Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 32
DAMATSU „DAIHATSU Charade Charade FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980 Veður var fatíurt í höfuðborginni í gær og marst fólk úti að ganga, eins og þessi kona með börn sin tvö sem Emilia festi á filmu á gangi á ísnum á Tjörninni. Rétt er þó að minna fólk á að ís á iónum og tjörnum getur verið varasamur í svona tíð, þegar frystir á nóttunni en hlýnar um miðjan daginn. Landbúnaðarvörur hækka tví- vegis með tíu daga millibili Landbúnaðarafurðir munu að öllum líkindum hækka í verði nú um helg- ina, en um málið var fjallað á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun. Hér er um að ræða hækkun sem til er komin vegna þess að fráfar- andi minnihlutastjórn AI- þýðuflokksins neitaði að fallast á hækkun þann fyrsta desember síðast lið- inn, sem stafaði af kostnaði við vinnslu og dreifingu. Ekki er alveg ljóst hve þessi hækkun verður mikil, en Guðmundur Sigþórsson deildarstjóri í landbúnað- arráðuneytinu sagði í gær, að hún yrði milli eitt og tvö prósent. Þá verður verð landbúnaðaraf- urða einnig hækkað þann fyrsta mars næstkomandi, en ekki liggur enn fyrir hve sú hækkun verður mikil. Unnt er þó að taka mið af því að kaupgjaldsvísitalan á þá að hækka um 6,67%, og vísitala framfærslukostnaðar hækkar um 9,13%. Ljóst er því, að verð landbúnað- arafurða mun hækka tvívegis með tíu daga millibili á næstunni, þann 18. febrúar og 1. mars. Morgunblaðinu tókst ekki að ná í Pálma Jónsson landbúnaðarráð- herra eða Gunnar Guðbjartsson formann Stéttarsambands bænda í gær vegna þessara hækkana, og ekki tókst að fá nákvæmlega uppgefið hve miklar þær verða. Loðnuskipstjórar: Sjómenn eru lög- hlýðnir VEÐUR á loðnumiðunum fyrir norð- an land var oröið þokkalegt i gærkvöldi og voru skipin öll að veiðum er Morgunblaðið fór í prent- un í nótt. Skipstjórar sem Morgun- blaðið ræddi við á miðunum kváðust allir verða úti þar til fullfermi væri fengið, „jafnvel þó það verði ekki fyrr en um hvítasunnu" eins og einn þeirra orðaði það. Flotinn var allur á um átta til tfu mílna kafla i Langanesdjúpi i gærkvöldi og þar austur af. Þeir Gísli Jóhannesson á Jóni Finnssyni og Guðjón Pálsson á Gull- bergi sögðu megna óánægju ríkja meðal sjómanna vegna loðnuveiði- bannsins, en þó myndu menn líklega viröa það, enda væru sjómenn lög- hlýðin stétt. Hart væri þó að una við bannið, og sagði Gísli að þetta væri líkt og að taka helminginn af launum manna í landi, og Guðjón líkti því við það að skorin yrði niður helmingur bústofns bænda. Slíkt væri tjónið fyrir sjómenn og það á þeim tíma sem sjórinn væri svartur af loðnu. Veiðarnar gengu nokkuð vel í gærkvöldi, einkum framan af, en þá fengu sumir bátar svo stór köst að þeir sprengdu næturnar. Síðar í gærkvöldi var loðnan þó farin að dreifa sér í smærri torfur og gekk því hægt að fylla skipin. Bæði þeir Gísli á Jóni Finnssyni og Guðjón á Gullberginu sögðu að heyrst hefði af mikilli loðnu í Víkurál og væri það enn ein sönnun þess að mun meira væri af loðnu en fiskifræðingar vildu vera láta. Flest þau skip sem nú eru á loðnumiðunum munu fara til heimahafna er þau hafa náð full- fermi, en önnur munu þó selja þar sem hæst verð fæst fyrir, hvar sem það verður á landinu. Að sögn skipstjóra sem Morgunblaðið ræddi við í gær munu sjómenn síðan bíða átekta og sjá hverju fram vindur og ekki yrði í bráð að minnsta kosti farið að huga að öðrum veiðum, enda væri þar víst ekki feitan gölt að flá. Innbrot í Alþingi? Fundar- bjöllu saknað BJALLA forseta Sameinaðs þings og forseta neðri deildar fannst ekki, er þingfundir hófust í gær, en hljóm þessarar bjöilu þekkja landsmenn af .tvarps- umrseðum, er forseti setur fund og slítur honum. Forseti neðri deildar notaðist við fundarbjöilu efri deildar í gær. Friðjón Sigurðsson skrifstofu- stjóri Alþingis sagði í samtali við Mbl. í gær, að næturvörður hefði heyrt til mannaferða á salernum á neðri hæð í fyrrinótt, en ekki séð viðkomandi og taldi næturvörður- inn að maður þessi eða menn hefðu ekki farið lengra inn í húsið. Hann kvaddi til lögreglu, en hún varð engra vör, þegar hún kom. Rimlar fyrir salernisgluggum höfðu verið fjarlægðir. Friðjón sagði, að ekki væri ljóst, hvort þarna hefðu verið þeir á ferð, sem bjölluna tóku eða hvort „einhverjir þeirra, sem hér eru á hverjum degi, eru að gera grikk." Friðjón sagði, að ekki væri fleiri hluta saknað en bjöllunnar, sem stendur á tréundirstöðu, og tré- kólfs, sem þingforsetar nota til að slá í bjölluna við setningu og slit þingfunda. Guömundur J. Guðmundsson, alþingismaður og formaður VMSÍ: Varðar ekkert um hvað pappírstígrisdýr urra og súkkulaðidrengir hjala „MIG varðar ekkert um, hvað pappírstígrisdýr urra eða um hvað súkkulaðidrengir hjala,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, alþingismaður og formaður Verkamannasam- bands íslands, er Morgunblaðið spurði hann i gær, hvað hann vildi segja um ummæli Ragnars Arnalds fjármálaráðherra um að ekkert svigrúm væri til grunnkaupshækkana og Þor- steinn Pálsson framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands íslands, tók undir. Fleira kvaðst Guðmundur ekki hafa um þetta að segja á þessu stigi málsins. Svo sem lesendur Morgun- blaðsins rekur minni til, sagði Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra í samtali við Morgunblaðið í fyrradag, að miðað við þær Guömundur liaiíiiar ströngu verðlagsforsendur, sem menn hafi sett sér á þessu ári, væri ekkert svigrúm til grunn- kaupshækkana nú. í Morgunblaðinu í gær er Þorsteinn Pálsson spurður um þessi ummæli nýja fjármálaráð- herrans. Þar segir Þorsteinn, að þessi afstaða Ragnars Arnalds sé ekkert ný fyrir vinnuveitendur, þar sem Steingrímur Hermanns- son, formaður Framsóknar- flokksins hafi margsinnis lýst þessari sömu skoðun. Þetta væri einnig í samræmi við það, sem VSÍ hefði bent á. Síðan sagði Þorsteinn: „Mér sýnast þessir menn meta efnahagsaðstæður mjög svipað og við og niðurstaðan hlýtur að vera áþekk. Það hlýtur að liggja í augum uppi, að miðað við verð- lagsforsendur og gengisforsend- ur, sem ríkisstjórnin setur, þá er ekki fyrir hendi neitt svigrúm til aukningar kaupmáttar. Þetta höfum við sagt okkar viðsemj- endum. Við töldum okkur strax geta lesið það út úr málefna- samningi ríkisstjórnarinnar, að hún setti allt sitt traust á, að vinnuveitendur semdu ekki um aukinn kaupmátt. Ummæli Ragn- ars Arnalds staðfesta þetta.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.