Morgunblaðið - 15.02.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980
19
V erðlaunaaf hend-
ing fyrir mara-
þondanskeppnina
VERÐLAUN í maraþon-
diskódansi Klúbbsins og
Ferðaskrifstoíunnar Útsýn-
ar voru afhent í Klúbbnum
s.l. miðvikudagskvöld.
Sigurvegari varð sem
kunnugt er Steinar Jónsson
og er hann lengst til hægri á
meðfylgjandi mynd. Fékk
Steinar Útsýnarferð að laun-
um auk veglegs bikars. Næst-
ur honum er Gunnar Vil-
helmsson, sem var í öðru
sæti, en þriðji varð Ragnar
Geir Bragason. Bryndís
Bolladóttir var að lokinni
sjálfri keppninni dæmd í
þriðja sæti en var síðan ekki
talin eiga rétt á verðlaunum
þar sem hún var of ung til að
taka þátt í keppninni. Hins
vegar fékk hún Útsýnarferð
að launum fyrir góða
frammistöðu. Liósm. Rúnar
Verður nætur-
sölunni í Haf n-
arfirði lokað?
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sínum hinn
24. janúar siðastliðinn, að synja
Bifreiðastöð Hafnarfjarðar um
nætursöluleyfi á þessu ári.
Kvöld- og helgarsöluleyfi verð-
ur hins vegar veitt til ársloka
1980, en slík leyfi eru veitt til
eins árs í senn. Bæjarstjórn á
eftir að fjalla um málið, og er
því ekki Ijóst hvort af lokun
verður, en nætursalan er enn
opin. Nætursala Bifreiðastöðv-
arinnar við Reykjavíkurveg er
eina nætursalan í Hafnarfirði.
I frétt frá bæjarráði kemur
fram að nætursöluleyfinu sé
synjað með vísan til bréfs bæj-
arfógeta frá 14. febrúar. Bæjar-
fógeti sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að í bréfinu hefði
verið gerð grein fyrir ástandi
mála við nætursöluna. Þar væri
róstusamt á köflum, og talsvert
ónæði fyrir íbúa nágrennisins,
og einnig talsverður sóðaskapur,
svo sem af völdum flöskubrota.
Þarna virtist safnast fyrir fólk
sem hvergi ætti samastað á
þessum tíma sólarhrings, eink-
um um helgar. Sagði fógeti
ástandið lengi hafa verið slæmt,
en líklega hefði þó keyrt um
þverbak á síðustu nýársnótt.
Hólmgeir Júlíusson hjá Bif-
reiðastöðinni sagði í samtali við
Morgunblaðið, að ólæti væru
ekki mikil við stöðina, og kvaðst
hann ekki eiga von á að nætur-
söluleyfið yrði tekið af henni.
Þetta væri eina nætursalan í
Hafnarfirði, og væri bagalegt ef
henni yrði lokað, bæði fyrir
Bifreiðastöðina og Hafnfirðinga
almennt. Að öðru leyti kvaðst
hann ekki vilja tjá sig um málið
að svo komnu, enda væri það enn
óafgreitt frá bæjarstjórn og
fleiri umsagnaraðilum.
Susannah York og Alan Bates í hlutverkum sínum í Öskrinu.
„Öskrið“ í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍO frumsýnir í dag
bresku kvikmyndina „Öskrið“
(The Shout). Leikstjóri er Jerzy
Skolimowski sem einnig gerði
handritið ásamt Michael Austin
eftir sögu Robert Graves. Með
aðalhlutverkin fara Alan Bates,
Susannah York og John Hurt.
Myndin greinir frá geðsjúklingi
nokkrum, Crossley. Hann kynnist
manni sem hann sest síðan upp
hjá og nær sífellt meira og meira
valdi yfir honum og konu hans,
Meðal annars segir hann þeim frá
öskri sem hann hafi æft og geti
drepið allt kvikt. Maðurinn trúir
honum ekki í fyrstu en sannfærist
síðan og þá verður vald Crossleys
yfir þeim hjónum enn meira.
En loks tekst manninum að
finna lykilinn að valdi Crossleys,
steinvölu sem hann brýtur.
Crossley missir þá alla sína galdra
og sál hans og öskur verða að
engu, hann er hjálparvana.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810
Ny,r kiúklingar
Sumir versla dýrt —
aðrir versla hjá okkur.
ÆMk
Okkar verð eru ekki tilboð
heldur árangur af
hagstæðum innkaupum
790
Egg 1150 E
Nautakjöt
pr.kg.kr.
Hakk .................. 2.950-
Snitzel .............. 5.850.-
Gúllas ............... 4.950.-
Innanlærisvöövi ...... 6.850.-
Lærisvöðvar .......... 5.850.-
Steik ................ 6.850,-
Mörbráö .............. 7.580.-
Fillet ................ 7.580-
Úrval af nýslátruðu kálfakjöti.
Úrval af folaldakjöti.
Opiö til hádegis á laugardögum.
pr.kg.kr.
T-bone steik .......... 3.650,-
Sirlon steik .......... 3.650.-
Beinlausir fuglar .... 5.950,-
Bógsteik ............... 2.150-
Framhryggur .......... 2.150,-
Marineruð buff ....... 5.850.-
Raspaö snitzel ....... 5.850.-
pr.stk.
Nauta-grillteinn ...... 1.280,-
Hamborgarar ___________ . 250,-
Ferskt
grænmeti
avextir
STARMYRI 2 AUSTURSTRÆTI 17