Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980 17 BÚNAÐARÞING var sett í Bændahöllinni i gærmorgun að viðstöddum búnaðarþings- fulltrúum og fjölda gesta og var forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, meðai þeirra. Ásgeir Bjarnason for- maður Búnaðarfélags íslands setti þetta 62. Búnaðarþing en auk þess flutti landbúnað- arráðherra. Pálmi Jónsson, ræðu við þingsetninguna. Rétt tii setu á Búnaðarþingi eiga 25 fulltrúar og er gert ráð fyrir að þingið standi 2 vikur. Tveir varamenn, sem ekki hafa áður setið á Bún- aðarþingi. tóku sæti á þinginu í gær og eru það þeir Gísli Ellertsson bóndi á Meðalfelli í Kjós og Ragnar Guðmunds- son bóndi á Brjánsiæk, Vest- ur-Barðastrandarsýslu. I upphafi setningarræðu sinnar fjallaði Asgeir Bjarnason nokkuð um sögu búnaðarfræðslunnar í landinu og minnti á að Jón Sigurðsson forseti hefði fyrstur manna ritað um búnaðarskóla hér á landi árið 1849. Og þó gerðar hefðu verið nokkrar tilraunir til stofnunar búnaðarskóla, hefði þýðingarmesta sporið verið stigið með stofnun skólans í Ólafsdal árið 1880. í ár væri því aldaraf- mæli búnaðarfræðslu á íslandi. Ásgeir sagði að alltof fáir bændur hefðu sótt búnaðarskóla, eða inn- an við 20%, og sagði það íhugun- arefni hver ástæðan kynni að vera. Ásgeir sagði að síðasta ár hefði verið einstakt í sinni röð að því er landbúnað varðar. Harðindin hefðu komið illa niður á bændum og afurðir hefðu allar verið rýrari en áður. Mjólkurframleiðslan hefði dregist saman um 2,7%. á árinu og fallþungi dilka orðið 1,4 kg minni að meðaltali fyrir landið en árið 1978. Afkoma bænda hefði versnað á árinu og margir stæðu höllum fæti, einkum þar sem tíðarfarið var verst. Bjargráða- sjóður hefði óvenjumiklu hlut- verki að gegna nú vegna afleiðinga harðindanna og væri það langt umfram það sem fjárráð hans leyfðu. Fram kom hjá Ásgeiri að hagur Stofnlánadeildar landbúnaðarins hefur batnað mjög á árinu og væri það að þakka breyttum lánakjör- 62. Húnaðarþiníí sett í gær: Fjöldi gesta var viðstaddur setningu Búnaðarþings og á meðal þeirra var forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn. Við hlið hans situr Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri. Ljósm. Mbi. RAX. við 20% bænda haf a sótt búnaðarskóla Innan Ásgeir Bjarnason setur Búnað- arþing um og nýjum tekjustofni frá bændum, svonefndu lánajöfnun- argjaldi. Þá gerði Ásgeir Bjarnason nokkuð að umtalsefni lagabreyt- ingar og þingsályktunartillögur, sem til meðferðar hefðu verið bæði á Alþingi og Búnaðarþingi í fyrra um breytingar á fram- leiðsluháttum og stefnu í landbún- aðarmálum. Minnti hann á að í samþykkt Búnaðarþings frá í fyrra hefði verið undirstrikað hversu nauðsynlegt væri að halda sveitum landsins áfram í byggð. Allar breytingar á framleiðslu- háttum þyrftu því að miðast við að byggðin héldist og að þeir, sem þar byggju hefðu ekki lakari kjör en aðrir þjóðfélagsþegnar. Ásgeir sagði að búreikningar sýndu að samdráttur í framleiðslu þyrfti ekki alls staðar að hafa í för með sér minni nettótekjur ibúanna, því búreksturinn mætti lengi bæta og breyta. Ásgeir lagði einnig áherslu á að vinna þyrfti að frekari jöfnuði raforkuverðs og athuga þyrfti vel virkjun heita vatnsins og dreifingu þess og skipuleggja varmaveitur sem víðast. Ásgeir sagði að margs væri að gæta, þegar mörkuð væri ný stefna í landbúnaði en hann hefði þá trú að söluvandamál landbún- aðarins væru tímabundin. Þau þ.vrfti engu að síður að leysa og það þyrfti að gera í áföngum svo röskun yrði sem minnst. Þótt á móti blési í landbúnaðinum, eins og það hefði alltaf gert 'annað slagið, sagðist Ásgeir ekki bera ugg í brjósti, því möguleikarnir til bjargar væru miklir og ólíkir því, sem var, þegar fyrsti búnaðarskól- inn var reistur fyrir einni öld og jörðin var í klakaböndum. Að síðustu þakkaði formaður Búnaðarfélagsins forseta íslands, dr. Kristjáni Eldjárn, fyrir kom- una og sagði það hafa verið bændum þessa lahds mikils virði í þeim andblæstri, sem þeir hefðu mætt á undanförnum árum, að njóta þess siðferðislega stuðnings sem forseti þjóðarinnar hefði veitt þeim við margháttuð tækifæri. Bjargráðasjóður: 1,1 milljarð vantar til lána vegna harðindanna í fyrra NÆR 1,1 milljarð króna vantar nú til að Bjargráðasjóður geti veitt bændum lán vegna harðind- anna á síðastliðnu ári. í ræðu Ásgeirs Bjarnasonar, formanns Búnaðarfélags Íslands, við setningu Búnaðarþings i gær kom fram að sjóðurinn þyrfti alls til útlána vegna harðindanna á s.l. Erlendum ferða- mönnum f jölgaði á síðasta ári ERLENDUM ferðamönnum sem leið sina lögðu til íslands á siðasta ári fjölgaði um 1.68% frá fyrra ári, og komu samtals 76.912 ferðamenn hingað á árinu 1979. Bandarískir ferðamenn voru lang- flestir, eða 23.525 talsins, en þeim fækkaði þó um 0.2% frá árinu áður. Fjöldi ferðamanna frá öðrum lönd- um, eitt þúsund eða fleiri frá hverju landi, var annars sem hér segir: Frá Þýskalandi 9.680 (18,3% fækkun frá árinu 1978); frá Danmörku 7.318 (1,5% aukning frá 1978); frá Bret- landi 6.761 (22,3% aukning); frá Svíþjóð 6.660 (13,6% aukning); frá Noregi 5.737 (14,7% aukning); frá Frakklandi 3.829 (11,4% aukning); frá Sviss 3.436 (42,8% aukning); frá Hollandi 1.696 (15% fækkun); frá Finnlandi 1.275 (14% aukning) og frá Austurríki 1.248 (27,9% aukn- ing). ári um 1,750 milljónir króna en upp í þessi lán hcfði Bjargráða- sjóður fengið 130 milljónir króna hjá Viðlagatryggingu og 300 milljónir króna hefðu fengist með bráðabirgðavixlum í bönkum. Pálmi Jónsson landbúnaðarráð- herra sagði í ræðu sinni á Búnað- arþingi í gær, að enn hefði ekki unnist tóm til, eftir að ríkisstjórnin tók við, að athuga þetta mál eins og skyldi en í stjórnarsáttmálanum væri tekið fram, að Bjargráðasjóði yrði útvegað lán vegna harðind- anna 1979. Jafnframt, að tekju- stofnar sjóðsins yrðu teknir til endurskoðunar í þeim tilgangi, að hann geti gegnt hlutverki sínu. Að sögn Ásgeirs Bjarnasonar skiptast þessar 1,750 milljónir króna þannig að 130 millj. kr. eru lán vegna veiðarfæratjóns af völd- um hafíss árið 1979, 70 milljónir væru lán vegna vorharðinda 1979, 1100 milljónir kr. væru lán vegna heyskorts á Norður- og Norðaust- urlandi, lán vegna uppskerutjóns á kartöflum væru 225 millj. kr. og styrkir vegna hey- og grasköggla- flutninga væru áætlaðir 225 millj- ónir króna. Sagði Ásgeir að enn ætti sjóðurinn eftir að veita megin- hlutann af þeim lánum, sem til- heyra heyskorti og uppskerubresti á kartöflum frá s.l. sumri. Þá hefðu á s.l. ári orðið mikil og margþætt óhöpp, sem Bjargráðasjóði bæri að bæta og veitti sjóðurinn þeirra vegna 65 millj. kr. í styrki og 160 millj. kr. lán vaxtalaust til 5 ára. Þar að auki ætti eftir að afgreiða margar umsóknir, því þær væru alltaf að berast. Fram kom hjá Ásgeiri að tekjur sjóðsins á þessu ári eru áætlaðar 545,4 millj. kr. og væri því ljóst að tekjurnar hrykkju skammt miðað við þarfirnar. Þá hefði ríkissjóður dregið í land með að standa við þau ríkisframlög, sem lög Bjargráða- sjóðs ákveða, og næmi sú lækkun 60 millj. kr. á s.l. ári. Farið hefði verið fram á að ríkið borgaði upphæð þessa, en óvíst væri um árangur. Minnti Ásgeir á tillögur stjórnar sjóðsins um aukna tekju- öflun til sjóðsins með því að hækka framlög sveitarfélaga úr kr. 150 í 300 kr. af hverjum íbúa og að hækka hlutdeild í búnaðarmála- sjóðsgjaldi úr 0,3% í 0,6% af söluvörum landbúnaðarins. Fram- lag ríkissjóðs ætti að vera jafnhátt framangreindum framlögum. Næðu þessar tillögur fram að ganga myndu tekjur Bjargráða- sjóðs hækka sem næst um 300 millj. kr. í ár á ársgrundvelli. Spennandi kosningar á þriöjudag: Verður þingið sent heim í þr jár vikur? STEFNT mun að því að ljúka mest aðkallandi þingstörfum, afgreiðslu skattlagafrumvarps og kosningu í ráð og nefndir, n.k. þriðjudag — miðvikudag. Orðrómur var um það i þing- húsinu í gær, að ríkisstjórnin hygði á þinghlé, jafnvel í allt að 20 daga (þ.e. fram yfir Norður- landaráðsþing, sem hér verður háð 3.-7. marz n.k.) en stjórn- arandstaðan mun mjög andvíg svo langri heimsendingu þing- manna. Ekki lá á hreinu, hvort um óformlega frestun yrði að ræða, ef til kæmi, eða formlega frestun með þingsályktun, en i siðara tilfellinu fengi ríkis- stjórnin bráðabirgðalagarétt. Kosningar þær, sem fram eiga að fara á þriðjudag, munu vekja mikla athygli, ekki sízt vegna þess samkomulags, sem gert var í þingflokki Sjálfstæðisflokksins í desembermánuði s.l. um skipan manna í nefndir, en að því samkomulagi stóðu m.a. þrír núverandi ráðherrar og tveir þeirra hlutu kjör í fjárveitinga- nefnd, sem er áhrifamesta þing- nefndin, út á það samkomulag: Friðjón Þórðarson og Pálmi Jónsson. Á þriðjudag verður væntan- lega kosið í eftirtaldar nefndir og ráð: stjórn Framkvæmda- stofnunar, Útvarpsráð, Trygg- ingaráð, Húsnæðismálastjórn, Menntamálaráð, stjórn Atvinnu- leysistryggingasjóðs, stjórn Vísindasjóðs, Kjaradeilunefnd, Landskjörstjórn og yfirkjör- stjórnir, Áfengisvarnaráð og Út- hlutunarnefnd listamannalauna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.