Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
59
FILMS
ILLUSTRATED
velur 10 bestu
myndir ársins 1979
KSIIIIIII
& J 'Sá, 13 ££ ' •
Á síðustu Kvikmyndasíðu
gat ég lítillega helstu verð-
launahafa breska tímaritsins
FILMS AND FILMING. Ég
læt þar ekki alveg staðar
numið, því hér birtist val
gagnrýnanda annars, vel
þekkts bresks kvikmynda-
tímarits — FILMS
ILLUSTRATED, á 10 bestu
myndum síðasta árs.
1. MANHATTAN, Woody
Allen
2. NEWSFRONT, Philip
Noyce
3. THE CHINA SYN-
DROME, James Brigdes
4. THE BUDDY HOLY
STORY, Steve Rash
5. CAPRICORN ONE, Peter
Hyams
6. AUTUMN SONATA, Ing-
mar Bergman
7. THE DEER HUNTER,
Michael Cimino
8.-9. THE NORMA RAE,
Martin Ritt
8.-9. THE TREE OF
WOODEN CLOGS, Ermanno
Olmi
10. YANKS, John Schlesing-
er
Þá velja og lesendur blaðs-
ins 10 bestu myndir ársins og
þar er röðin ekki sú sama.
1. THE DEER HUNTER
2. THE CHINA SYN-
DROME
3. YANKS
4. MANHATTAN
5. ALIEN, Ridley Scott
6. CAPRICORN ONE
7. SUPERMAN - THE
MOVIE Richard Donner
8. HALLOWEEN, John
Carpenter
9. THE WARRIORS, Walt-
er Hill
10. DAYS OF HEAVEN,
Terrence Malick.
A NÆSTUNNI
Nýja bíó:
Ást við fyrsta bit
Nokkuð smellin hugmynd,
en það fátæklega útfærð að
hún nýtur sín sjaldnast (ef
undan er skilið diskó-atriðið
og örfá önnur). Frábær rnynd
fyrir þá sem gaman hafa af
fimmaurabröndurum.
Tónabíó:
Dog Soldiers
All-spennandi þriller um
eiturlyfjasmygl nýgræðinga
og þær ófyrirsjáanlegu afleið-
ingar sem slíkur háskaleikur
hlýtur að hafa í för með sér.
Þegar höfundar taka sig
alvarlega (sem er nokkuð oft),
fer boðskapurinn aðallega
fyrir ofan garð og neðan.
Nolte er sannfærandi og
kraftmikill eins og hans er
von og vísa í aðalhlutverkinu;
Weld reynir sitt besta í ólán-
legu hlutverki, sem er í tæp-
ast nógu góðu sambandi við
söguna. Tæknilega frekar
slælega gerð, einkum klipping
og myndataka, en útkoman er
spennandi afþreying.
3. GREASE.
4. THE EXORCIST.
5. GODFATHER.
6. SUPERMAN.
7. SOUND OF MUSIC.
8. STING.
9. CLOSE ENCOUNTERS OF
THE THIRD KIND.
10 GONE WITH THE
WIND.
11. SATURDAY NIGHT
FEVER.
12. NATIONAL LAMPOONS
ANIMAL HOUSE.
13. SMOKEY AND THE
BANDIT.
14 . ONE FLEW OVER THE
CUCKOO’S NEST.
15. AMERICAN GRAFFITI.
8. CALIFORNIA SUIT, Her-
bert Ross.
9. THE DEER HUNTER,
Michael Cimino.
10. THE MAIN EVENT,
Howard Zieff.
í fyrsta tölublaði VAR-
IETY, ár hvert, birtist einnig
endurskoðaður listi yfir vin-
sælustu myndir allra tíma,
byggður á aðsóknartölum
blaðsins, fengnum frá öllum
helstu borgum Bandaríkj-
anna og Kanada. Látum hann
fylgja hér á eftir (þær 15
efstu):
1. STAR WARS.
2. JAWS.
Gagnrýnendur films 111 hölluðust að nýjustu
Allens, MANHATTAN, sem toppmynd ársins.
mynd Nick Nolte 1 myndinni
DOG SOLDIERS.
1. SUPERMAN, Richari
Donner.
2. ROCKY II, Sylvester Stall
one.
3. ALIEN, Ridley Scott.
4. THE AMITYVILLI
HORROR, Stuart Rosenberg
5. STAR TREK, Robert Wísí
6. MOONRAKER, Lewis Gil
bert.
7. THE MUPPET MOVIE
James Frawley.
AÐ VENJU birti „biflía
skemmtiiðnaðarins“, VARI-
ETY, lista yfir vinsælustu
myndir ársins í Norður-
Ameriku, og þannig litur
hann út fyrir árið sem leið:
Likt og hér á landi naut THE DEER HUNTER mestra vinsælda lesenda FILMS
ILLUSTRATED árið 1979.
Vinsælustu mynd-
ir ársins sem leið
— vestan hafs
7
m
Allir komu þeir aftur
- og enginn þeirra dó
REGNBOGINN:
FLÓTTINN
TIL AÞENU
(„Escape to Athena“)
Leikstjórn: George Pan
Cosmatos. Kvikmynda-
taka: Gil Taylor. Tónlist:
Lalo Schifrin. Aðalhlut-
verk: Roger Moore, Telly
Savalas, David Niven, Ell-
iott Gould, Claudia Cardin-
ale, o.s.fv. Brek, frá ITV.
Gerð árið 1979.
Hér gengur æði mikið á,
meira en orð fá lýst í stuttu
máli. En það má telja hvað
helst, að myndin gerist í
Grikklandi undir hersetu
Þjóðverja og segir m.a. af
makalausustu fangaupp-
reisn; skemmdarverkum á
olíuforðageymslu; starf-
semi neðanjarðarhreyf-
ingarinnar, sem að mestu
leyti fer fram á þorpshóru-
húsinu; rupli Þjóðverja á
fornminjum; óvæntri ger-
eyðingu á drápsskeyti einu
óálitlegu, svartmáluðu.
Þessi margflókni sögu-
i þráður er að vissu leyti
veikasti punktur myndar-
innar. Áhorfandanum er
næstum ofboðið með öllum
klippingunum á milli sögu-
sviða og persóna, en hér
bregður fyrir aragrúa milli-
stjarna. Spennan vill leka
niður í öllum þessum hrær-
ingum, svo útkoman verður
meðalgóð afþreyingar-
mynd. Víðsfjarri velheppn-
uðum, ekki ósvipuðum
stríðsmyndum eins og
BYSSUNUM FRÁ NAV-
ARONE (en þangað frekar
en til mynda á borð við
KELLY’S HEROS, tel ég að
höfundar hafi sótt hug-
myndina að FLÓTTANUM
TIL AÞENU) og of mikil
spaugsemi skaðar heildar-
svip myndarinnar.
Kostirnir eru líka ófáir.
Leikstjórinn, Cosmatos, er í
hópi eftirtektarverðari,
nýrri leikstjóra, og eru
mörg bardagaatriðin og
átakasenurnar einkar vel
upp settar. Sérstaklega
kappaksturinn á mótorhjól-
unum um öngstræti þorps-
ins, gjöreyðing klaustursins
og upphafssenan, sem er
geysifögur, þar sem tónlist
Schifrins fellur einkar vel
við. (Atriðið í heild, minnir
þó talsvert á upphaf ann-
arrar, grískættaðrar mynd-
ar, ZORBA THE GREEK).
í myndinni verður tæpast
þverfótað fyrir misfrægum
leikurum. Kunnastir eru
þeir Roger Moore og Telly
Savalas. Roger Moore er
tæpast í essinu sínu fyrr en
rétt í lokin, þegar hann
gleymir sér og er orðinn allt
í einu gamalkunni Simon
Templar. Reyndar er hlut-
verk hans það ólánlega
skrifað að ófært eír að túlka
það af nokkru viti. Savalas
ber sig reffilega að venju
(hefur örugglega fengið
hlutverkið í krafti síns
gríska ætternis), en eina
„leikinn" er að sjá hjá þeim
Stephanie Powers og Elliott
Gould — enda hafa þau
einu bitastæðu hlutverkin.
Og Cardinale er ennþá fög-
ur sem nóttin ...
Að öllum líkindum hefði
FLÓTTIN FRÁ AÞENU
orðið mun heilsteyptari og
eftirminnilegri ef glundroð-
anum hefði verið haldið
betur í skefjum og brandar-
arnir verið færri. En hvað
með það, öruggar atvinnu-
mannshendur Cosmatos
lyfta henni vel í meðallag.