Morgunblaðið - 24.02.1980, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.02.1980, Qupperneq 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980 FLUG- HRÆÐSLA Giinther vill að fólk sé eins og heima hjá sér. Hann vill að menn noti aðeins fornöfn, og á öðrum degi þúast orðið flestir, enda þótt þeir séu löngu komnir af skóla- aldri. Við lítum á okkur sem útverði, sem hamla á móti óþæg- indum og röskun, sem þotuöldin veldur. Ef mér dytti í hug að kaupa mér sementsverksmiðju, þá hefur Eric lofað að útvega mér hana með kostakjörum. Herbert og Hilde rabba saman í hléinu um hinar ýmsu hliðar lánastarfsem- innar. Við sitjum í hálfhring í einu horninu í stórum samkomu- sal, og menn gætu haldið af yfirbragði okkar að við værum saman komin til þess að gera með okkur eitthvert spaugilegt sam- særi. Að minnsta kosti ræður stirð- busaháttur ekki ríkjum á þessu námskeiði. En Gúnther getur að- eins lítillega sinnt hverjum ein- stökum. Til þess er tíminn of naumur. Við byrjum á öndunaræf- ingum og reynum að slaka á vöðvunum smátt og smátt. Síðan kynnum við okkur 6 heilræði, sem eiga að hjálpa þegar mikið liggur við. Fyrst slökun, síðan að ala á kjarki, leiða hugann að öðrum efnum, meta aðstöðuna á réttan hátt og lýsa tilfinningum sínum. Auk þess er ráðlagt að fara í eins konar samband af glímu og sjómanni til þess að minnka sálræna og líkamlega spennu. Þessu framfylgdum við út í yztu æsar, en annað mál er það, hvort slíkt væri mögulegt, þegar til kastanna kæmi. Eða hvernig brygðust farþegar við slíku fram- ferði? Ef til vill sýndu þeir ekki ýkjamikinn skilning. Þegar um er að ræða að leggja rétt mat á aðstöðu hverju sinni, leiðir Gunther okkur inn í marga flugtæknilega leyndardóma. Til dæmis fræðir hann okkur um að hægt sé að fljúga með einum hreyfli og að dauðinn sé ekki vís þótt vélin bili. En hugmyndaflug okkar getur sífellt af sér nýjar og margslungnar ástæður fyrir ein- hverjum hörmungum, svo Gúnth- er verður að síðustu að láta í Boeing 727 fellur log- andi til jardar viö San Diego í september 1978. Model 1980 STJÓRNU Stjórnun I Stjórnunarfélag íslands heldur nám- skeiö um Stjórnun I í fyrirlestrarsal félagsins aö Síöumúla 23, 3. — 4. mars kl. 13.30 — 19 báöa dagana. Fjallað veröur um hvaö atjórnun er og hlutverk hennar, um stjórnarsviðið og setningu markmiöa og stjórnun og skipu- lag fyrirtækja. ÐSLAN Leiöbeinendur: Hans Kristján Arnason rekstrarhagfræöingur Námskeiðið gefur innsýn í stjórnunar- vandamálin. Því er einkum ætlaö aö auka möguleika þátttakenda á aö líta á viö- fangsefnin á einstökum sviðum, t.d. fjármálsviði, sölusviði og framleiöslu- sviöi. Námskeiöiö hentar vel þeim sem vilja kynnast nútíma stjórnunarháttum og stjórnskipulagningu fyrirtækja. Nánari upplýsingar og skráning þátt- takenda á skrifstofu Stjórnunarfólagsins, sími 82930. rekstrarhagfræóingur. STJORNUNARFELAG ÍSIANDS Síöumúla 23 Sfmí 82930

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.