Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRUAR 1980 61 á. Orkumálin eru ein mestu vandamál hins vestræna heims og þar með okkar lands. Með skóg- rækt getum við notfært okkur sólarorkuna. Við þurfum líka til þess hæfan jarðveg og svo um- fram allt sanna „Vormenn ís- lands," sem hafa þekkingu og stórhug til að vinna að þessu mikilvæga máli. Skógræktarstjóri sagði í útvarpi að nú væri hægt að fá lönd til skógræktar, því margir bændur hygðust minnka hinn hefðbundna búrekstur eða jafnvel hætta. Því þarf að bregða skjótt við um fjáröflun og fleira svo hægt verði að planta í sem víðáttumest land- svæði þegar á næsta vori. Bændur þyrftu að taka upp skógrækt sem búgrein undir stjórn Skógræktar ríkisins líkt og norskir bændur hafa lengi gert með ágætri reynslu. Endurnýja þarf birki- skógana og planta nýjum líka með beitarræktun í huga. Ég held að bændur geri sér tæpast grein fyrir hvað friðun og skjól er geysiþýð- ingarmikið fyrir allan jarðargróð- ur. Til dæmis vex auðveldlega kafgresi árlega í þurrkuðu mýr- lendi og víðar án nokkurs áburðar, aðeins ef það er alfriðað og nýtur skjóls. Svo er það heimatrjárækt- un bæði til skjóls og augnayndis. Góð skjólbelti kringum hús veita bæði skjól gegn kulda og eru líka vörn gegn ofviðrum. • Eyðimerkurganga upplausnarafla Margir hafa barizt árum sam- an gegn ræktun barr- eða nytja- skóga. Fræg er áramótaósk kvenprófessors í Háskóla íslands, lögbann gegn ræktun barrskóga á íslandi. Sömu þjóðardraugarnir standa að svo miklu skemmdar- starfi á íslenzkri tungu að hún verður fljótlega tæpast skiljanleg venjulegu fólki eða verður tæt- ingsmál, sem fáir botna í. T.d. hafa þrír háskólamenntaðir menn (skáld, veðurfræðingur og stjórn- málamaður) lýst því margoft yfir að engar reglur eigi að gilda um íslenzkt mál. Allir eiga að skrifa, tala og lesa eins og hverjum sýnist. En til hvers orðabækur eða kennsla í málinu? • Skógræktun og uppeldismál Uppeldi barrskóga er í ýmsu líkt uppeldi barna. Hvort tveggja þarf skjól og umönnun fyrstu 15—20 árin og geta svo að mestu bjargað sér án stuðnings. Margar SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Wijk aan Zee í Hollandi í ár kom þessi staða upp í skák stórmeistaranna Guðmundar Sigurjónssonar, og Jans Timman, sem hafði svart og átti leik. þjóðir hafa þann ágæta sið að planta tré hvert sinn er barn fæðist. Þetta ættum við að gera. Afturhaldsöflin óskapast yfir því hvað seint skógurinn gefur arð, en enginn talar um þótt bæði foreldr- ar og þjóðfélagið verji gífurlegum fjárhæðum til uppeldismála. Þess- ir undarlegu furðufuglar ærast ef einhverju félagi eða einstaklingi gengur vel. Engin stór tré, helzt ekkert nema skófir, mosar og sem mestar eyðimerkur. Eitt ríkis- náttröll skal svo gína yfir öllu þjóðfélaginu með alla enda fasta svo að hægt sé að kippa fljótt í ef einhver sýnir óþekkt. Ekki óáþekkt brúðuleikhúsi. Skógi og gróðri fylgir friður og farsæld. Eyðingu skóga fylgir eyð- imerkurganga ófriðar og hungurs eins og dæmin sanna víðs vegar um heiminn. Ingjaldur Tómasson.“ • Hefðbundin vitleysa? „Mig langar til að senda nokkrar línur sem eru um íslenzkt tungutak í daglegu tali: 1. Er rétt að segja mér langar eða mig langar? Mér langar að tala við þig o.s.frv. 2. Ég fer á bíó eða ég fer í bíó? Ég fer í sjúkrahús, ekki ég fer á sjúkrahús. 3. Að stikla á stóru. Að stikla á steinum, er það ekki rétt? Ýmis önnur tungutök mætti nefna, en það yrði of langt. Margt er hægt að nefna, en ég læt hér staðar numið að sinni og vona að sérfræðingur vilji vera svo vin- samlegur að svara. Margt af þessu er svokölluð hefðbundin vitleysa, en það mætti hvetja alla kennara í grunnskólum til að kenna nem- endum sínum hið rétta í íslenzku tali og skrifum. Trygve Torsteinsen.“ Sjálfsagt er „hefðbundin vit- leysa" réttnefni yfir marga vit- leysuna í íslenzkri tungu og þágu- fallssýkin, mér langar, er kannski algengust. Mig langar hefur hingað til verið talið réttara, en ofangreindu bréfi er hér með vísað til þeirra er treysta sér til að svara og leiðbeina um íslenzkt mál. HÖGNI HREKKVÍSI STERKUR og STÍLHREINN Handverkfæri eru sterk og vönduð Fjölbreytl úrval AEG handverkfæra tll Iönaöar-, bygginga- og tómstundavlnnu. Við AEG borvélarnar er auðveldléga hægt að setja ýmsa fylgihluti, svo sem pússikubb, hjólsög, útsögunarsög og margt fleira. VELJIÐ AEG HANDVERKFÆRI SEM ERU ÞEKKT FYRIR GÆÐI BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 G3? SlGeA V/öGA í 'ilLVtmi 23 ... Hxb2!! 24. Kxb2 Db7+, 25. Kcl f5! og hvítur gafst upp. Hvíta drottningin getur ekki lengur valdað e2 reitinn og eftir t.d. 26. Dxg6 verður hvítur mát eftir 26 ... Re2+! 27. Rxe2 Db2. wn vm "fvk w viRoð íKw wr' ■>u ‘ - C'X(' \ÚVQúiy, _____ X'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.