Morgunblaðið - 25.03.1980, Síða 3

Morgunblaðið - 25.03.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980 3 Kór Hlíðar- dalsskóla í tjarofl- unargöngu UM 40 krakkar úr kór Hlíðar- dalsskóla fóru í gær í fjáröflun- argöngu til að safna fé fyrir söngför kórsins til Bandarikj- anna i mai n.k. Héldu þau frá skólanum um kl. 9 i gærmorgun og gengu um Þrengslin i átt til Reykjavikur. Á mótum Þrengsla- vegar og Suðurlandsvegar tóku þau sér smáhvild og fengu sér heita súpu og brauð. Siðan var haidið af stað aftur og gengið yfir Hellisheiði til Hveragerðis og siðan aftur að skólanum, alls um 50 km leið. Um 200 manns höfðu heitið krökkunum ákveðinni fjár- upphæð fyrir hvern genginn kilómetra auk þess sem um 20 fyrirtæki styrktu þau með augiýs- ingum sem bornar voru í göng- unni. n „Við söfnum u.þ.b. einni millj- ón króna ef við göngum alla leið,“ sagði Steinþór Jónsson er blaða- menn Mbl. hittu göngumenn á mótum Þrengslavegar og Suður- landsvegar. „Við eigum vel að geta gengið alla leið. Við erum hraust og í góðri þjálfun og ef við höfum þrek til göngum við ef til vill lengra, jafnvel alla leið til Þor- lákshafnar og til baka,“ sagði hann hinn hressasti. Klukkan var þá rúmlega 12 á hádegi en gert ráð fyrir að þau kæmu aftur að skólanum um sjöleytið í gærkvöldi. Stjórnandi kórsins er banda- ríkjamaðurinn Karen Sturlaugs- son og sagði hún hugmyndina að göngunni vera komna frá heima- landi hennar. Einnig mun kórinn safna fé til fararinnar á tónleikum sem haldnir verða í Aðventkirkj- unni í Reykjavík á föstudaginn. Steinþór Jónsson Göngumenn koma niður Þrengslaveg. Myndir Kristján. Stjórnandi kórsins, Karen Sturlaugsson. Eins og sjá má voru göngumenn vel klæddir og vildu helst ekkert stoppa, „þá verður okkur kalt,“ sögðu þeir. Hvildin varð því ekki iöng en þó gafst timi til að fá sér smá bita. Spyrnt a ísnum. Margir sáu ísakstur í þíðviðrinu Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur gekkst á sunnu- dag fyrir ísakstri og „íscrossi" á Leirtjörn við Úlfarsfell. Gott veður var á sunnudag og jafnvel heldur hlýtt til slíkrar keppni að sögn forráðamanna hennar þar sem brautirnar urðu of linar í lok keppninnar. Sigurvegari í ísakstri varð Jón Ragnarsson á Renault 5, í öðru sæti Halldór Jónsson á Fiat 131, þriðji varð Ásgeir Sigurðsson á Fiat 128 og fjórði Ólafur Sigurjónsson á Saab 96. Að sögn forráðamanna mótsins vakti athygli sérstakur hjóla- búnaður bíls eins keppandans, en hann ók nánast á felgunni, þ.e. með sérstökum „skafla- járnum“ og gaf sá búnaður nokkuð góða raun. Efstur í svonefndum keðjuflokki í ísakstrinum var Bragi Guð- mundsson á Lancer 1400. í „íscrossi" sigraði Rúnar Hauksson á VW og næstur varð Páll Gunnarsson einnig á VW og þriðji Egill Örn Jóhannesson á Saab 96. BMW billinn ekur á felgunum, en Jón Halldórsson ökumaður var þar að reyna nýjan útbúnað i isakstri. Margir áhorfendur fylgdust með isakstrinum á Leirtjörn. Ljósm. Rax.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.