Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980 55 félk í fréttum Þessir krakkar haía verið síðustu viku í starfskynn- ingu á Morgunblaðinu. Þrjú þeirra hafa kynnt sér biaðamennsku en Magnús Snorri Halldórsson, t.h., ljósmyndun. Þeir Magnús og Fjölnir Geir Bragason eru úr Hlíðaskóla. Stelpurnar, sem báðar eru úr Gagnfræðaskóla Mosfellssveitar, heita Alvilda Gunnhildur Magnúsdóttir, t.v., og Guðrún Sigurðar- dóttir. Látum þetta að kenningu Galdrakarlinn og skemmtikrafturinn Bald- ur Brjánsson og Júlíus bróðir hans hafa samið og flutt nýja skemmti- dagskrá sem þeir hafa flutt á tveimur skemmt- unum í Reykjavík. Við ræddum í þessu tilefni við Baldur og spurðum hann, hvers konar dagskrá þetta væri og - ákveðnir í að gera miklu betur hvort þeir bræður hygð- ust halda áfram að koma fram saman. Baldur var ekki mjög Nýr yfirmaður Hjálpræðis- hersins DANÍEL Óskarsson. kap- teinn í Hjálpræðishernum. tekur við sem yfirmaður Hjálpræðishersins á tslandi og i Færeyjum um n.k. mán- aðamót. Guðmund Lund sem gegnt hefur þessu starfi i tæp tvö ár tekur við sem yfirmaður í Norður-Noregi. Daníel, sem er rúmlega þrítugur að aldri, hefur áður starfað fyrir Hjálpræðisher- inn á Islandi sem gistihús- stjóri og flokksforingi á Isa- firði og flokksforingi í Reykjavík. Hann er sonur Óskars Jónssonar sem var deildarstjóri á Islandi á und- an Gudmund Lund en er nú yfirmaður Hjálpræðishersins í Upplöndum í Noregi. Kona Daníels er Anne Gurine Ósk- arsson og eiga þau tvær dætur. Þau koma hingað til lands frá Flekkefjord í Noregi þar sem þau hafa starfað sem flokksforingjar. Sunnudaginn 2. mars n.k. verður fagnaðar- samkoma fyrir Daníel og fjöl- skyldu í Hjálpræðishernum í Reykjavík. Daníel Óskarsson og Anne Gurine. okkur verða hress með frammistöðu þeirra bræðra og sagði: „Þetta er alveg agalegt, ég hef sjaldan fengið annan eins skell. Við vorum mjög vel undirbúnir, bún- ir að þaulæfa prógrammið en við náðum engum tök- um á áhorfendum. Þetta var sæmilegt í fyrsta skiptið en í seinni tvö algjörlega mislukkað. Þátturinn var sambland af göldrum og gríni, en svona gjörsamlega mis- lukkaður. Við erum nú samt ekki af baki dottnir og erum ákveðnir í að láta þetta okkur að kenningu verða — og gera miklu betur. Hvað annað?“ Myndin hér til hliðar er tekin af þeim bræðrum rétt áður en þeir komu fram í fyrsta sinn með prógrammið. Ljósm. Mbl. Sigurjón Grétarsson. Geir Hallgrímsson. Albert Guðmundsson og Ellert B. Schram eða...? Eins og allir sjá er þetta ekki í alvöru heldur er hér á ferðinni Jörundur Guðmundsson og bræðurnir Halli og Laddi í höfuðpaurar Þórskabarettsins. Halli, Laddi og Jör- undur í kabarett VEITINGAHÚSIÐ Þórs- café hefur í kvöld sýn- ingar á kabarett sem hef- ur fengið nafnið „Þórs- kabarett“. Bræðurnir Halli og Laddi hafa samið og útfært kabarettinn ásamt eftirhermunni Jör- undi Guðmundssyni. Sjálf- ir leika þeir stórt hlutverk í sýningunni en auk þeirra sýnir sjónhverfingamaður- inn Johannay Hay, Stór- band Svansins leikur og íslenski dansflokkurinn sýnir hluta úr danssýning- unni „Coktair. Eins og áður segir eru Halli, Laddi og Jörundur aðaluppistaðan í kaba- rettnum og að sögn Ladda munu þeir verða með ým- islegt á boðstólum svo sem söng, dans, grín og gaman. „Þetta verður svolítið öðru vísi en við erum með venjulega, það er minna um eftirhermur en meira um annað gaman,“ sagði Laddi. Ekki vissi Laddi hvort þetta samstarf þeirra þre- menninganna væri upphaf- ið að öðru meira. „Þetta verður svona alla vega núna í bili hvað sem verður. Það er alltaf gaman að fást við eitthvað nýtt,“ sagði Laddi að lokum. Ljósm. Mbl. Kristján. Þau eru bæði þekkt, hvort á sínu sviði. Við látum lesendum eftir að geta sér til um hver þau eru, en myndin er tekin í íþróttahöllinni á hátíð, sem þar var haldin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.