Morgunblaðið - 24.02.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
51
Sigurður Sverrir Pálsson:
Áframhaldandi
kvikmyndahátíð?
Bogart-myndir í Háskólabiói: Laureen Bacall og Bogart i The Big
Sleep.
ÞAÐ er engu líkara en að
kvíkmyndahátíðin, sem nú er
nýafstaðin í Regnboganum hafi
ekki hætt, heldur hafi hún breitt
úr sér í öðrum kvikmyndahús-
um. Tónabíó hefur nú nýlokið við
að sýna Dog Soidiers eftir
breska leikstjórann Karel Reisz
(Morgan, Isadora, The Gam-
bler), sem er eftirtektarverð
mynd að ýmsu leyti, þótt mark-
mið höfundarins sé ekki nógu
skýrt. Reisz gerir hér svipaða
tilraun og landi hans, Schlesing-
er (Midnight Cowboy)m til að
skyggnast inn í amerískt þjóðlíf,
hann notfærir sér stríðið í Viet
Nam til að mynda bakgrunn við
sambærilega sýkingu hugarfars-
ins á heimavelli. Myndin er
byggð á sögu Robert Stone og ef
til vill má kenna það sögunni að
einhverju leyti, að persónulýs-
ingar eða táknræn heild mynd-
arinnar er ekki sterkari en raun
ber vitni.
Um leið og sýningum lauk á
Dog Soldiers hóf Tónabíó sýn-
ingar á Valentino, mynd Ken
Russells um Rudolph Valentino,
fyrsta og mesta elskhuga kvik-
myndanna. Russell er einn af
umdeildustu kvikmyndahöfund-
um samtímans og myndir hans
vekja undantekningalaust mikið
umtal.
Laugarásbíó hefur nú um
skeið sýnt The Shout, mynd
Jerzy Skolimovski, og þegar sýn-
ingum lýkur á henni, mun Laug-
arásbíó taka til sýninga mynd
Fassbinders, Despair, með Dirk
Bogarde í aðalhlutverki. Þetta er
fyrsta mynd Fassbihders með
ensku tali, gerð eftir sögu Nabo-
kov, handrit eftir Tom Stoppard,
einn af virtustu handritahöfund-
um Breta. Háskólabíó fer nú
einnig á stúfana með sína eigin
„kvikmyndahátíð", þó hún sé
lítil í sniðum, en bíóið hefur
tryggt sér til sýninga þrjár
gamlar Humphrey Bogart —
myndir. Þetta eru myndirnar
The Big Shot, 1942, leikstjóri
Lewis Seiler, The Big Sleep,
1946, leikstjóri Howard Hawks
og The Enforcer, 1951, leikstjór-
ar Bretaigne Windust og Raoul
Walsh. Verður fyrsta myndin,
The Big Sleep, sýnd næstk.
mánudag sem mánudagsmynd
til að byrja með, en ef vel gengur
verður hún einnig sýnd á al-
mennum sýningum. The Big
Sleep er ein af þekktustu mynd-
um Bogarts og hér leikur hann á
móti konu sinni, Laureen Baccall
en samleikur þeirra í myndinni
þykir mjög sérstakur og magn-
aður. Myndin er nú almennt
talin til „klassískra“ verka, en
þegar hún var gerð á sínum
tíma, réðust margir amerískir
gagnrýnendur á höfunda mynd-
arinnar fyrir óhóflegt ofbeldi og
siðleysi. Verður fróðlegt að bera
þessa frumútgáfu saman við
mynd Michael Winners með
sama nafni um sama efni.þar
sem Robert Mitchum fór með
hlutverk Marlowes.
Nýja Bíó tekur fljótlega til
sýninga eina af nýjustu myndum
Rovert Altmans, A Wedding
(Am.1978), sem er ákaflega
skemmtileg og lífleg stúdía á
giftingarveislu, svo ekki sé
meira sagt. Gestir í veislunni eru
fjölmargir og margir þekktir
leikarar fara þarna með smá
hlutverk, m.a. má nefna Miu
Farrow, Lilian Gish, Nina van
Pallandt, Wittorio Gassman,
Desi Arnaz Jr., Grealdine Chapl-
in, Lauren Hutton ofl. Þá mun
Nýja Bíó einnig sýna fljótlega
mynd Paul Mazurskys, An Un-
married Woman, með Jill
Clayburgh og Alan Bates. Þetta
er án efa besta mynd Mazurskys
til þessa (fyrri myndir Alice in
Wonderland, Next Stpo Green-
vich Village, Bob & Carol, Ted &
Alice) og hefur hún allstaðar
verið sýnd við miklar vinsældir.
Jill Clayburgh deildi verðlaun-
um fyrir besta leik í kvenhlut-
verki á Cannes ’79 fyrir leik sinn
í þessari mynd, með Isabelle
Huppert (Violette Noziére).
Þá hefur það flogið fyrir, að í
Regnboganum séu menn ennþá í
hátíðarskapi og eru þeir nú að
velta fyrir sér tilboði um sýn-
ingarrétt á einni af nýjustu
myndum Fassbinders, Die Ehe
der Maria Braun, (Hjónaband
Maríu Braun, 1979). Mynd þessi
hefur þegar hlotið allmörg verð-
laun og hefur þann kost umfram,
að hafa orðið vinsæl meðal
kvikmyndahúsgesta.
Að lokum er ekki úr vegi að
minnast á myndina Escape to
Athens, (Flóttinn til Aþenu),
sem hóf göngu sína að kvik-
myndahátíð lokinni í A-sal
Regnbogans. Að vísu er þetta
„bara“ venjuleg hasarmynd til
afþreyingar og óþarft að fjalla
um efnið nánar. Hins vegar
hefur leikstjórinn, Grikkinn
George Pan Cosmatos, sannað,
svo ekki verður um villst, að
hann er einn af fáum leikstjór-
um, sem hefur næmt myndauga,
henn nýtir þennan hæfileika til
fullnustu og skapar myndum
sínum þannig sérstakan mynd-
stíl, sem oft er hrein unum að
horfa á. Takið t.d. eftir því,
hvernig hann opnar þessa mynd
með frábærri myndatöku úr
lofti, hátt yfir landi, lækkar sig
síðan og endar í nærmynd inn í
miðri atburðarás. Þetta upphaf
er sambærilegt við upphafið í
fyrri mynd hans, The Cassandra
Crossing, sem hér var sýnd í
Háskólabíói fyrir nokkru. Flótt-
inn frá Aþenu býður þannig upp
á skemmtilega myndfrásögn, þó
að öðrum kostum sé vart til að
dreifa.
Rudolf Nureyev sem Valentino i mynd Russels.
Skipatæki — Hydraulikk
Sala- og þjónusta okkar inniheldur m.a.
Flotvörpuvindur — geilavindur, Véitak h.f.
Mini-úrhristivélar fyrir reknet, Véltak h.f.
Tunnuvalsa fyrir síld, Véltak h.f.
Vindur 2—5,5 tonn frá Pull Master.
Krana frá 3—30 tonn, metra frá Fassi.
Loka, mótora, dælur og háþrýstisíur.
Leggjum vökvakerfi og önnumst viöhald vökvakerfa
og tækja.
Véltak h.f., er sérhæft verkstæöi í hydraulikk.
Erum meö renni- og járnsmíðaverkstæði.
Vélaverkstæöiö Véltak,
Hvaleyrarbraut 3,
Hafnarfiröi, Box 49,
Símar 50236 — 54315.
LISTSMIÐJAN,
Grensásvegi 12, bakhúa, sími 39331
Univ stigar fyrir-
liggjandi.
Ótal möguleikar
Þjónusta
öll almenn járnsmíöi,
suöuvinna, uppsetning
og viöhald véla og
tækja.
Framleiðum:
leiktæki, stiga og hand-
riö
Bændur:
smíðum flórgrindur, milllgerðl og hllö.
Tilboð — Tfmavinna.