Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980 VERf|LD ÁLLTAF BATNAR Hreindýrin orðin sjúk af áhyggjum Það eru ekki aðeins menn, sem verða illilega fyrir barðinu á streitu hins daglega lífs, heldur einnig málleysingjar. Komið hef- ur á daginn, að um 80% af hreindýrunum í Norður-Svíþjóð þjást af magasári. Telja vísinda- menn, að ástæðan sé sú, að dýrin þoli illa álagið af nútímahjarð- mennsku, en við hana eru notað- ar þyrlur. Claes Rehbinder dýralæknir komst að raun um þessa miklu tíðni sjúkdómsins, er hann rann- sakaði nokkur hundruð skrokka eftir hina árlegu hreindýraslátr- un í Sama-héruðunum. Segir hann, að nánari rannsókna sé þörf áður en hægt sé að kveða endanlega upp úr um sjúkdóms- orsökina, en ljóst sé þó að hinar nútímalegu aðferðir við hjarð- mennsku séu ekki heppilegar heilsufari dýranna. Þau eru rek- in hundruð kílómetra um ógreið- fær héruð, — og síðan eru þau látin fara hring eftir hring þar til komið er að ákvörðunarstað. Rehbinder segir, að magasár hreindýranna sé nákvæmlega sama eðlis og í fólki. Hafa niðurstöður hans valdið talsverð- ur áhyggjum í héruðum Sama, þar sem hreindýrarækt er mik- ilsverður atvinnuvegur. Lars Gunnar Thomasson, full- trúi Sama í Mittádalen reynir af fremsta megni að verjast kröft- ugum mótmælum umhverfis- verndarmanna í Svíþjóð. Hann segir: „Enginn hreindýrabóndi vill láta dýrin sín þjást af streitu, bæði vegna þess að hon- um er umhugað um þau og honum er einnig mikið í mun, að kjötið af þeim sé gott. Hann segir, að smölun með þyrlu ætti að vera betri fyrir dýrin, sé henni vel stjórnað, en smölun með snjósleðum og hundum. Langt fram á þessa öld átti nálega hver Sama-fjölskylda í Svíþjóð dálitla hjörð hreindýra, sem voru ailt að því tamin. Þau voru bæði notuð til mjalta og áburðar og fjölskyldurnar fóru stað úr stað með dýrin. Nú á tímum hefur eftirspurnin eftir hreindýrakjöti farið ört vaxandi og fyrir bragðið hafa hjarðirnar stækkað óðum. Úr hreindýra- skinnum eru unnin klæði og skæði og úr hornum þeirra búin til búsáhöld í stórum stíl til þess að freista ferðamanna, sem koma til að berja augum „leifarnar af ósnortinni Evrópu", en það heiti hafa ferðamálayfirvöld í Svíþjóð fundið upp yfir Sama-héruðin í norðurhluta landsins. En Sam- arnir eru löngu hættir að nota áhöld úr horni til eldamennsku, og hafa þess í stað gripið til málmpotta og plastskála. —CHRIS MORGENSSON FYRIRBÆRII Böndin berast að Suður- Afríku Aðfaranótt 22. september árið 1979, á sama tíma og kjarneðlis- fræðingar telja að atómsprengja hafi sprungið suður af Góðrar- vonarhöfða, var floti s-afrískra herskipa á leynilegum æfingum á sömu slóðum, að því er haft er eftir bandarískum leyniþjónustumönnum, CIA. Þó að ekki sé vitað með fullri vissu um staðarákvörðun flota- Leynilegar æfingar, og gárur í jónosferunni. æfinganna hafa bandarískir leyniþjónustumenn engu að síður borið það fyrir nokkrum þing- nefndum í Washington, að þær hafi farið fram á um það bil sömu breiddar- og lengdargráðu og sprengingin. „Þetta er ein helsta sönnunin fyrir þessari margumtöluðu sprengingu enn sem komið er,“ sagði einn af starfsmönnum þingsins í Wash- ington nýlega, „og bendir til þess, að hana megi rekja til flugskeyt- is sem skotið hefur verið frá einhverju s-afrísku herskip- anna.“ CIA lét þinginu einnig í té aðrar upplýsingar, t.d. þær, að vísindamenn við heimsins stærstu móttökustöð fyrir út- varpsbylgjur, hefðu orðið varir við gáru eða ölduhreyfingu í jónosferunni yfir Puerto Rico nokkrum stundum eftir að Vela- gervihnötturinn greindi tvo ljós- bjarma á suðurhveli jarðar í 4000 mílna fjarlægð. „Menn voru ekki á eitt sáttir um gáruna í jónosferunni," er STREITA - Magasárið á sér nákvæmlega sömu orsakir og hjá mannfólkinu! DOMSMA Pabbinn er lögbrjótur vegna ástar sonarins! Dómstólar í Frakklandi hafa þjarmað svo að Germain Ravera, að hann á orðið erfitt með að sjá sér farborða og á frelsisskerð- ingu í vændum. Hann hefur það eitt til saka unnið, að eiga óskipta ást sonar síns, sem Pascal heitir og er 10 ára garnall. Ravera býr í Pantin, sem er útborg Parísar, og þar hitti blaðamaður hann að máli fyrir skömmu. — Þetta er orðin sann- kölluð martröð, — sagði hann. — Dómarar saka mig fyrir að hvetja Pascal til þess að koma heim til mín, enda þótt móðir hans hafi haft forræði hans frá því að hann var 5 ára. Um leið og hann birtist sendi ég hann alltaf strax í burtu, en refsingunum linnir ekki. Ravera stundar sjálfstæðan atvinnurekstur í byggingariðn- „Sannkölluð martröð'* aðinum. Hann missti ökuskír- teini sitt fyrir þremur árum, og nýlega var vagninn, sem hann notar við störf sín, gerður upp- tækur vegna vangoldinna fjár- sekta, er hann hafði verið dæmd- ur til að greiða fyrir að hafa virt að vettugi dómsniðurstöðu varð- andi forræði barnsins, þegar hann og kona hans fengu skilnað að lögum. I síðasta mánuði áfrýjaði hann þessari málsmeð- ferð, en hafði það eitt upp úr krafsinu, að dómurinn var þyngdur upp í fjögurra mánaða fangelsisvist. — Ég er enn frjáls ferða minna, — segir hann, því að annað áfrýjunarmál er óútkljáð. Ef ég aðhefst eitthvað, sem túlka má á þá lund, að ég hafi ögrað réttinum, get ég séð mína sæng útbreidda. Þá geta þeir tekið allar eigur mínar. Dómsmálaráðuneytið í Frakk- landi fór þess nýlega á leit við dómstóla, að þeir beittu svo- nefndri vararefsingu í forræð- ismálum, einkum sviptingu öku- réttinda og upptöku bifreiða. Ravera er hræddur um, að rétt- urinn muni einnig gera upptæk verkfæri hans og jafnvel íbúð- ina, takist honum ekki að koma í veg fyrir að sonur hans haldi uppteknum hætti. I Frakklandi endar eitt hjóna- band af þremur með skilnaði. Eru dómarar mjög harðir í horn að taka, ef þeir telja að niður- stöður þeirra varðandi forræði og umgengnisrétt vera virtar að vettugi. Tvö önnur dæmi sýna glögg- lega þrákelkni franskra dómara, er þeir telja að valdi þeirra sé IRAN Nánar sagt frá níðings- verkum Nýjar upplýsingar og sannanir um pyntingar á valdatíma írans- keisara fyrrverandi ættu að geta auðveldað fólki nokkuð að skilja heiftina sem íranskur almenning- ur og stjórnvöld þar í landi sýna „vinum" gömlu stjórnarinnar. Frásagnir af misþyrmingum og pyntingum voru nýíega birtar í ritinu „Skýrslur um íran“ en ritið gefur út tímarit nokkurt í London, Index on Censorship, sem hefur helgað sig því verkefni að gefa út skjöl og skýrslur um margvíslegt misrétti af hálfu stjórnvalda víða um heim og sem viðkomandi yfirvöld leggja allt kapp á að ekki verði lýðum ljóst. Meðal þess þýðingarmesta, sem nefndin, sem skal rannsaka feril keisarans, fær til umfjöllunar, er frásögn bresks vopnasölumanns, Richards Savins að nafni, sem kom til Ítalíu í nóvember árið 1978 eftir að hafa verið í hálft þriðja ár í Vakil Abad-fangelsinu í Mashad. Samkvæmt frásögn Savins var einangrunarklefinn í fangelsinu aðeins 36 þumlungar á hvorn veg svo að fangar, sem þar voru hafðir, urðu að sitja á hækjum sínum með bakið upp að veggnum. Savin segir, að á tímabili hafi 70—80 pólitískir fangar bæst daglega í hóp þeirra sem fyrir voru í fangelsinu. „Allir voru þeir reifaðir eftir barsmíðarnar," segir hann. „Þeir sem höfðu verið hand- teknir vegna stjórnmálaafskipta voru lamdir strax við komuna til fangelsisins hvort sem réttarhöld höfðu farið fram yfir þeim eður ei.“ í fangelsinu var allt falt, þar á meðal ungir fangar á aldrinum 6—15 ára. Foringjarnir notuðu þá að vild og seldu þá auk þess föngunum. í „Skýrslunni", sem „Nefnd til varnar pólitískum föngum í íran“ gaf upphaflega út, eru nafngreind- ir margir menn, sem sætt hafa pyntingum, og menn sem ekkert hefur spurst til eftir að þeir lentu í höndum leynilögreglunnar, Sav- ak. Meðal þeirra pyntingaraðferða UPPGJÖRIÐ — Hoveida (fremstur), síðasti forsætisráðherra keisarans, fyrir byltingarrétti 1 Qasr-fangelsi í Teheran. Hann var dæmdur til dauða og skotinn. sem algengastar voru má nefna, að fangar voru lamdir með köpl- um, lamið var á iljar þeim og drepið í logandi sígarettum á ýmsum hlutum líkamans. Sumum föngum var varnað svefns lang- tímum saman og þeir jafnframt neyddir til að standa uppréttir, aðrir voru stungnir brenninetlum á ýmsum viðkvæmum stöðum og að síðustu má nefna langvarandi einangrun. Foreldrar unglings, sem Savak hneppti í fangelsi á sínum tíma, hafa skýrt fulltrúum Amnesty International frá því, að þegar þeim hafi loks verið leyft að vitja sonar síns í fangelsinu hefði hann staulast á móti þeim með mestu erfiðismunum og engu verið líkara en hann „gengi á glóðum". Hann hafði verið laminn svo rækilega á iljarnar, að þar var ekki hold-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.