Morgunblaðið - 15.02.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980
31
Sovétmenn hlutu bæði
silfur- og gullverðlaun
í 30 km göngukeppninni
FYRSTU gullverðlaunin á 13.
vetrarólympíuleikunum féllu i
skaut Sovétmanninum Nikolai
Zimyatov sem sigraði í 30 km
göngu. Zimyatov var með bestu
millitimana í göngunni allan
timann og sigraði örugglega á 1
klukkustund 27 mín. og 2,8 sek.
Annar i göngunni var einnig
Sovétmaður, Vasily Rochev, íékk
hann tímann 1,27,34,22. Þriðji
varð svo Ivan Lebanov frá Búlg-
aríu. í fjórða sæti hafnaði svo
Thoma Wass frá Svíþjóð.
Var þetta í fyrsta skipti sem
keppt var á gervisnjó i göngu-
keppni á ólympiuleikum. Sigur-
vegarinn Zimyatov sagði eftir
keppnina, að snjórinn hefði verið
mjög áþekkur og hann ætti að
venjast. — Ég er mjög hamingju-
samur og mér liður stórkostlega,
sagði hann. Verðlaun Zimyatov
voru 50. guliverðiaunin sem Sov-
étrikin hljóta í sögu vetraról-
ympíuleika og hafa þau nú skot-
ist fram úr Noregi.
Norðmaðurinn Oddvar Braa
hafnaði í 12. sæti en hann var af
mörgum álitinn sigurstranglegur í
göngunni. Braa hafði fengið slæmt
kvef fyrr í vikunni og háði það
honum verulega. Finninn
Juha Mieto varð í sjöunda sæti en
hann átti einn af bestu tímunum í
30 km göngu af keppendunum 52.
Gengið var í þrjá hringi í 10 km
braut og áttu áhorfendur sem
voru fjölmargir gott með að fylgj-
ast með keppendum.
Úrslit i 30 km göngu:
Nikolai Zimyatov, Sov. 1,27,2,8
Vasily Rochev, Sov. 1,27,34,22
Ivan Lebanov, Búlg. 1,28,03,87
Thomas Wassberg, Svíþ. 1,28,40,35
Josef Luszczek, Póll. 1,29,03,64
Matti Pitkanes, Finnl. 1,29,35,03
Juha Mieto, Finnl. 1,29,45,00
Ove Aunli, Noregi 1,29,54,02
Alf G. Deckert, A-Þýsk. 1,30,05,00
Lars Erik Eriksen, Nor. 1,30,34,34
Valsmenn léku
sér að ÍR-ingum
Valur:ÍR 23:14
VALUR átti í afar litlum vand-
ræðum að stjaka ÍR út úr bikar-
keppni HSÍ í 16 liða úrslitunum i
Höllinni í gærkvöldi. Sigur Vals
var stór, 23—14, og hafði liðið
lengst af mikla yfirburði. Staðan
í hálfleik var 10—10.
Já, staðan í hálfleik var 10—10,
það var nefnilega töluverður
tröppugangur í leiknum. Vals-
menn byrjuðu af miklum móði og
komust í 6—0 fyrstu 15 mínúturn-
ar. Þá virtust þeir telja sigurinn í
höfn, þeir hættu að leika agað í
sókninni og hættu að taka á í
vörninni. ÍR-ingar gengu á lagið
og þeim tókst að breyta stöðunni
úr 7—1 í 10—10. í síðari hálfleik
var síðast jafnt 12—12, en eftir
það var engin spurning hver
úrslitin yrðu.
Þrír menn báru af hjá Val,
Þorbjörn Guðmundsson, sem var
afar sterkur, Bjarni Guðmundsson
(að venju) og Brynjar Kvaran í
markinu, en hann kom inn í síðari
hálfleik og stóð sig með prýði.
Hjá ÍR var Pétur drjúgur,
einnig Guðmundur Þórðarson á
köflum, en flatneskjan var mikil.
Mörk Vals: Þorbjörn G. 9 (1),
Bjarni 5, Stefán H. 4 (2), Steindór
og Þorbjörn J. 2 hvor, Gunnar 1
mark.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason og
Guðmundur 4 hvor, Pétur 3,
Bjarni Hákonarson, Bjarni
Bjarnason og Sigurður 1 mark
hver.
- gg
Úrslit í úrvals-
deildinni í kvöld?
TVEIR leikir fara fram í úrvals-
deildinni i körfuknattleik i kvöld
og gæti annar þeirra hreinlega
verið úrslitaleikur mótsins. í
Njarðvík eigast þá við UMFN og
Valur og hefst leikurinn klukkan
20.00. Með sigri gæti fátt stöðvað
Valsmenn, en heimaliðið myndi
sauma mjög að Val á toppinum
með því að hirða bæði stigin.
Ekki er vafi að iþróttahúsið i
Njarðvík verði troðið út úr dyr-
um.
I kvöld fer einnig fram leikur
Fram og ÍR í úrvalsdeildinni og
hefst hann í Hagaskólanum
klukkan 19.00. ÍR á enn tölfræði-
lega möguleika á titlinum og
reynir því af alefli að vinna sigur.
Fram er á hinn bóginn í bullandi
fallhættu, þannig að hér verður
einnig um baráttuleik að ræða.
Hreinn sigraði og
varpaði 19,59 m
„Við Óskar komumst ekki til
mótsins vegna skyndilegs óveð-
urs, ætluðum að keppa í Baton
Rouge ásamt Hreini og Guðna.
Hreinn stóð sig vel, sigraði í
kúluvarpinu og kastaði 19,59
metra. Guðna tókst ekki vel upp,
varð sjötti með 16,79 metra,“
sagði Friðrik Þór Óskarsson
frjálsíþróttamaður og nemandi
við háskólann í Austin í Texas í
viðtaii við Mbl. í gær.
„Hreinn gat ekki beitt sér sem
skyldi fyrst eftir að hann kom til
Alabama, en hann er þó að ná sér
á strik núna. Guðni var afar
óhress með árangurinn á mótinu,
hefur æft vel og mikið, er líklega
sterkari en fyrr, en árangurinn lét
standa á sér að þessu sinni. Hann
á eftir að bæta betur á utan-
hússmótunum.
Við Óskar æfum mikið og vel.
Eigum eftir að keppa eitthvað
innanhúss og bráðlega kemur að
utanhússmótunum," sagði Friðrik
Þór.
M
!> Ingólfur Jónsson var eini
slendingurinn sem lauk keppni i
30 kílómetra göngunni. Ingólfur
var í 48. sætinu af 54 sem luku
keppni. Fjórir keppendur féllu
úr göngunni.
IngóSfur hafnaði í
48. sæti — Haukur og
Þröstur hættu keppni
ÍSLENSKU göngumennirnir, þeir Ingólfur Jónsson, Haukur Sigurðs-
son og Þröstur Jóhannesson, kepptu í gærdag i 30 km göngu á
vetrarleikunum i Lake Placid. í viðtali við Mbl. í gærkvöldi sagði
Sæmundur óskarsson, að þeim hefði ekki gengið sem best. Þeir
Haukur og Þröstur gáfust báðir upp í göngunni. Haukur eftir rúma
13 km en Þröstur eftir rúman einn hring, 10 km. Haukur fann sig
aldrei og Þröstur fann fyrir magaverk og háði það honum svo að hann
varð að hætta.
Ingólfur Jónsson lauk hins vegar göngunni og hafnaði í 48. sæti af
54 keppendum sem luku göngunni. Alls hófu 58 keppni en fjórir luku
henni ekki. Tími Ingólfs í göngunni var 1,45,55,26, er það um 18
mínútum lakari tími en fyrsti maður hlaut. Samkvæmt því mun
Ingólfur hafa verið um 6 km á fftir fyrsta manni.
Að sögn Sæmundar er 30 kín gangan ekki þeirra sterkasta hlið og
búast þeir við betri árangri i 15 km göngukeppninni á sunnudag.
Sæmundur sagði að setningarathöfn leikanna hefði verið ákaflega
tilkomumikil og öll dagskrá hefði fram að þessu gengið mjög vel fyrir
sig. Veður væri gott til keppni og fjöldi fólks fylgdist með henni.
- þr
Varamaðurinn kom,
sá og sigraði
— Leonard Stock ólympíumeistari í bruni karla
„ÉG SVAF vel síðustu nóttina og
lenti í engum vandræðum á
brautinni,“ sagði Leonard Stock,
austurriski spútnikinn sem sigr-
aði óvænt í brunkeppninni í Lake
Placid í gærdag. Stock kom til
Lake Placid sem fimmti maður í
fjögurra manna brunliði Austur-
ríkis. En í reynsluferðunum gekk
honum svo vel, að ekki var stætt
á öðru hjá austurrísku liðsstjór-
unum en að velja hann í byrjun-
arliðið. „Mér þykir skemmtilegt
að vera arftaki Franz Klammers
sem sigraði á siðustu leikum, en
eftirsjá er i að hann skuli ekki
vera meðal keppenda nú, hann er
frábær skíðamaður,“ bætti
kampakátur Leonard Stock við.
Landi Stocks, Peter Wirnsberg-
er, hafnaði í öðru sæti, fékk
tímann 1:46,12, en tími sigurveg-
arans Leonard Stocks var 1:45,50.
Hinir Austurríkismennirnir,
Werner Grissman og Harti Weir-
either, urðu í 7. og 9. sæti.
Þriðja sætið hreppti Kanada-
maðurinn Steve Podborski, en
hann fékk tímann 1:46,62. Landa
hans, Ken Read, sem spáð var
frama í keppninni, tókst ekkert
sérstaklega upp og hafnaði ekki í
verðlaunasæti. Svisslendingurinn
Peter Múller náði aðeins fjórða
sætinu, hann fékk tímann 1:46,75,
en fimmta sætið hremmdi Pete
Daterson og var það mun betri
árangur en reiknað var með. Fékk
Pete tímann 1:47,04. Kannski kom
mest á óvart, að Herbert Plank,
sem fékk langbesta tímann í
æfingaferðunum, náði aðeins
sjötta sætinu, tímanum 1:47,13.
1500 metra skautahlaup kvenna:
Hollendingarnir fljúgandi
unnu tvöfaldan sigur
HOLLENSKAR stúlkur komu
mjög á óvart í 1500 metra skauta-
hlaupi kvenna í Lake Placid í
gær. Þær hrepptu þar bæði gull-
og silfurverðlaunin. Annie
Borckink sigraði, fékk tímann
2:10,95 mínútur. Hollenska stúlk-
an Ria Visser varð síðan í öðru
sæti, þrátt fyrir að hún keppti við
gullhafa siðustu leika, sovésku-
stúlkuna Nataliu Petrusevu.
Tími Riu var 2:12,35 minútur.
Austur-þýska stúlkan Sabine
Becker hafnaði í þriðja sæti, fékk
tímann 2:12,38 mínútur. Annars
kom sigur Borckink mjög á óvart,
því að í æfingahlaupum fyrir
keppnina hlutu 10 stúlkur betri
tíma en hún. Og þegar keppnin
hófst, fór hún frekar rólega af
stað. En rosalegur endasprettur
tryggði henni sigur. Sagði hún
sjálf eftir sigurinn, að hinn góði
tími Riu Visser (en hún keppti á
undan) hefði hvatt sig til dáða.
Visser, sem er aðeins 18 ára,
furðaði sig hins vegar hvað mest
yfir árangri sínum. Sagði hún
eftir hlaupið, að hún stefndi að því
að ná sínu besta á vetrarleikunum
1984, þessi árangur hefði komið
sér mjög á óvart.
Bikarkeppni HSÍ:
Valur og FH mætast í
8-liða úrslitum
DREGIÐ var í 8-liða úrslitum
bikarkeppni HSÍ í gærkvöldi að
loknum leik Vals og ÍR. Tveir
stórleikir eru þar á dagskrá og
má þar fyrst nefna leik Vals og
FH í Laugardalshöllinni. Þetta
eru liðin sem næst koma Víkingi í
1. deild og er þarna möguleiki á
þvi að vinna eitthvert mót. Þá
verður án efa hart barist í
Firðinum, en Haukar fá Vikinga
í heimsókn og hafa líklega hug á
að hefna tveggja tapleikja í
deildarkeppninni.
KR fær örugglega að hafa fyrir
því að komast í undanúrslitin, en
liðið mætir ÍA á Akranesi. í
síðasta leiknum mætast síðan
annaðhvort Eyja-Þór eða Stjarn-
an annars vegar og KA hins vegar,
leikið fyrir sunnan. Einnig var
dregið í 8-liða úrslitum í meistara-
flokki kvenna og 2. flokki karla.
Fer drátturinn hér á eftir, fyrst
kvennadrátturinn og síðan ungl-
ingadrátturinn:
Fylkir/Þór Ak - UMFN
KR — Fram
FH - Valur
Þór Ve — Ármann
... og svo
FH - Valur
HK - Fylkir
Víkingur — Fram
Stjarnan — KR
Athyglisvert er að FH og Valur
drógust saman í öllum flokkunum.
— gg.
Sjá íþróttir bls. 18