Morgunblaðið - 15.02.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980
25
félk í
fréttum
+ ÞAÐ er kunnugt af fréttum frá íran að fyrir nokkru var
Ayatollah Ruhollah Khomeini látinn taka sér hvíld í sjúkrahúsi.
Sá gamli var nú ekki þreyttari en það að á sérstökum
heimsóknartímum var þar allt fullt af stuðningsmönnum og
aðdáendum. Hann varð meira að segja að árita með eigin hendi
fána. Er myndin tekin er gamli maðurinn situr við borð að búa
sig undir að skrifa á einn fánanna. Yfir honum stendur sonur
hans með penna í munninum tilbúinn til að rétta þeim gamla
hann.
Sorg hjá
útlögum
+ EIN af fyrrum prinsessum
Dana, Anne-Marie, sem giftist
Konstantin fyrrum Grikkja-
konungi, varð fyrir þeirri
sorg fyrir nokkru að missa
þriggja mánaða fóstur. Kon-
ungshjónin hafa nú verið í
útlegð frá Grikklandi siðan á
árinu 1967, er konungi mis-
tókst að kollvarpa þáverandi
herforingjastjórn i iandinu.
Þau hafa siðan búið í Bret-
landi, skammt frá London.
Þau eiga þrjú börn.
Morðingi
Joy
fundinn?
+ SAGT var frá því hér þegar
skýrt var frá dauða rithöfund-
arins Joy Anderson i Kenýa
(Höf. bókarinnar „Borin
frjáls") að handtökur hefðu átt
sér stað vegna þess, að sýnt
þótti að hún hefði ekki orðið
villidýrum að bráð. Nýlegar
fréttir af máli þessu frá Nair-
obi herma að 23 ára gamall
blökkumaður af Turkana-
kynflokki hafi verið ákærður
fyrir morðið á Joy. Hún var 69
ára gömul. Ekkert hefur kom-
ið fram sem gefið getur
vísbendingu um ástæðuna
fyrir morðinu, en ntorðinginn
stakk hana til bana.
+ FYRIR skömmu gerðist það
í Washington að frétt um
fjármálahneyksli meðal þing-
manna á Bandaríkjaþingi lak
út. Komst málið brátt í há-
mæli. Alríkislögreglan (F.B.I.)
hefði staðið þingmennina að
þvi að ætla að greiða götu
arabískra kaupsýslumanna.
Sendi hún sina menn til fundar
við þingmennina. En þessir
alríkisiögreglumenn, eða
Feddar, eins og Haíldór Lax-
ness kallar þá, kynntu sig sem
umboðsmenn Arabanna. Allt
var svo kvikmyndað og skjalf-
est. Mútur þær sem þingmenn-
irnir höfðu tekið við eru taldar
nema um 400.000 dollurum,
eða um 160 millj. isl. króna. Á
þessum myndum eru þeir þing-
menn fjórir, sem einkum hafa
verið taldir flæktir í þetta
hneykslismál.
Þegar FBI varð þess á-
skynja, að fregnin var komin
til blaðanna, voru í skyndi
sendir um 100 Feddar á vett-
vang í Washington til þess að
ná þá þegar sambandi við
menn sem hafa átt einhvern
þátt í þessu máli, sem snerist
fyrst og fremst um mútu-
greiðslur til þingmannanna
fyrir að útvega hinum ara-
bisku kaupsýslumönnum ör-
ugga starfsaðstöðu í Band-
aríkjunum og landvistarleyfi
þar.
Sen. Harrison Willianis Jr.
Rep. John Murphy
Rep. Frank Thompson Jr.
Rep. Michael Myers
OPIÐ FRA KL
Garbó
a útsölumark
aösveröi
IIÍIÍi
kl. 6 kemur
MEZZOFORTE
í „heimsókn dagsins
ÖlSÍiifÖiíi:,
boð“ sem hafa vakið
veröskuldaöa
* er tuKKum'öan^en
\ dag er uá
3976 ,»• iær G\afaKasS
_—-
íii-ilét'i
Karnabær Glit h.f.
(allar verzlanir og Saumastofa) I. Pálmason,
Steinar h.f. Skóverzlun Þóröar Péturssonar >
Blómaval Tómstundahúsið ®
Sól/Tropicana Gullkostan
Islenzk matvæli Melissa