari hættu. Hvað sem þessu líður eru flestir sérfræðingar á einu máli um það, að litlar sem engar líkur séu á því, að hryðjuverkamenn geti til frambúðar lokað sund- inu. Sérfræðingar minna á, að sundið sé ekki svo mjótt, að það nægi að sökkva þar einu olíu- skipi til að stöðva umferðina. Hins vegar benda þeir á, að unnt væri að koma þar fyrir tundur- duflum á fimm klukkustundum á sjó eða flugvélar gætu komið þeim þar fyrir á fimm eða tíu mínútum..Þá mætti einnig sigla kafbáti að sundinu og senda eitt eða tvö tundurskeyti frá honum til að sjá hver áhrifin yrðu á tryggingariðgjöld Lloyds. Og sérfræðingarnir minna á, að öllum beri saman um að Sovét- menn eigi nægar birgðir af tundurduflum og fjölda kafbáta. Með slíkum óvinabrögðum væri unnt að skrúfa svo til alveg fyrir olmstreymið frá Saudi Arabíu, írak, íran, Kuwait og Sameinuðu arabísku furstadæm- unum. En á hverjum degi senda þessi lönd meira en 18 milljónir tunna af olíu út um Hormuz- sund. Þó bæði írak og Saudi Arabía eigi olíuleiðslur sem liggja um nágrannaríkin til Miðjarðarhafs dugar það lítið, því að þær flytja aðeins um milljón tunnur af olíu á dag. Og flestum sérfræðingum kemur saman um, að þær þyldu ekki meira en tvær og hálfa milljón tunna. í þessu sambandi má það ekki gleymast, að það er yfirleitt mun betra að trufla flutninga um leiðslur en með skipum. Til dæmis gerðist það 1970 að jarð- ýta í Sýrlandi rauf af slysni leiðslu Saudi Araba. Þannig er ljóst, að Hormuz- sund er og verður mikilvæg siglingaleið fyrir öll þau ríki, sem þurfa að flytja inn olíu. Iðnríkin myndu ekki taka á þeim vanda neinum silkihönskum, ef sundinu yrði lokað með hervaldi. „Ég get ekki gert mér í hugar- lund, að Sovétmenn vilji hefja þriðju heimsstyrjöldina með þessum hætti, en einmitt um það erum við að tala,“ sagði hernað- arsérfræðingur, þegar hann var spurður um líkur á hernaðarlegu brölti Kremlverja við sundið. Þrátt fyrir þetta telur Banda- ríkjastjórn nauðsynlegt að vera við öllu búin og skipuleggur nú aukinn viðbúnað við Persaflóa. Kristján og Margrét í vinnslunni. Ljósmyndir Mbl. Sigurgeir. Eyjafiski óx fiskur um hrygg FYRIR liðlega einu ári hóf Eyjafisk- ur s.f. framleiðslu á harðfiski í 50 fm húsnæði sem fyrirtækið keypi í Vestmannaeyjum. Fljótlega eftir að vinnsla á þurrkuðum fiski hófst varð húsrými of lítið vegna mikillar sölu og varð fyrirtækið því að stækka við sig strax á síðasta ári. Fer vinnslan nú fram í 200 fm húsnæði við Kirkjuveg þar sem um er að ræða frystiklefa, flökunar- og þurkklefa og pökkunarsal. Hófst vinnsla í öllu húsinu eftir áramótin. Framleiðsla í fyrra húsnæðinu var um 7000 pakk- ar á mánuði, en verður 15.000 pakkar á mánuði ásamt unnum fiski í neytendapakkningum sem eru ýsu- flök, ýsubitar, gellur, lúða, skata og saltfiskur. Eigendur Eyjafisks eru Kristján Sigurjónsson og Margrét Ólafsdóttir ásamt börnum og tengdabörnum. Um þessar mundir er unnið úr 500—700 kg af fiski á dag. Glæný ýsa dregin að, en lagt er kapp á úrvalshráefni. in var sett í mikinn vanda vegna innrásarinnar. Hún var gerð inn í land, sem heyrir til svonefnd- um þriðja heimi. Fidel Castro hefur keppst við að ná forystu sem dyggur vernd- ari og talsmaður sjálfstæðis þessara ríka og var þjónkun hans við hernaðarbrölt Kreml- verja í algjörri andstöðu við þá ímynd. En vegna efnahags- þrenginga og þess heljataks, sem Sovétmenn hafa á fjárhagslegri afkomu Kúbu, varð Castro að fara að vilja þeirra í einu og öllu. Vandinn, sem steðjar að Fidel Castro, hefur þó ekki enn leitt til þess, að hann kallaði hersveitir sínar heim frá Afríku. Um 19 þáund kúbanskir hermenn eru í Angólu, 15 þúsund í Eþíópíu og meira en 1000 annars staðar. Þá eru um 6500 borgaralegir tækni- menn frá Kúbu í Angólu einni. Fram hafa komið hugmyndir um, að Afríkuríki greiði kúb- önsku stjórninni fyrir návist þessara manna og gæti það orðið drjúg lind erlends gjaldeyris. I skólum á Kúbu eru um 10 þsund útlendingar til þjálfunar og eru flestir þeirra frá Afríku. Vestrænir sendiráðsmenn segja að 600 skólabörn frá Kongó undir 12 ára aldri hafi komið til Havana í nóvember sl. og sé ætlunin að þau stundi allt að 13 ára nám á eyjunni. Frá Eþíópíu kom tvisvar sinnum fjölmennari hópur til Kúbu í sama mánuði. Grein sinni lýkur Hugh O’Shaugnessy i Financial times með þessum orðum: „Þegar litið er til þeirra vand- kvæða, sem að Kúbúmönnum steðja, og þeirrar staðreyndar, að þeir eru ekki 10 milljónir að tölu, hljóta menn að fyllast undrun yfir því, hve mikla áherslu þeir leggja á að efla samband sitt við erlendar þjóðir. Þessi áhersla verður aðeins skýrð með því að vísa til þess persónulega metnaðar Fidels Castros að tryggja sjálfum sér og landi sínu sem stærstan sess í annálum heimsbyltingarinnar."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.