Morgunblaðið - 24.02.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
45
(Ljósm. Ævar Auðbjörnsson).
Fimm knáir skiðamenn írá Eskiíirði, en ungt fólk frá Neskaupstað, Eskifirði og
Reyðarfirði hefur sannarlega kunnað að meta aðstöðuna í Oddsskarði og flykkist
þangað hvenær sem stund gefst.
Yfirlitsmynd yfir hluta af skiðasvæðinu. Lyftan er í utanverðum Sellátradal og
teygir sig rúmlega 600 metra i átt að Magnús&ctindi. Á næstunni verða togbrautir
Norðfirðinga og Eskfirðinga fluttar upp i Oddsskarðið og settar upp i þessari
skiðaparadis Austfirðinga.
Skemmta sér á skíðum í Skarðinu
Eskifirði, 21. febrúar.
GÍFURLEG aðsókn hefur
verið í skíðalyftu þá, sem
sett var upp í Oddsskarði
og opnuð í vetur. Það eru
Norðfjörður, Eskifjörður
og Reyðarfjörður, sem
standa að þessari spjalda-
lyftu, en fólk víðs vegar að
af Austfjörðum hefur einn-
ig notað sér lyftuna. Þarna
er einstaklega skemmtilegt
skíðaland og möguleikarnir
óþrjótandi. Veðurguðirnir
hafa leikið við hvern sinn
fingur í vetur og þó lítill
snjór hafi verið í byggð,
hefur skíðafæri verið
ákjósanlegt í skíðalandinu.
Sætaferðir eru skipu-
lagðar frá stöðunum í fjall-
ið og reyndar hefur ásókn
yngri skíðamannanna verið
svo mikil að erfitt hefur
verið að hemja þá þegar
kennsla hefur verið síðdeg-
is í skólum. Nú er verið að
setja upp tvær togbrautir í
skíðalandinu til að mæta
eftirspurninni og þarna
hyggjast Austfirðingar
renna sér á skíðum langt
fram á sumar.
— Ævar.
Séð upp eftir brautinni, sem svo mjög hefur verið notuð í vetur, en veður og færi
verið einstaklega gott og reikna menn með að þarna verði snjór fram i júnimánuð ef
miðað er við síðustu ár.
Séð niður eftir Sellátradalnum, niður í Reyðarfjörð og mynni Eskifjarðar, m.a. má
sjá Hólmanes og fjær í Suðurfjöllin við Reyðarfjörð. Þegar mikill snjór er þá er
ekkert auðveldara, en renna sér frá hæstu tindum og niður i flæðarmál.
Gjöfin sem
gleður strax!
Nýja gerðin af Kodak Instant myndavélinni
er komin. Fallegri og nettari.
Kodak Instant framkallar myndirnar um
leið í björtum og fallegum Kodak litum
— Engin bið og árangurinn af vel
heppnuðu „skoti" kemur í Ijós.
Umboðsmenn um allt land
Kodak Instant
EK 160-EF
kr. 40.740.—
Kodak Instant
EK 160
k kr. 26.280.-
HANS PETEPSEN HF
BANKASTRÆTI
S: 20313
AUSTURVER
S:36161
GLÆSIBÆR
S:82590