Morgunblaðið - 15.02.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980
Knattspyrna
á gervifæti
DANI nokkur að nafni Lars
Rasmussen hefur leikið knatt-
spyrnu með áhuKamannaliðinu
IF Helnaes um nokkurra ára
skeið. Það teldist þó ckki til
tíðinda nema vegna atviks sem
átti sér stað þegar hann var
fjogurra ára gamall. Hann lenti
þá í voveiflegu slysi með þeim
afleiðingum að hann missti hægri
fótinn. Leikur hann og gengur á
gervifæti allar götur síðan.
Nýr stjóri
í Brasilíu
BRASILÍUMENN voru óánægðir
með frammistöðu knattspyrnu-
landsliðsins síðustu mánuðina og
því var þjálfarinn Claudio Cout-
ihno rekinn fyrir skemmstu. í
hans stað var ráðinn Tele San-
tana.
Endurhæfingaraðstaða fyrir íþróttafólk:
, Jímabært að svona
aðstaða skapist“
Tengiliðurinn
hélt hreinu
TVISVAR á þessu keppnistíma-
bili í ensku knattspyrnunni hef-
ur enski landsliðsmaðurinn
Glcnn Hoddle orðið að hlaupa
undir hagga og fara í markið
eftir að markvörður liðsins hafði
orðið að yfirgefa leikvanginn
vegna meiðsla.
I fyrra skiptið var Tottenham
marki undir gegn Leeds, en vann
síðan leikinn 2—1, Hoddle hélt því
hreinu. í síðari leiknum var stað-
an 0—0 á Old Trafford í Man-
chester í 4. umferð bikarkeppninn-
ar. Enn hélt Hoddle hreinu og
Tottenham vann óvæntan sigur,
1—0. Spurning hvort Hoddle ætti
ekki að snúa sér alfarið að mark-
vörslu.
• Til vinstri má sjá Willie Davenport hampa guili sínu í Mexíkó árið
1968. Til hægri er hann í sleðagallanum í Lake Placid.
Jafnar Davenport
glæsiárangur
Eddie Eagan?
— Það er komin timi til að
íþróttamenn geti notið svona
aðstöðu, þar sem hægt er að fá
sjúkdómsgreiningu og sjúkra-
þjálfun á sama stað, sagði Hall-
dór Matthíasson sjúkraþjálfari
en hann hefur ásamt Páli Helga-
syni iækni opnað aðstöðu til
endurhæfingar að Miklubraut 50
hér í borg. Á stofunni verða
sértimar fyrir íþróttafólk á
mánudögum.
Páll B. Helgason læknir hefur
sem sérgrein örorku- og endur-
hæfingalækningar. Hefur Páll
meðal annars starfað á hinu
fræga Mayo-klinik í Bandaríkjun-
um. Halldór Matthíasson hefur
um langt skeið unnið með íþrótta-
fólki hér á landi og er því að góðu
kunnur. Hann lærði sjúkraþjálfun
í Noregi og víðar. Halldór hefur
farið margar ferðir með landslið-
um íslands í handknattleik og
knattspyrnu og verið íþróttafólki
innan handar við sjúkrameðferð.
Endurhæfingarstöðin er öllum
opin, en viðtalstímar eru fyrir
íþróttafólk á mánudögum milli
15-16. þr
WILLIE Davenport er fyrsti
blökkumaðurinn sem keppir á
Vetrar-Ólympíuleikum, hann er
Bandaríkjamaður. Davenport
gerði garðinn fyrst frægan á
sumarleikunum í Mexikó fyrir 12
árum síðan, en þá vann hann
gullverðlaun í 110 metra grinda-
hlaupi.
Davenport hefur heldur betur
Körfuknattleiksmenn
fá góða heimsókn
Á blaðamannafundi sem körfu-
knattleiksdeild Vals og KKÍ
héldu fyrir skömmu kom fram að
nú hefur verið endanlega gengið
frá þremur leikjum við landslið
Armena sem hér kemur í lok
mars og keppir fyrir hönd Sovét-
ríkjanna. Fyrsti leikur liðsins
verður við íslenska landsliðið
föstudaginn 21. mars, en daginn
eftir mun sovéska liðið mæta
Valsmönnum sem styrkja lið sitt
með Pétri Guðmundssyni. Þá er
einnig stefnt að því að Flosi
Sigurðsson verði með í þeim leik
en það mun enn vera óvíst hvort
það tekst. Bæði Pétur og Flosi
hafa sýnt miklar framfarir í
vetur í leikjum sínum i Banda-
ríkjunum.
Þriðji leikur Sovétmannanna
hér á landi verður svo á móti
úrvali bandarísku leikmannanna
sem leika hér á landi. Ætti það að
geta orðið hinn mesti hörkuleikur.
Stefnt er að þvi að lið Armena
leiki jafnvel tvo leiki til viðbótar
en ekki er endanlega frá því
gengið.
Að heimsókninni standa körfu-
knattleiksdeild Vals og KKÍ.
Landsliðið í körfuknattleik sem
tekur þátt í Polar Cup-keppninni
dagana 10.—13. apríl fær þarna
góðan undirbúning. — þr.
skipt um iþróttagrein, enda
sennilega ekki eins léttur á sér
og fyrir 12 árum. í Lake Placid
er hann i 4-manna bobsleðaliði
Bandaríkjanna, en aðeins tveir
mánuðir eru siðan að hann settist
í bobsleða í fyrsta skiptið á
ævinni. 1 sleðaliðinu er annar
blökkumaður, Jeff Gadley.
Takist Davenport að vinna gull-
verðlaun að þessu sinni, sem ekki
er talið ótrúlegt, verður það í
annað skiptið í sögunni sem ein-
staklingur vinnur gull bæði á
sumar- og vetrarleikum. Hingað
til hefur aðeins einn maður afrek-
að það, en það var bandaríski
hnefaleikarinn Eddie Eagan.
Hann vann gull á Ólympíuleikun-
um árið 1920 og 12 árum síðar
keppti hann í bobsleðaliði Banda-
ríkjanna, eins og Davenport, og
hreppti þar einnig gull.
• Halldór Matthíasson sjúkraþjálfari (t.v.) og Páll B. Helgason
læknir á hinni nýju sjúkrastofu sinni að Miklubraut 50. Ljósm. Rax.
Slakir eru Spánverjar
HELDUR gengur undirbúningur Spánverja fyrir Evrópukeppni
landsliða á Ítalíu í sumar brösuglega, en í fyrrakvöld mættu
Spanverjar Austur-Þjóðverjum í landsleik í Malaga.
Leikurinn var Spánverjum ekki til sannrar gleði, þar sem gestirnir
að austan sigruðu með eina marki leiksins sem Joachim Streich
skoraði. Spánverjum er spáð litlum frama á Ítalíu, en skammt er síðan
lið þeirra tapaði á heimavelli fyrir Dönum 1—3, og voru Danir þó
f jarri því að vera með sitt sterkasta lið.
Vésteinn kastaði
kringlu 50,36 metra
Einkunnagjöf í handknattleik
Lið Fram: Sigurður Þórarinsson 3, Birgir Jóhannesson 2, Björn
Erlingsson 1, Jón Árni Rúnarsson 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2,
Jóhann Kristinsson 2, Egill Jóhannsson 2, Atli Hilmarsson 2,
Erlendur Davíðsson 2. Andrés Bridde 2, Hannes Leifsson 3.
Lið Hauka: Gunnar Einarsson 3, Andrés Kristjánsson 1, Stefán
Jónsson 3, Árni Sverrisson 2, Hörður Harðarsson 2, Sigurgeir
Marteinsson 2, Árni Hermannsson 2, Ingimar Haraldsson 1, Hörður
Sigmarsson 1, Júlíus Pálsson 1.
Lið Vals: Brynjar Kvaran 2, Jón Breiðfjörð 1, Þorbjörn Guðmundsson
2, Þorbjörn Jesson 1, Steindór Gunnarsson 1, Bjarni Guðmundsson 3,
Brynjar Harðarson 3, Hörður Hilmarsson 1, Gunnar Lúðvíksson 2,
Stefán Halldórsson 1, Jón Karlsson 3.
Lið Fram: Sigurður Þórarinsson 1, Snæbjörn Arngrímsson 3, Birgir
Jóhannsson 2, Jón Árni Rúnarsson 2, Andrés Bridde 3, Hannes
Leifsson 2, Atli Hilmarsson 5, Egiil Jóhannesson 3, Sigurbergur
Sigsteinsson 3, Erlendur Davíðsson 4.
Dómarar voru Árni Tómasson og óli Ólsen 2.
LIÐ HK: Einar Þorvarðarson 4, Hilmar Sigurgíslason 3, Kristján
Gunnarsson 3, Kristinn ólafsson 2, Jón Einarsson 3, Ragnar Ólafsson
2, Magnús Guðfinnsson 2, Bergsveinn Þórarinsson 2, Gissur
Kristinsson 1.
LIÐ FII: Sverrir Kristinsson 2, Kristján Arason 2, Pétur Ingólfsson 2,
Valgarður Valgarðsson 3, Guðmundur Magnússon 2, Geir Hallsteins-
son 2, Magnús Teitsson 2, Eyjólfur Bragason 2, Árni Árnason 2.
„VÉSTEINN stóð sig einna bezt,
náði athyglisverðum árangri í
kringlukastinu, bætti sig um
rúma þrjá metra og kastaði í
fyrsta skipti yfir 50 metra múr-
inn. Allt bendir til þess að hann
eigi eftir að gera enn betur,“
sagði Gunnar Páll Jóakimsson
frjálsiþróttamaður úr ÍR í viðtali
við Mbl. í gær en Gunnar dvelst
við æfingar og keppni í San Jose í
Kaliforniu í Bandarikjunum
ásamt sex öðrum islenzkum
frjálsíþróttamönnum.
Þeir kepptu á frjálsíþróttamóti í
Berkley í Kaliforníu um helgina
og kastaði Vésteinn Hafsteinsson
KA þá 50,36 metra í kringlukasti
og sigraði á mótinu. Er það tíundi
bezti árangur íslendings frá upp-
hafi. Hefur Vésteinn nú sigrast á
einum af „draumamúrum" frjáls-
íþróttanna, ágætur árangur hjá
tvítugum íþróttamanni sem á
framtíðina fyrir sér.
Á mótinu hljóp Gunnar Páll 800
metra á 1:54,7 mínútum, Þorvald-
ur Þórsson IR jafnaði sinn bezta
Elnkunnagjöfin
ÍS: Gísli Gislason 2, Atli Arason 3, Bjarni Gunnar Sveinsson 1, Jón
Héðinsson 3, Albert Guðmundsson 1, Gunnar Thors 3, ólafur
Thoroddsen 1, Steinn Sveinsson 2.
ÍR: Kristinn Jorundsson 3, Kolbeinn Kristinsson 3, Jón Jörundsson 2,
Jón Indriðason 2, Stefán Kristjánsson 3, Sigurður Bjarnason 1,
Sigmar Karlsson 2.
Lið KR: Garðar Jóhannsson 3, Jón Sigurðsson 3, Þröstur Guðmunds-
son 2, Ágúst Líndal 2, Geir Þorsteinsson 2, Birgir Guðbjörnsson 2,
Árni Guðmundsson 2, Bjarni Jóhannesson 1, Gunnar Jóakimsson 1.
Lið ÍR: Sigurður Bjarnason 1, Jón Jörundsson 3, Kristinn Jörundsson
3, Stefán Kristjánsson 2, Sigmar Karlsson 3, Benedikt Ingþórsson 1,
Jón Indriðason 1, Björn Leósson 1.
árangur í 400 metra hlaupi, hljóp
á 50,2 mínútum, Sigurður Einars-
son Á kastaði 64,80 metra í
spjótkasti. Skömmu eftir 800
metra hlaupið tók Gunnar Páll
þátt í 200 metra hlaupi og hlaut
tímann 23,9 sek, sem sýnir að það
er sprettur í honum þótt þeir
íþróttamennirnir taki mótin fyrst
og fremst sem góðar æfingar,
ekkert er slegið af'fyrir þau.
Þá hlupu Elías Sveinsson FH og
Stefán Hallgrímsson UÍA 60 stiku
grindahlaup á 7,9 sekúndum. Stef-
án hljóp einnig 100 metra hlaup á
11,6 sekúndum og 200 metra hlaup
á 23,7 sekúndum. Vilmundur Vil-
hjálmsson KR og Erlendur Valdi-
marsson ÍR kepptu ekki á mótinu.
Vilmundur hljóp 100 stiku hlaup
fyrir skömmu á 10,0 sekúndum í
mótvindi á móti nokkrum dögum
áður. Á mótinu stökk Stefán 6,30
metra í langstökki hlaut 23,9 í 220
stiku hlaupi og 2:01,5 mínútur í
880 stiku hlaupi. Elías hljóp 100
stiku hlaup á 10,4 sekúndum, 70
stiku grindahlaup á 9,2 sekúndum,
330 stiku grindahlaup á 42,2 sek-
úndum og 220 stiku hlaup á 24,2
sekúndum.
—ágás.