Morgunblaðið - 25.03.1980, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
71. tbl. 67. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Leiðtogafundi
EBE frestað
Róm, 24. marz. AP.
FYRIRHUGUÐUM leiðtogafundi
Efnahagsbandalagsins 31. marz
var frestað að beiðni ítala í dag og
embættismenn sögðu að þeir
mundu reyna að boða til annars
fundar eins fljótt og auðið væri,
helzt ekki siðar en i aprillok.
Ákvörðunin var tekin til að veita
starfandi forsætisráðherra Italíu,
Francesco Cossiga, meira næði til að
mynda nýja ríkisstjórn. Cossiga,
sem er núverandi forseti bandalags-
ins, bað um frestinn þar sem hann
taldi að hann gæti ekki varið nógu
miklum tíma til að fjalla um
vandamálin sem leiðtogarnir taka
til meðferðar vegna stjórnarkrepp-
unnar.
Aðalmálið á leiðtogafundinum
Kennedy enn
spáð ósigri
New York, 24. marz. AP.
BARÁTTUNNI fyrir forkosn-
ingarnar á morgun lauk i kvöld og
Edward Kennedy öldungadeildar-
manni er spáð enn einum ósigri
fyrir Carter forseta í New York
riki sem velur 282 fulltrúa á
flokksþing demókrata.
Samkvæmt skoðanakönnun New
York Daily News hefur Kennedy 20
af hundraði minna fylgi en Carter
eða 36 á móti 56 af hundraði.
George Bush einbeitir sér að
forkosningu repúblikana í Connecti-
cut þar sem skoðanakannanir sýna
að Ronald Reagan hefur talsverða
forystu. John B. Anderson er þriðji.
Washington, 24. marz. AP.
STÆRSTA birgðaskip sovézka
flotans, Berezina, 40.000 lestir, er
komið til Indlandshafs þar sem
því er augljóslega ætlað að vera
fljótandi geymsla fyrir rússnesk-
an flota sem mun geta athafnað
sig þar til frambúðar.
Thomas Hayward aðmíráll,
æðsti yfirmaður bandaríska sjó-
hersins, sagði þinginu nýlega að
Berezina væri eins gott og beztu
skip Bandaríkjanna og mundi
auka getu Rússa til varanlegra
hernaðarumsvifa hvar sem væri í
heiminum.
Jafnframt er bandarísk flota-
deild komin ásamt sveit 1.800
landgönguliða til Arabíuhafs.
Rúmlega 400 sovézkir landgöngu-
liðar munu vera á Suður-Kínahafi
um borð í Ivan Rogov, stærsta
landgönguskipi Rússa. Bandarísk-
ir sérfræðingar telja að sovézku
landgönguliðarnir séu á leið til
Indlandshafs.
Bandaríkjamenn og Rússar
munu hafa jafnmörg skip á Ind-
landshafi, 27 skip hvorir, og hafa
mest haft 30 skip hvorir á þessum
slóðum. Bandaríkjamenn telja
Berezina eitt mikilvægasta skip
sem Rússar hafa smíðað á síðari
árum þar sem það gefi mikilvægar
bendingar um það sem vaki fyrir
Rússum. Það er búið þyrluskýli og
lendingarpalli og vel vopnað af
birgðaskipi að vera, m.a. loft-
varnaeldflaugum.
Sérfræðingar hafa talið að Ber-
átti að vera beiðni Breta um jafnari
dreifingu fjárframlaga Efnahags-
bandalagsins. Bretar greiða banda-
laginu um 2,5 milljarða dollara
hærri upphæð en þeir fá í staðinn og
krefjast breytinga á þessu.
Stórrán í
Bretlandi
London. 24. marz. AP.
VOPNAÐIR menn rændu
vörubíl í austurúthverfum
London í dag og komust
undan með silfurstengur að
verðmæti fjórar milljónir
punda. Þetta er annað mesta
rán í sögu Bretlands.
Scotland Yard segir að einn
úr hópnum dulbúinn sem lög-
reglumaður hafi gefið vöru-
bílnum og bíl sem ók á eftir
honum með tveimur starfs-
mönnum silfurfyrirtækisins
skipun um að nema staðar.
Sendibíll með sex vopnuðum
mönnum kom á eftir og ók
föngunum að bílskúr sem þeir
voru lokaðir inni í.
Enginn bílanna sem komu
viðrsögu hafði fundizt í kvðld.
Mesta rán í Bretlandi var
framið í Lundúna-skrifstofu
Ameríkubankans 1975 þegar
7.5 milljónum punda var stol-
ið. Þriðja mesta ránið var
lestarránið mikla 1965 þegar
2.6 milljónum punda var rænt.
ezina væri ætlað að þjóna tveimur
nýjum flugvélaskipum Rússa,
Kiev og Minsk. Þau eru ekki á
Indlandshafi, en nærvera Berez-
ina getur bent til þess að gert sé
ráð fyrir því í áætlunum Rússa að
senda þau á vettvang.
Keisarinn fór frá Panama
aðeins einum sólarhring áður en
lögfræðingar Teheran-stjórnar-
innar lögðu fram formlega
beiðni um framsal Mohammed
Reza Pahlavis fyrir meinta
glæpi gegn þjóð sinni.
Utanríkisráðherra írans, Sa-
dek Ghotbzadeh sagði Pars-
fréttastofunni að gíslarnir yrðu
framseldir byltingarráðinu ef
keisarinn færi aftur til Panama
og brottför hans spillti sáttatil-
raununum. Reiði írana kom
betur fram í útvarps-fréttaskýr-
ingum, þar sem sagði að dvöl
keisarans í Egyptalandi „gæti
flýtt sprengingunni sem mundi
varpa keisaranum og Sadat á
ruslahaug sögunnar".
Brunaverðir slökkva i itölsku ræð-
ismannsskrifstofunni i London
sem eyðilagðist i sprengingu, en
engan sakaði.
Sadat hefur oft sagt að það að
veita keisaranum hæli sé aðeins
mannúðleg ráðstöfun í anda
múhameðskrar hefðar, en
ákvörðun hans getur líka fært
honum pólitískan ávinning.
Keisarinn á inni boð um að leita
lækninga í Bandaríkjunum, en
hann kaus heldur að fara til
Egyptalands. Þar með getur
verið að Sadat hafi uppskorið
þakklæti Bandaríkjastjórnar
nokkrum vikum fyrir fund hans
og Carters forseta um heima-
stjórn fyrir Palestínumenn.
Bandarískir embættismenn
sögðu í kvöld að sú ákvörðun
keisarans að fara frá Panama
væri mannleg og ætti ekki að
valda fleiri áföllum í tilraunun-
um til að fá gíslana leysta úr
haldi. En þeir viðurkenndu líka
að ýmsir íranskir valdamenn
væru fokreiðir brottför keisar-
ans og hún gæti einnig skaðað
tilraun Sadats forseta til að fá
Arabaheiminn til að semja við
ísrael.
Kurt Waldheim, fram-
kvæmdastjóri SÞ, sagði að
ákvörðun keisarans mundi
líklega torvelda tilraunir hans
til að leysa deilu Bandaríkja-
manna og írana.
Keisarinn fær meðferð í
Maadi-herspítalanum skammt
frá Kaíró, bezta sjúkrahúsi
Egyptalands, þar sem nokkrir
kunnir egypzkir og arabískir
stjórnmálamenn hafa fengið
lækningu.
Stórsprengmg
í miðri London
London, 24. marz. AP.
ÍTALSKUR maður hefur verið handtekinn og yfirheyrður eftir
stórfellda sprengingu sem eyðilagði itölsku ræðismannsskrifstofuna i
Eaton Place i London i dag. Engan sakaði.
Lögreglan sagði fyrst að ýmislegt
benti til þess að sprengingin hefði
stafað frá sprengju sem hefði að
geyma allt að 100 pund af sprengi-
efni, en sagði seinna að sprengjusér-
fræðingar teldu að engin sprengi-
efni hefðu verið notuð. En verið
getur að sprengingin hafi stafað frá
eldsprengju sem hafi kveikt í gasi í
byggingunni að sögn talsmanns
lögreglunnar.
Aðspurður hvort Rauðu herdeild-
irnar á Ítalíu væru tengdar málinu
sagði talsmaðurinn: „Við vitum það
ekki að svo stöddu." Aðspurður
hvort sprengingin væri eins konar
hefnd sagði hann: „Það getur vel
verið."
Vararæðismaður ítala, Umberto
Colesanti, sagði að upplýsingar,
skírnarvottorð, hjúskaparvottorð og
persónuleg skjöl 140.000 Itala sem
búa á Suður-Englandi hefðu eyði-
lagzt í sprengingunni. „Ég skil ekki
af hverju þetta gerðist — þetta
virðist svo tilgangslaust. Einhver
minntist á Rauðu herdeildirnar, en
þetta virðist ekki geta verið þeirra
verk.“
Fyrir einum mánuði gerðu um 100
ítalskir kennarar sem kenna lönd-
um sínum í Bretlandi setuverkfall í
ræðismannsskrifstofunni og kröfð-
ust launahækkunar. Hvorki Franco
Cardi aðalræðismaður né starfs-
menn hans voru í byggingunni
þegar sprengingin varð.
Rúmlega 100 auðugir íbúar í
nálægum götum flúðu heimili sín
eftir sprenginguna og fóru sumir í
minkakápur utan yfir náttfötin.
Sovétbirgðaskip
til Indlandshafs
Fyrrverandi íranskeisari við komuna til Kairó í gær ásamt Anwar Sadat forseta.
Keisarinn fær að .
vera í Egyptalandi
If.UA 04_A D
Kaíró, 24. marz. AP.
FYRRVERANDI Iranskeisari kom í dag
til Egyptalands, þar sem Anwar Sadat
forseti bauð honum að dveljast til frambúð-
ar, en ekki er ljóst hvaða áhrif dvöl hans
þar hefur á bandarísku gíslana 1 Teheran.
Ekkert annað land hefur viljað taka við
honum af ótta við hefndir Khomeini-
stjórnarinnar. „ Stjórnmálasambandi
Egyptalands og írans hefur verið slitið,
engir egypzkir diplómatar eru í Teheran
og enginn framsals-samningur er milli
landanna. Sadat hefur kallað Khomeini
vitfirring og afar ósennilegt er að hann
mundi framselja keisarann.